Morgunblaðið - 16.12.2007, Síða 73
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 2007 73
Heilsa og lífstíll
Glæsilegur blaðauki um heilsu og lífstíl
fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 4. janúar.
Meðal efnis er:
• Hreyfing og líkamsrækt
• Heilsusamlegar uppskriftir
• Hreinsun líkamans - hollt eða óhollt
• Mataræði barna
• Er sykur hættulegur?
• Leiðir til slökunar
• Lífrænt ræktaður matur
• Meðferð gegn þunglyndi
og margt fleira.
Allar nánari uppl. veitir Katrín
Theódórsdóttir í síma 569 1105
eða kata@mbl.is
Auglýsendur!
Pantið fyrir kl. 16 mánudaginn 17. desember.
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Bólstaðarhlíð 43 | Farið verður 19.
des kl. 15.30 frá Bólstaðarhlíð 43 í
jólaljósaferð um Reykjanesið með
Hannesi rútubílstjóra. Kaffiveitingar
á veitingastaðnum Flösinni á Garð-
skaga. Verð 2.900 kr. Skráning á
skrifstofunni í síðasta lagi 18. des.
Félag eldri borgara í Kópavogi |
Skrifstofa FEBK Gullsmára 9 er opin
mánudaga og miðvikudaga kl. 10-
11.30, s. 554-1226. í Gjábakka er opið
á miðvikudögum kl. 15-16, s. 554-
3438. Félagsvist í Gullsmára á mánu-
dögum kl. 20.30, í Gjábakka á mið-
vikudögum kl. 13 og föstudögum kl.
20.30.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Dansleikur kl. 20, Caprí tríó leikur fyr-
ir dansi, síðasti dansleikur á þessu
ári.
Félagsstarf Gerðubergs | Gerðu-
bergskórinn syngur við messu í Fella-
og Hólakirkju kl. 14, á eftir eru kaffi-
veitingar í safnaðarheimilinu. Síðdeg-
is á morgun syngur Gerðubergskór-
inn jólalög o.fl. í Duushúsi í Keflavík, á
leið sinni ,,ljósarúnt“ í Reykjanesbæ.
Uppl. í s. 575-7720 og wwwgerdu-
berg.is
Hæðargarður 31 | Aðventuferð 17.
des. kl. 12.45, í Listverkahúsið Englar
og fólk á Vallá á Kjalarnesi. Á eftir er
hlaðborð í Draumakaffi. Fararstjóri er
Laufey Jónsdóttir. Uppl. 568-3132.
Korpúlfar, Grafarvogi | Á morgun
mánudag er ganga í Egilshöll kl. 10.
Kirkjustarf
Fríkirkjan Kefas | Jólaskemmtun
sunnudagaskólans kl. 11. Sungið,
dansað kringum jólatré og skemmt-
un. Vitnisburðarsamkoma kl. 14. Á
samkomunni verður lofgjörð og
barnastarf. Að henni lokinni verður
kaffi og samfélag. Gjafir til sölu í
verslun kirkjunnar.
Háteigskirkja | Aðventusöngvar við
kertaljós kl. 20. Einsöngur Signý Sæ-
mundsdóttir. Sálmar og söngvar
tengdir aðventunni sungnir af kór og
söfnuði undir stjórn Douglas A.
Brotchie. Veitingar í safnaðarheim-
ilinu á eftir. Aðgangur ókeypis.
Kolaportið | Kolaportsmessa í Kaffi
Port kl. 14. Frá kl. 13.30 leikur Þor-
valdur Halldórsson jólalög og sálma
um leið og fyrirbænum er safnað.
Prestar, djáknar og sjálfboðaliðar
leiða stundina. Miðborgarstarfið.
95ára afmæli. Á morgun,mánudaginn 17. desember,
verður Elísabet Reykdal á Setbergi
við Hafnarfjörð níutíu og fimm ára.
Í tilefni afmælisins tekur Elísabet á
móti ættingjum og vinum í Skút-
unni, Hólshrauni 3, Hafnarfirði, á
milli kl. 17 og 19 á afmælisdaginn
og vonast hún til að sjá sem flesta
ættingja og samferðamenn.
Hlutavelta | Þessar ungu
stúlkur á Akureyri héldu
tombólur og söfnuðu
25.656 kr. sem þær af-
hentu síðan Rauða kross-
inum. Þær heita: Sunna
Rós Guðbergsdóttir, Ey-
dís Rachel Missen, Tanja
Freydís L. Hilmarsdóttir,
Hrafnhildur Lára Hrafns-
dóttir, Marta Gréta
Magnúsdóttir og Helena
Ýr Pálsdóttir.
dagbók
Í dag er sunnudagur 16. desember, 350. dagur ársins 2007
Orð dagsins: Ef einhvern ykkar brestur visku, þá biðji hann Guð, sem gefur öllum örlátlega og átölulaust, og honum mun gefast. (Jak. 1, 5.)
Hjálparsími Rauða krossins1717 er opinn allan sólar-hringinn, alla daga. Elfa Dögg S. Leifsdóttir
er verkefnisstjóri Hjálparsímans:
„1717 er opinn öllum sem þurfa á að-
stoð og skilningi að halda,“ segir hún.
„Margir hringja til að leita upplýsinga
um hvar hægt sé að fá frekari aðstoð
við ýmsum vandamálum sem upp geta
komið, og eins eru margir sem hringja
út af einmanaleika og þykir einfaldlega
gott að fá að deila aðeins hugsunum
sínum með einhverjum sem er reiðubú-
inn að hlusta.“
Starf Hjálparsímans 1717 er borið
uppi af hópi 80 sjálfboðaliða, auk
starfsmanna sem standa vaktina jafnt
að degi sem nóttu: „Sjálfboðaliðarnir
okkar koma úr ýmsum áttum, með mis-
munandi bakgrunn, og margir eru sér-
fræðingar á sínu sviði. Þeir eru vand-
lega valdir og þjálfaðir, og er öll aðstoð
sem veitt er í Hjálparsímanum í fullu
nafnleysi og trúnaði,“ segir Elfa Dögg.
„Síminn hefur verið bakhjarl Hjálp-
arsímans frá upphafi, og með þeirra
stuðningi er ókeypis að hringja í 1717
úr öllum símum innanlands, einnig far-
símum. Þá kemur hringing í 1717 ekki
fram á símreikningum.“
Elfa Dögg segir sjálfboðaliða Hjálp-
arsímans sinna fjölbreyttum erindum
frá breiðum hópi fólks: „Auk þess að
búa að góðri þjálfun höfum við mjög
góða handbók sem uppfærð er reglu-
lega með helstu úrræðum sem eru í
boði hér og þar í samfélaginu, margir
vita ekki af þeim möguleikum sem
þeim standa til boða til að vinna úr
vandamálum sínum.“
Jól og áramót geta verið mörgum
erfiður tími, og segir Elfa Dögg að
Hjálparsímanum berist mörg símtöl á
þessum tíma árs: „Einkum hringja til
okkar einstaklingar sem eiga í vanda-
málum með samskipti sín við ættingja
og heimilisfólk, og fólk sem glímir við
einmanaleika eða hefur orðið fyrir
missi á árinu. Sjálfboðaliðar Hjálp-
arsímans 1717 eru alltaf til taks, til
huggunar, hughreystingar og stuðn-
ings,“ segir hún.
Þess má geta að fljótlega eftir ára-
mót verður haldið nýtt nýliðanámskeið.
Þeir sem áhuga hafa á að leggja verk-
efninu lið geta fundið nánari upplýs-
ingar á heimasíðu Rauða kross Íslands,
á slóðinni www.redcross.is.
Samfélag | Hjálparsími Rauða krossins 1717 er opinn alla daga ársins
Stuðningur og trúnaður
Elfa Dögg S.
Leifsdóttir fæddist
í Reykjavík 1975.
Hún lauk stúdents-
prófi frá FB 1995
og BA-prófi í sál-
fræði frá HÍ 2000.
Elfa Dögg starfaði
sem rekstrarstjóri
hjá Samtökum
auglýsenda um nokkurt skeið, en hóf
störf hjá Reykjavíkurdeild Rauða
krossins árið 2004, fyrst sem umsjón-
armaður sjálfboðaliða Hjálparsímans
1717, og sem verkefnisstjóri frá 2006.
Elfa Dögg er gift Ómari Erni Jónssyni
viðskiptafræðingi og eiga þau börnin
Dag Stein og Örnu Ösp.
Tónlist
Dómkirkjan | Jólatónleikar kl. 17. Sópransöngkon-
urnar Hulda Guðrún Geirsdóttir og Kristín R. Sig-
urðardóttir flytja hátíðlega dúetta, sönglög og aríur,
bæði gamalt og nýtt. Julian Hewlett spilar á píanó-
ið. Miðar seldir við innganginn og kosta 1.500 kr.
Myndlist
Energia | Sölusýning listamannsins Mýrmanns,
sem býr og starfar í Hveragerði, stendur yfir. Þar
gefur að líta fimm ný málverk. Þema sýningarinnar
er óveður í aðsigi. Þetta er níunda sýning hans og
stendur hún út janúar. www myrmann.com.
Bækur
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Síðasti upplestur á
aðventunni hefst kl. 16. Eftirfarandi rithöfundar
lesa: Jón Kalman – Himnaríki og helvíti; Vigdís
Grímsdóttir – Sagan um Bíbí Ólafsdóttur; Pétur
Gunnarsson – ÞÞ Í fátæktarlandinu; Ólafur Ragn-
arsson – Til fundar við skáldið Halldór Laxness,
Guðmundur Ólafsson leikari les. Aðgangur er
ókeypis.
Börn
Dimmuborgir | Jólasveinarnir taka á móti gestum á
Hallarflöt í Dimmuborgum í Mývatnssveit alla daga í
desember kl. 13-15.
Kvikmyndir
MÍR-salurinn | Kvikmyndin „Hnotubrjóturinn“,
ballett við tónlist Tsjaíkovskíjs, verður sýnd í MÍR,
Hverfisgötu 105, í dag, kl. 15. Myndin er byggð á
sviðsetningu Bolshoj-leikhússins í Moskvu með
marga af frægustu dönsurum leikhússins í aðal-
hlutverkum, m.a. J. Maxímovu, V. Vasilijev, N. Pav-
lovu og V. Gordejev.
Fréttir og tilkynningar
AA-samtökin | Neyðarsími AA-samtakanna er
895-1050.
ÞÚSUNDIR múslima umkringja Kaabuna í moskunni miklu í Mekka. Yfir milljón múslima hafa komið til
Sádi-Arabíu í pílagrímsferð undanfarna daga, en mikil öryggisgæsla er í landinu af ótta við öfgasamtök
bókstafstrúarmanna.
Fjölmennt til Mekka
Reuters
Fréttir á SMS
80ára afmæli. Á morgun,mánudaginn 17. desember,
verður Harry Sönderskov járn-
smiður áttatíu ára. Af því tilefni
tekur hann á móti gestum í dag,
sunnudaginn 16. desember, í
samkomusal Sólvangs í Hafn-
arfirði milli kl. 15 og 18.