Morgunblaðið - 16.12.2007, Síða 64

Morgunblaðið - 16.12.2007, Síða 64
64 SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Sigurður Eð-varð Arnórsson fæddist á Akranesi 5. maí 1949 og ólst þar upp. Hann lést á U of M Medical center í Minneapolis 21. nóvember síð- asliðinn. Foreldrar hans voru þau Eyj- ólfur Arnór Svein- björnsson kaup- maður, f. 6.6. 1913, d. 16.8. 1989, og Guðrún Lovísa Sig- urðardóttir hús- móðir, f. 30.3. 1916. Sigurður átti tvær systur þær Ernu Arnórs- dóttur, sem er gift Þór Jóhanns- syni, og Aðalheiði Arnórsdóttur sem er gift Óskari Jónssyni. Sigurður kvæntist 27.3. 1971 Margréti Jónsdóttur, f. 7.10. 1949, þau skildu 1997. Börn þeirra eru: 1) Borghildur, f. 1970, gift Hall- dóri Arnarssyni, eiga þau 3 börn, Eddu Margréti, Thelmu Karítas smiðjunni Heklu og tók síðan við framkvæmdastjórastöðu þar. Varð síðar framkv.stj. á Gefjun og einn af aðstoðarframkv.stjórum iðnaðardeildar Sambandsins. Varð síðar framkv.stj. Súkkulaði- verksmiðjunnar Lindu þar til hann fluttist til Reykjavíkur 1994. Á Akureyri var hann félagi í Lionsklúbbnum Hæng í nokkur ár, gekk í Oddfellow og var for- maður knattspyrnudeildar Þórs í nokkur ár. Sigurður tók virkan þátt í starfi Alþýðuflokksins á Ak- ureyri, varð varaþingmaður 1991 og sat á þingi fyrir Norðurlands- kjördæmi eystra í tvígang. Sigurður var gjaldkeri og í fram- kvæmdastjórn Alþýðuflokksins á þeim árum. Sigurður flutti til Reykjavíkur árið 1994. Hann starfaði sem sjálfstæður rekstrar- ráðgjafi til ársins 2002 þegar hann hóf nám á Hazelden-með- ferðarstofnuninni í Minnesota, í meðferðarfræðum. Hann fluttist búferlum til Minnesota í nóvem- ber 2004 og starfaði þar sem deildarstjóri í eftirmeðferðum á Hazelden til dauðadags. Minningarathöfn var haldin til minningar um Sigurð í Minnesota 1. desember og í Reykjavík 13. desember. og Kristófer Breka. 2) Eðvarð Arnór, f. 1975, sambýliskona Jóna Þrastardóttir eiga þau samtals 3 börn, Hugin Orra, Daníel Örn og Kötlu Rún. 3) Davíð Jón, f. 1982, sambýliskona Hrafnhildur Yrsa Georgsdóttir þau eiga 2 börn, Rakel Evu, og óskírðan dreng. Hinn 26.11. 2004 giftist Sigurður Den- ise Renee Osgood, f. 22.7. 1957. Sigurður ólst upp á Akranesi og lærði rafvirkjun í eitt ár í Iðnskól- anum á Akranesi, útskrifaðist frá Samvinnuskólanum á Bifröst 1970. Stundaði framhaldsnám í London og útskrifaðist þaðan 1973 sem iðnrekstrarfræðingur. Fluttist til Akureyrar í september 1973 og hóf þá störf sem aðstoð- arverksmiðjustjóri hjá Fataverk- Þegar afi minn átti heima í Lág- múlanum fórum við stundum að höggva jólatré á veturna. Ég gisti alltaf hjá afa kvöldið áður og fékk alltaf að hlaupa niður í sjoppu að kaupa mér nammi og leigja mynd, síðan þegar ég kom heim þá horfðum við á myndina og borðuðum nammið. Mér fannst alltaf svo gaman að prufa harmonikkuna hans afa, ég kunni ekki neitt á hana en afi gat spilað á hana svo fallega. Hann var músík- alskur, hann afi minn, hann spilaði með mér í fermingu hjá frænku minni. Hann kunni á gítar, píanó og harmonikku og ég veit ekki hvað fleira. Svo alltaf þegar hann kom til landsins þá settist hann við hljóm- borðið mitt og ég söng. Mér fannst afi minn einstaklega sterkur per- sónuleiki og horfði mikið upp til hans. Afi minn hélt mikið upp á ljóð- skáldið Einar Benediktsson og þess vegna langar mig að setja inn eitt ljóð sem Einar orti um Egil Skalla- grímsson sem mér finnst lýsa vel sterkum og góðum manni eins og honum afa; Eitt bros – getur dimmu í dagsljós breytt, sem dropi breytir veig heillar skálar. Þel getur snúist við atorð eitt. Aðgát skal höfð í nærveru sálar. Svo oft leyndist strengur í brjósti, sem brast við biturt andsvar, gefið án saka. Hve iðrar margt líf eitt augnakast, sem aldrei verður tekið til baka. Takk fyrir allar stundirnar og tím- ana sem við fengum saman, enda eru það alltaf litlu hlutirnir sem maður man eftir. Kær kveðja, Edda Margrét Erlendsdóttir. Mig langar í fáum orðum að minn- ast tengdaföður míns, Sigurðar E. Arnórssonar. Okkar kynni hófust 1995 þegar ég kynntist Borghildi, dóttur Sigurðar. Ég verð að viður- kenna að ég bar fyrirfram ótta- blandna virðingu fyrir Sigga enda hafði ég heyrt margt og mikið af honum látið. Hann hafði verið fram- kvæmdastjóri hjá Sambandinu, átti og rak eigið fyrirtæki, var frammá- maður í íþróttalífi á Akureyri, var varaþingmaður og gjaldkeri Alþýðu- flokksins. Þetta var listi sem mér sem ungum manni að hefja atvinnu- feril fannst nokkuð mikið til koma. Siggi var ekki maður sem auðvelt var að kynnast, hann var viðræðu- góður en hleypti mönnum ekki mjög langt inn fyrir skelina. Smám saman náði maður samt að kynnast honum betur og betur. Við áttum þó nokkur sameiginleg áhugamál, t.d. Alþýðu- flokkinn og Tottenham. Siggi sýndi mikið hugrekki þegar hann tók al- gera u-beyju á sínum atvinnuferli rúmlega fimmtugur og hætti í rekstrarráðgjöf og fór að læra með- ferðarfræði sem hann lauk meistara- námi í árið 2004, þá 55 ára gamall. Eins og það eitt væri ekki nóg þá ákvað hann að flytja til Minnesota og hóf að vinna á Hazelden meðferðar- stofnuninni. Þetta hefur eflaust verið honum erfitt því hann hafði náð að mynda góð tengsl við ört stækkandi hóp barnabarna sem voru að komast til vits og ára. Þetta ár kvæntist hann einnig eftirlifandi konu sinni Denise R. Osgood og náði hún strax að mynda góð tengsl inn í „gömlu“ fjölskylduna hans Sigga. Það var fleira sem gerðist þetta ár, því þarna greindist Siggi einnig með IPF- lungnasjúkdóminn sem lagði hann að velli að lokum. Á svona stundum koma í hugann mörg minningarbrot. Mér er minn- isstætt þegar hann fór með börnun- um sínum og tengdabörnum til London þar sem farið var í Fins- bury-hverfið þar sem Siggi bjó á námsárunum í London. Þá sagði hann okkur margar sögur og var augljóst að hann átti góðar minning- ar frá þessum tíma. Mér er einnig minnisstætt þegar hann var tíður gestur á heimili mínu þegar hann var að fara í gegnum sporin 12 hjá AA- samtökunum. Þá var oft setið lengi við eldhúsborðið og spjallað um það sem hann var að ganga í gegnum. Líka tímabilið þegar hann var ekki kominn með græna kortið í USA, þá bjó hann hjá okkur þegar hann var á Íslandi. Hann átti mjög erfitt með að gera ekki neitt og þess vegna var hann alltaf að dytta að einhverju þegar hann gisti hjá okkur. Í einni ferðinni endurskipulagði hann bíl- skúrinn okkar, í annarri gerði hann upp gasgrillið og svo mætti lengi telja. Einnig eigum við mjög fallegar minningar af Sigga og Kristófer Breka sem þá var nýjasta barna- barnið. Þeir vöknuðu yfirleitt fyrstir á morgnana og þegar við hin komum upp þá voru þeir búnir að hella upp á kaffi og Siggi stóð við stofugluggann með Kristófer í fanginu þar sem þeir fylgdust með umferðinni og spjöll- uðu saman. Kæri Siggi, ég veit að þú átt eftir að fylgjast með okkur í framtíðinni og vonandi verður þú stoltur af því sem þú sérð og ég efast ekki um að þú leiðbeinir okkur ef þér finnst þurfa við. Hvíl í friði, blessuð sé minning þín. Halldór Arnarsson. Fyrir 10 árum lágu leiðir okkar Sigurðar Arnórssonar saman og frá þeim degi byggðum við upp trausta vináttu. Við stóðum þá báðir á tíma- mótum og vorum staðráðnir í að vinna markvisst að betra lífi. Við gerðum okkur ljóst að með því að samhæfa reynslu okkar, styrk og vonir gætum við náð árangri. Strax á fyrstu fundum okkar lá ljóst fyrir að Siggi hafði ríka þörf fyrir og hæfileika til að hjálpa öðrum og veita góð ráð. Hann hafði einnig þróað með sér þann mikilvæga eig- inleika að leita eftir aðstoð og fá að láni dómgreind annarra, eins og við kölluðum það. Eftir 2 ára kynni fór Siggi að ræða að söðla um og skipta um starfsvett- vang. Hann átti góðan feril í rekstr- arráðgjöf og stjórnun, hafði verið framkvæmdastjóri Lindu á Akureyri og síðar m.a. rekstrarráðgjafi hjá Vörumerkingu hf. Einnig hafði hann á árum áður verið virkur í stjórn- málum, m.a. gjaldkeri Alþýðuflokks- ins og tók sæti á Alþingi sem vara- þingmaður. Við félagarnir áttum oft frjóar umræður um pólitík og hvatti hann mig til dáða þegar ég fór í framboð 2002 þó um annan flokk væri að ræða en hans eigin. Sigga fýsti að læra áfengisráðgjöf og hagaði svo til að ég hafði góð tengsl við Hazelden-stofnunina í Minnesota. Þegar ég fór um þær slóðir árið 2000 slóst Siggi þá í för. Í framhaldinu sótti hann um inngöngu á námsbraut Hazelden í ráðgjöf og fékk inngöngu. Sóttist námið mjög vel og lauk með hefðbundnu burtfar- arprófi og síðan skráði hann sig í við- bótarfjarnám og lauk með ágætum. Forlögin höguðu því svo að Denise Osgood, starfsmaður Hazelden, kom hingað til lands árið 2001 og hittust þau Siggi þá. Leiðir þeirra lágu svo aftur saman þegar hann fór ári síðar til náms á Hazelden. Felldu þau hugi saman og giftu sig árið 2005. Siggi hafði þá fengið greiningu um alvar- legan lungnasjúkdóm og var ljóst að framundan var erfið barátta. Eftir góða læknismeðferð hér heima ákvað Siggi að fara vestur til unn- ustu sinnar Denise og saman hófu þau baráttuna við sjúkdóminn. Smám saman komu góð batamerki en jafnframt gert ráð fyrir að Siggi þyrfti að fara í lungnaskiptaaðgerð. Bati Sigga var svo góður að hann varð vel vinnufær og sótti um nýtt starf sem stofnað var til á Hazelden til að sinna eftirmeðferð með fjar- búnaði. Það er til marks um traust sem Siggi naut að honum var veitt staðan en um hana kepptu margir hæfir einstaklingar. Siggi naut sín í þessu starfi sem hefur orðið fjöl- mörgum til hjálpar og aðferðafræðin sem hann mótaði á eftir að hafa mikl- ar og góðar afleiðingar fyrir þá sem þjónustu Hazelden njóta. Það var því ástæða til bjartsýni um áframhaldandi bata þegar högg- ið kom í októberlok sl. Siggi var rænulítill næstu vikurnar en vonir Sigurður Eðvarð Arnórsson Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Hermann Jónasson Geir Harðarson ✝ Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURJÓN KRISTINSSON, Trönuhjalla 17, Kópavogi, sem lést laugardaginn 8. desember á Land- spítalanum í Fossvogi, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 17. desember kl. 13.00. Jónína Ingólfsdóttir, Kristinn Ingi Sigurjónsson, Sigrún Magnúsdóttir, Unnur Ágústa Sigurjónsdóttir, Ragnar Sær Ragnarsson, Jónína Kristrún Kristinsdóttir, Halldór Magnússon, Kristinn Sigurjón Kristinsson, Guðrún Lísa Einarsdóttir, Katrín Ragnarsdóttir, Gunnar Freyr Ragnarsson, Alexander Ingi Kristjánsson, Magnús Ingi Halldórsson. ✝ Elsku hjartans eiginmaður minn og pabbi okkar, JÓN GUNNAR GRJETARSSON, Brunnstíg 4, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnar- firði mánudaginn 17. desember kl. 15.00. Blóm eru vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið. Anna Borg Harðardóttir, Andri Jónsson, Sandra Jónsdóttir, Tinna Jónsdóttir. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HILMAR GARÐARS, andaðist á Hjúkrunarheimilinu Eir miðvikudaginn 5. desember. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 19. desember kl. 15.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast Hilmars er bent á að láta líknarfélög njóta þess. Þorgerður Jörundsdóttir, Anna María Hilmarsdóttir, Þorsteinn Hilmarsson, Guðrún Sóley Guðjónsdóttir, Þorgerður Jörundsdóttir, Þorsteinn Jörundsson, Þuríður Elfa Jónsdóttir, Jörundur Jörundsson, Jóhanna Símonardóttir, Steinunn Guðmundsdóttir, Hilmar Þorsteinsson, Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir, og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, SIGURÐUR VALDIMARSSON, fyrrverandi skipstjóri, útgerðarmaður og veitingarmaður, frá Ólafsvík, lést á krabbameinsdeild Landspítalans 12. desember. Útförin fer fram í Vídalínskirkju fimmtudaginn 20. desember kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á krabbameinsfélagið. Guðrún Sigurðardóttir, Una Jóna Sigurðardóttir, Níels Kirschberg, Guðlaugur Kr. Sigurðsson, Anna María Jónsdóttir, Kristín Guðbjörg Sigurðardóttir, Bjarni Arnarson, Valdimar G. Sigurðsson, Rannveig H. Kristinsdóttir, Níels Pétur Sigurðsson, Hrefna Kristmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.