Morgunblaðið - 16.12.2007, Síða 62
62 SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ SteingrímurSkagfjörð Fel-
ixson fæddist á Hall-
dórsstöðum í Seylu-
hreppi í Skagafirði
2.3. 1932 en ólst upp
í Húsey í Vallhólma.
Hann andaðist 17.
nóvember síðastlið-
inn. Foreldrar Stein-
gríms voru Felix
Jósafatsson, f. 14.1.
1904, d. 21.2. 1974,
og Efemía Gísladótt-
ir, f. 4.3. 1902, d.
27.1. 1980, Húsey í
Vallhólma, síðar Sunnuhlíð í
Skagafirði. Systkini Steingríms
eru: 1) Gísli Indriði, f. 12.6. 1930,
kvæntur Erlu Einarsdóttur, þau
eiga þrjú börn. 2) Jósafat Vil-
hjálmur, f. 23.5. 1934, kvæntur
Indu Indriðadóttur, þau eiga tvo
syni. 3) Guðbjörg Guðrún, f. 1.1.
1937, var gift Valgeiri Guðjóns-
syni, d. 1981. Þau eignuðust fjögur
börn. 4) Sólveig, f. 7.3. 1938, d.
2003, var gift Guðmundi Guð-
mundssyni, d. 1995. Þau eignuðust
átta börn.
Steingrímur kvæntist 24.8. 1952
Dönu Arnar Sigurvinsdóttur, f.
26.5. 1933. Foreldrar hennar voru
Arnbjörg Magnúsdóttir og Sigur-
vin Kjartan Pálmason, en hún ólst
upp hjá fósturfor-
eldrum, þeim Sigríði
Halldórsdóttur og
Friðbirni Jónassyni
á Þrastarstöðum í
Hofshreppi á Höfð-
aströnd. Stein-
grímur og Dana
eignuðust sex börn
og eru fjögur á lífi:
1) Drengur, f. 31.5.
1951, d. 1.6. 1951. 2)
Friðbjörn Örn, f.
27.4. 1952, kvæntur
Kristínu Björk Guð-
mundsdóttur, þau
eiga þrjá syni, Ragnar, Arnar
Stein og Sigurvin. 3) Sigurður
Skagfjörð, f. 20.8. 1954, kvæntur
Björgu Jóhannesdóttur, þau eiga
tvær dætur, Sólveigu Hlín og Mar-
íu Lind. Fyrir á Sigurður Helga
Snæ. 4) Gréta Sigríður, f. 29.6.
1959, gift Kristjáni Guðmundssyni,
þau eiga þrjú börn, Guðmund
Daða, Yrju Dögg og Söru. 5) Ingi-
björg Jóna, f. 15.10. 1963, d. 1.6.
1968. 6) Inga Sólveig, f. 14.2. 1971,
gift Guðmundi Bragasyni, þau
eiga þrjú börn, Örnu Sif, Andra
Snæ og Dönu Björgu. Barna-
barnabörnin eru fimm.
Útför Steingríms fór fram frá
Kópavogskirkju í kyrrþey að ósk
hins látna.
Steingrímur stundaði nám við
Bændaskólann á Hólum. Einnig lauk
hann vélskólaprófi í Vestmannaeyj-
um árið 1950. Steingrímur var vél-
stjóri á vertíðarbátum frá Eyjum og
víðar til 1951. Einnig vann hann á Ak-
ureyri en flutti síðan í Sunnuhlíð,
Varmahlíð í Skagafirði. Steingrímur
giftist Dönu Sigurvinsdóttur árið
1952, þau eignuðust fjögur börn með-
an þau bjuggu fyrir norðan. Hann var
áhugamaður um vélar og bíla og
stofnaði fljótlega sjálfur fyrirtæki
sem gerði út þungavinnuvélar til
vega- og hafnargerðar, þar vann hann
á jarðýtu. Auk þess vann Steini við yl-
rækt ásamt fjölskyldunni en þá starf-
ræktu þau garðyrkjustöð í Varma-
hlíð. Árið 1968 varð mikill harmur í
fjölskyldunni, þá dó fjögurra ára dótt-
ir þeirra af slysförum. Eftir það fluttu
þau til Reykjavíkur og seldi hann þá
fyrirtækið og byggði sér raðhús í
Goðalandinu. Þar fæddist þeim
yngsta dóttirin. Í Reykjavík var hann
verktaki og síðar verkstjóri. Einnig
rak hann hótelið í Varmahlíð í nokkur
ár.
Heimili Dönu og Steina hefur alla
tíð verið mjög fallegt og mikill metn-
aður hjá Steina að sjá vel fyrir heim-
ilinu. Alltaf var nóg pláss í Goðaland-
inu fyrir börn, barnabörn, vini og
vandamenn. Þegar börnin fluttu að
heiman og ekki var þörf á svo stóru
húsnæði fluttu þau fyrst í Espigerði
og síðan í Arnarsmára. Þótt plássið
væri minna var alltaf nóg pláss.
Steini hafði mjög fagra og djúpa
söngrödd. Hann söng mikið á sínum
yngri árum. 14 ára gekk hann í Karla-
kórinn Heimi. Á Akureyri söng hann
með Karlakór Akureyrar. Einnig
sungu þau Steini og Dana með
Kirkjukór Víðimýrarkirkju. Þegar
hann flutti suður fór hann í Karlakór
Reykjavíkur og varð síðar einn af
stofnendum Skagfirsku söngsveitar-
innar og söng með henni nokkur ár.
Um miðbik ævinnar voru áfengi og
tóbak harður húsbóndi Steina, eins og
hjá mörgum öðrum fór það illa með
heilsu hans. Steingrímur vann síðustu
starfsár sín hjá Búnaðarbankanum í
Reykjavík.
Steina þótti sjálfsagt að gera við
alla hluti sjálfur og allir vissu að hann
var hagleiksmaður, hann kom fjöl-
skyldu sinni og sjálfum sér á óvart um
60 ára aldurinn. Þá fór hann á mynd-
listarnámskeið og fór að mála olíu-
málverk sem voru mikil listaverk.
Fjölskylda hans á nú þessar myndir
sem hlýja okkur og minningu hans.
Það má segja að hann hafi alltaf lif-
að lífinu hratt, hugsaði lítið um heils-
una, lifði fyrir líðandi stund. Þrátt fyr-
ir veikindi var hann sáttur hin síðustu
ár, stoltur af afkomendunum sem hef-
ur farnast vel. Hann hafði gleði af
þeim öllum og gladdist yfir að eignast
nafna, Steingrím Ragnarsson, sem
fæddist í vor. Hann hélt sinni andlegu
reisn fram á síðustu stund og gat
kvatt alla sína nánustu áður en hann
sofnaði svefninum langa 17. nóvem-
ber 2007.
Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð
hjartans þakkir fyrir liðna tíð.
Lifðu sæll á ljóssins friðarströnd,
leiði sjálfur Drottinn þig við hönd.
(Guðrún Jóhannsdóttir)
Hinsta kveðja.
Friðbjörn Örn, Björk
og fjölskylda.
Til þín elsku pabbi.
Vilji ég minnast vors og æsku,
vitja eg heim í fjörðinn minn.
Hlýr og fagur, fullur gæzku
faðminn við mér breiðir sinn.
Vaknar öllum von í hjarta,
vötnin hlæja, brosir jörð,
þegar sólin sumarbjarta
seiðir vor í Skagafjörð.
(Pétur Jónsson)
Í æsku okkar var oftast bjart og
hlýtt.
Hvíl þú í friði.
Gréta Sigríður Steingrímsdóttir.
Þakkið alla hluti, því að það er vilji Guðs
með yður í Kristi Jesú.
(1. Þess. 5.18.)
Elsku pabbi minn er látinn. Tími
hans var kominn til að kveðja og hlut-
verki hans lokið á þessari jörð og önn-
ur hlutverk munu taka við. Ég veit að
þjáningum hans er lokið og hvíldin
var honum kærkomin. Þrátt fyrir það
er sorgin þung og söknuðurinn mikill
hjá okkur sem eftir lifum. Núna er
það hlutverk okkar að hlúa hvert að
öðru og senda honum og sýna hvert
öðru ást og kærleika. Þetta er gangur
lífsins og hlutur sem við verðum að
sætta okkur við. Ég er svo heppin að
vera alin upp við trúna á eilíft líf og
get fundið styrk og huggun í að nú sé
pabbi hjá öðrum ástvinum, umvafinn
kærleika og laus allra þrauta.
Líf hans hér á jörðinni var svo
sannarlega ekki þrautalaust. Hann
upplifði bæði mikla sorg og veikindi,
en sagt er að andinn eflist og þroskist
við hverja raun. Allt er þetta reynsla
sem okkur er ætlað að ganga í gegn-
um. Því trúi ég. Þegar hugur minn
leitar til baka koma einungis upp í
huga mér góðar minningar og mikið
þakklæti. Ég er þakklát fyrir að hafa
fengið að kynnast og ganga lífsleiðina
með þessum sterka, vinnusama, list-
ræna og góða manni. Hann átti svo
sannarlega við sína veikleika að stríða
en hann hann reyndi að berjast á móti
stærstan hluta af ævi sinni og kvaddi
sína nánustu undir lokin, sáttur við líf-
ið og dauðann og óskaplega stoltur yf-
ir að eiga svona yndislega fjölskyldu.
Elsku pabbi minn.
Þakka þér fyrir að þú gafst mér líf.
Þakka þér fyrir ást þína og kær-
leika.
Þakka þér fyrir tíma þinn og örlæti.
Þakka þér fyrir að veita mér
reynslu og þroska.
Þakka þér fyrir leiðbeiningu og góð
ráð.
Þakka þér fyrir fallegu listaverkin
þín.
Þakka þér fyrir fallega sönginn.
Þakka þér fyrir minningarnar.
Hvíl þú í friði ljóssins, ég kveð þig
að sinni.
Þakka þér fyrir allt.
Þín dóttir,
Inga Sólveig.
Öllu er afmörkuð stund, og sérhver hlutur
undir himninum hefir sinn tíma.
Að fæðast hefir sinn tíma og að deyja hefir
sinn tíma …
(Predikarinn 3:1-2)
Við fráfall tengdaföður míns Stein-
gríms Felixsonar koma upp í hugann,
eftir 30 ára samfylgd, margar minn-
ingar sem ég þakka. Hann hafði háð
sjúkdómsstríð sitt í mörg ár og notið
frábærrar umönnunar eiginkonu
sinnar, Dönu Arnar, allan þann tíma.
Nú er hann laus við þjáningar og
gengur á vit ljóssins.
Þei, þei og ró.
Þögn breiðist yfir allt.
Hnigin er sól í sjó.
Sof þú í blíðri ró.
Við höfum vakað nóg.
Værðar þú njóta skalt.
Þei, þei og ró.
Þögn breiðist yfir allt.
Með ljóði Jóhanns Jónssonar kveð
ég Steingrím með virðingu og þökk.
Algóður Guð geymi þig, kæri
tengdafaðir.
Björg Jóhannesdóttir.
Afi, ég þakka þér fyrir allar stund-
irnar sem við höfum átt saman. Þú
hefur gefið mér ást og vináttu, og þú
hefur hjálpað mér að finna sjálfa mig.
Ég man þegar ég var fjögurra ára,
enn ólæs. Þú gafst mér tíma þinn og
kenndir mér það sem ég ekki kunni.
Ég man ég var svo stolt í fyrsta bekk
þegar ég var sú eina sem kunni að
lesa. Ég var ekki stolt af því mér
fannst ég betri en aðrir, ég var stolt af
því að eiga afa eins og þig. Afa sem
tekur sér tíma til að hugsa um þig svo
að þér líði vel. Alltaf fannst mér svo
gaman að koma upp í Espigerði og
hitta þig og ömmu. Að fá að baka með
ömmu og spila spil með þér. En svo
varð ég stór, og þurfti ekki svo mikinn
tíma með afa og ömmu. En það var
svo gott að heyra í ykkur þegar ég
þurfti þess. Takk fyrir að hafa komið í
ferminguna mína. Það var svo gott að
sjá þig aftur. Ég man að þú sagðir að
þú værir stoltur af mér. Það var svo
stórt að heyra það frá þér, frá þér sem
ég leit svo upp til. Það var svo gott að
heyra, því ég vildi að þú værir það. Ég
þakka þér fyrir allar góðu minning-
arnar sem ég á um þig. Þín er sárt
saknað, en ég get ekki annað en orðið
glöð þegar ég hugsa um þig. Það eru
bara góðar minningar um þig og ég
mun alltaf elska þig afi minn.
Arna Sif.
Steingrímur Skagfjörð
Felixson
Elsku afi minn. Vona að þú
sért kominn á betri stað
núna og hafir það gott. Ég á
eftir að sakna þess að heyra
þig kalla mig afastelpuna
þína. Elska þig af öllu hjarta,
elsku afi minn.
Úr Skagafirði kemur hann,
heillaður af sveitinni sinni.
Minningu um þann mæta mann,
geymi ég í sálu minni.
(S.K.)
Þín afastelpa
Sara.
HINSTA KVEÐJA
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
MARGRÉT JÓHANNSDÓTTIR,
Þangbakka 10,
Reykjavík
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ að morgni
föstudagsins 14. desember.
Útförin fer fram frá Langholtskirkju fimmtudaginn
20. desember. kl. 13.00.
Sigurður J. Sigurðsson,
Sigurður Sigurðsson, Lilja Sörladóttir,
Þórdís Sigurðardóttir, Gunnar Pétursson,
Ólafur J. Sigurðsson, Ólöf Ragnarsdóttir,
Þuríður R. Sigurðardóttir, Kristján A. Ólason,
Margrét Sigurðardóttir, Guðmundur Arason,
Hrafnhildur Sigurðardóttir, Barcley T. Anderson,
Berglind Sigurðardóttir, Ólafur Sigurðsson
og ömmubörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, stjúpfaðir, tengda-
faðir og afi,
MAGNÚS STEFÁNSSON
skipstjóri,
Nýbýlavegi 84,
Kópavogi,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð fimmtudaginn
13. desember.
Útförin fer fram frá Kópavogskirkju föstudaginn
21. desember kl. 11.00.
Guðrún Friðriksdóttir,
Jórunn Magnúsdóttir,
Magnús Magnússon, Metta Promjiem,
Hrafnhildur Magnúsdóttir, Guðmundur Hárlaugsson,
Guðmunda Magnúsdóttir, Ólafur Bragason,
Jóhanna Magnúsdóttir, Steingrímur Benediktsson,
Friðrik Gíslason, Guðríður Svavarsdóttir,
Ásgeir Gíslason, Júlía P. Amporn,
Sigrún Gísladóttir, Hörður Rögnvaldsson
og barnabörn.
✝
Móðir mín, tengdamóðir og amma,
BERGÞÓRA JÓNSDÓTTIR
frá Litla-Dal,
Lönguhlíð 5 C,
Akureyri,
lést á hjúkrunarheimilinu Seli aðfaranótt fimmtu-
dags 13. desember.
Jarðsungið verður frá Akureyrarkirkju föstudaginn
21. desember kl. 13:30.
Þórdís Ingvadóttir, Torben Kinch
Anna Þóra Kinch, Jesper Lillelund Fisker,
Jakob Kinch.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og
langalangafi,
GÍSLI GUÐMUNDSSON,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð þriðjudaginn
11. desember.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 17.
desember kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjúkrunar-
heimilið Sunnuhlíð.
Olgeir Gíslason,
Lilja Gísladóttir, Klemenz Hermannsson,
Kristinn Gíslason, Lísa Gíslason,
Gunnar Már Gíslason, Hansína K. Jónsdóttir,
Fjóla Gísladóttir Hansen, Kjeld Hansen,
Guðmundur Gíslason, Sigríður B. Guðjónsdóttir
og fjölskyldur.
✝
Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
ÞORSTEINN KRISTINSSON
endurskoðandi,
sem lést miðvikudaginn 12. desember, verður
jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði fimmtu-
daginn 20. desember kl. 13.00.
Dagbjört Torfadóttir,
Helga Björk Þorsteinsdóttir, Kristinn Arnar Guðjónsson,
Hörður Þorsteinsson, Sigrún Sæmundsdóttir,
Kristinn Þorsteinsson, María Sverrisdóttir,
barnabörn og langafabarn.