Morgunblaðið - 16.12.2007, Page 65
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 2007 65
stóðu til að baráttumaðurinn mundi
hafa betur. Það brást og 21. nóvem-
ber sl. lést þessi góði drengur.
Ég votta eftirlifandi eiginkonu
Denise og börnum Sigurðar vinar
míns Arnórssonar og fjölskyldum
þeirra innilega samúð. Minning um
góðan dreng mun lifa og mörg ljós
tendruð í þakklætisskyni fyrir það
sem hann gaf okkur samferðamönn-
um sínum.
Almar Grímsson.
Orðið kærleikur kom í huga minn
þegar ég frétti af andláti vinar míns
Sigurðar E. Arnórssonar. Það er
vont að missa bakhjarl í lífinu. Sig-
urður var bakhjarl í lífi margra og
vinur í raun. Hann var alltaf til stað-
ar þegar „eitthvað fór ekki alveg eins
og ætlað var“ hjá okkur félögunum
en margir okkar hófu starfsferil sinn
undir hans stjórn. Það var mikill
hugur í mönnum hjá Iðnaðardeild
Sambandsins á Akureyri þegar ég
réði mig þangað á sínum tíma. Þegar
litið er yfir farinn veg, þá kristallast
hversu mikill afburðastjórnandi Sig-
urður var. Víðsýnn og opinn fyrir
nýjungum, ákveðinn en samt sveigj-
anlegur og alltaf tilbúinn að hlusta
og meta rök annarra. Andrúmsloftið
hjá Sambandinu einkenndist oft af
núningi og valdapoti, en Sigurður
var hafinn yfir slíkt. Í hans huga
fólst vinnan í að ná árangri og starfa
með fólki. Í öllu sem gekk á þá og
þann tíma sem við áttum samleið
missti Sigurður samt aldrei húmor-
inn í starfi né í leik. Að gera gagn og
hafa gaman á jafnræðisgrunni var
rauður þráður í lífi hans og starfi
enda jafnaðarmaður í hugsjón.
Sigurður fór hins vegar ekki var-
hluta af erfiðleikum á lífsleið sinni en
það sem einkenndi viðbrögð hans við
þeim var að þau skyldu ekki bitna á
öðrum. Hann hafði þann einstaka
hæfileika að búa sér til tækifæri úr
erfiðri stöðu. Vinir Sigurðar sem
fylgdust með honum, meðal annars
við nám og starf í Bandaríkjunum,
þekkja vel þennan hæfileika. Í
Bandaríkjunum hófst nýr áfangi í lífi
Sigurðar – nýtt upphaf, þar sem
hann byggði upp traust og vinsemd í
nýju umhverfi frá grunni. Þar kynnt-
ist hann Denise sem var lífsstoð hans
síðustu árin. Mann setti hljóðan á
sínum tíma þegar fréttist af þeim
veikindum sem Sigurður barðist við
og sem loks höfðu yfirhöndina. Orð
eins og ósanngirni komu í huga
manns – hversu mikið á að reyna
fólk! Hins vegar er nokkuð víst, að ef
einhver fær áheyrn hjá þeim sem
öllu ræður þá verður það Sigurður
E. Arnórsson. Á sama hátt má segja
að þrátt fyrir að falla frá alltof ungur
þá skilur Sigurður eftir sig arfleifð
sem verður okkur sem þekktum
hann að leiðarljósi. Á svona tímum er
nauðsynlegt að vera þakklátur fyrir
það sem gert var og líta fram á við.
Það hefði örugglega verið vilji Sig-
urðar. Ég á erfitt með að koma í orð
þakklæti fyrir samskipti mín við Sig-
urð í gegnum tíðina, fyrst með Mar-
géti sér við hlið og síðar Denise. Það
er mikill missir fyrir börn og barna-
börn að hafa ekki átt þess kost á að
eiga fleiri daga með Sigurði. Ég og
Hafdís kona mín sendum okkar inni-
legustu samúðarkveðju til ykkar
allra.
Ég mun sakna þín Sigurður og oft
hugsa til þín þegar á bjátar.
Hittumst síðar.
Karl Friðriksson.
Sönn vinátta er gersemi lífsins, yf-
irskyggir fjársjóði og eykur stöðugt
vægið í tilverunni. Lán mitt var að
eiga vináttu Sigga Arnórs. Þar var
minn besti vinur, allt frá barnsárun-
um, einn dagur var á milli okkar í
aldri. Vinátta okkar hófst þar sem
við sátum saman í lestrarkennslu,
sex ára gamlir. Upp frá því sátum við
saman alla skólagönguna þar sem
einstaklingarnir mótast mest og tók-
um sameiginlega út þroskagöngu til
manns. Á þessum árum urðum við
miklir félagar, vinir og féllum þétt
inn í fjölskyldur beggja. Leiðin lá á
Bifröst. Eftir það blasti lífið við okk-
ur. Við mynduðum yndislegar fjöl-
skyldur sem vinaböndin héldu vel ut-
an um. Það er skemmtilegt að
minnast þess á hve mörgum sviðum
við æskufélagarnir höfðum líka sýn.
Félagsstarfið hófst með öðrum vin-
um í Tómstundaklúbbnum Þyrli sem
var algengt á þeim árum. Það féll í
beggja hlut að starfa fyrir íþrótta-
hreyfinguna, annar um tíma formað-
ur knattspyrnudeildar Þórs á Akur-
eyri, en þar bjó Siggi lengi, hinn á
æskuslóðum árum saman innan ÍA,
þar einnig formaður knattspyrnu-
ráðs. Báðir störfuðum við innan
Oddfellowreglunnar. Pólitískan
samhljóm vantaði ekki, störfuðum
báðir með jafnaðarmönnum, hvort
sem var á Akranesi, Akureyri eða í
Reykjavík. Vorum við stoltir af því
að vera í hópi eðalkrata eins og Siggi
nefndi það jafnan. Árið 1971 var
tímamótaár, þá keyptum við Sigrún
Halla konan mín, en þau eru systk-
inabörn, verslunina „Óðinn“ og
æskuheimili Sigga þar fyrir ofan að
Kirkjubraut 5 á Akranesi. Húsið var
reist af foreldrum Sigga sem ráku
verslunina Óðin í áratugi, þau voru
þekkt sómahjón í bænum en hættu
verslunarrekstri vegna aldurs. Við
tókum við fyrirtækinu, fluttum á
hæðina fyrir ofan og höfum búið þar
síðan, í þrjátíu og sex ár. Með sanni
má segja að lífshlaup okkar Sigga
Arnórs hafi legið saman frá því við
vorum sex ára að stauta í gegnum
Gagn og gaman í lestrarnáminu.
Við missi ástvina og við skyndilegt
fráfall Kalla sonar okkar var tryggur
vinur sem Siggi nálægur. Vinur jafnt
í gleði og sorg! Trygglyndi og styrkj-
andi ráð var alltaf til staðar þegar á
þurfti að halda fyrir mig og fjöl-
skylduna. Við reyndum að gjalda
líku líkt.
Siggi var trúmaður. Kom það oft í
ljós með árunum og enn frekar í
samskiptum í kjölfar þess að hann
flutti til Minnesota og síðar í veik-
indum hans. Glettni og húmor var
aldrei langt frá hans ljúfa jafnaðar-
mannageði, í einu bréfi lýsir hann
rannsóknum ytra vegna veikind-
anna. Siggi sagðist hafa bent lækn-
um á að gæta vel að blóðprufunum,
þar í væri sjaldgæft eðalkratablóð,
ættað af Íslandi. Í lokin er við hæfi
að vitna í orð sem oft voru honum
töm kveðjuorð í skrifum gegnum ár-
in: „Megi dagur hver fegurð ykkur
færa, Guð blessi þig“ … orð sem
sýna vel einlægni og góðan hug. Með
þessum orðum minnist ég æskuvinar
míns Sigga Arnórs. Þetta verða ekki
kveðjuorð því minning hans mun lifa
með okkur, styrkja og verma eins og
vináttan gerði og ávallt þegar á
þurfti að halda. Guð blessi þig og ást-
vini þína um ókomna tíð.
Þinn vinur
Kristján Sveinsson (Stjáni).
Útfararþjónusta
Davíðs Ósvaldssonar ehf.
Davíð Ósvaldsson
Útfararstjóri
S. 896 6988 / 553 6699
Óli Pétur Friðþjófsson
Útfararstjóri
S. 892 8947 / 565 6511
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samhug, stuðning og hlýju vegna veikinda og
andláts ástkærar dóttur okkar og systur,
GUÐBJARTAR LÓU SÆMUNDSDÓTTUR,
Lyngholti,
Dýrafirði.
Sérstakar þakkir færum við læknum og hjúkrunar-
fólki á Barnaspítala Hringsins og starfsfólki Heima-
hlynningar fyrir góða umönnun, trygglyndi, alúð og
virðingu.
Auðbjörg Halla Knútsdóttir, Sæmundur Kr. Þorvaldsson,
Salvör Sæmundsdóttir.
✝
Hjartkær maðurinn minn, sonur, bróðir, tengda-
sonur, mágur og frændi,
ÓLAFUR FINNUR BÖÐVARSSON,
Skógarási,
Kjalarnesi,
sem andaðist miðvikudaginn 5. desember,
verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju
mánudaginn 17. desember kl 11.00 fyrir hádegi.
Jarðsett verður í Saurbæ á Kjalarnesi.
Inga Magnúsdóttir,
Anna Margrét Sigurðardóttir, börn og barnabörn,
Elín Ágústsdóttir, börn og barnabörn
og aðrir aðstandendur.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
KRISTÍN ÞÓRÐARDÓTTIR
frá Brúsastöðum,
Suðurvangi 2,
verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju þriðjudaginn
18. desember kl. 15.00.
Fyrir hönd ættingja og vina,
Ingveldur S. Kristjánsdóttir,
Þórður K. Kristjánsson, Elma Cates,
Sigurður Kristjánsson, Anna J. Sigurbergsdóttir,
Valgerður Kristjánsdóttir, Rúnar Smárason,
Kristín Kristjánsdóttir, Magnús Þórðarson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
KRISTINN ÞORSTEINSSON,
fv. leigubifreiðarstjóri,
áður til heimilis að
Öldugötu 37,
Hafnarfirði,
sem lést að Hrafnistu í Hafnarfirði þriðjudaginn
4. desember, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í
Hafnarfirði þriðjudaginn 18. desember kl. 13.00.
Valgeir Kristinsson, Unnur Magnúsdóttir,
Erla Ásdís Kristinsdóttir, Atli Steingrímsson,
Ómar Þorvaldur Kristinsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
HJALTI RAGNARSSON
vélfræðingur,
Ársölum 1,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík
miðvikudaginn 19. desember klukkan 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð.
Sigríður E. Konráðsdóttir,
Konný R. Hjaltadóttir, Óskar Guðjónsson,
Hjalti Heiðar Hjaltason, Margrét Jónsdóttir,
Sigurður Ingvar Hjaltason, Magnea Helga Magnúsdóttir,
Aðalheiður Íris Hjaltadóttir, Árni Árnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg frænka okkar,
RAGNHEIÐUR HERMANNSDÓTTIR,
fv. deildarstjóri í
Landsbanka Íslands,
verður jarðsungin frá Hallgrímkirkju í Reykjavík
mánudaginn 17. desember næstkomandi kl. 13.30.
Systkinabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
LEO MUNRO,
Kristnibraut 6,
Reykjavík,
lést mánudaginn 10. desember á krabbameins-
deild Landspítalans við Hringbraut.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk deildar 11-E fyrir
einstaka umönnun og hlýtt viðmót.
Þökkum auðsýnda samúð.
Irmgard Toft,
Markús Alun Leosson, Edda Gudnason,
Brynja Leosdóttir, Snorri Guðjónsson,
Iðunn Leosdóttir,
Sindri Hansen,
David, Jan Eric og Bjarki Leó.
✝
Við þökkum auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og útför okkar ástkæru
ANDREU EY.
Sérstakar hjartans þakkir viljum við færa séra
Bjarna Karlssyni, séra Pálma Matthíassyni og
lofgjörðarhóp Samhjálpar.
Eyjólfur Ingi Andreuson,
Ingveldur Gísladóttir, Eyjólfur Pétursson
og systkini hinnar látnu.