Morgunblaðið - 16.12.2007, Side 81

Morgunblaðið - 16.12.2007, Side 81
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „ÉG hef verið að teikna mikið að undanförnu og ákvað bara að velja fjórar myndir og gera þær að jóla- kortum,“ segir Vilhelm Anton Jónsson, Villi naglbítur, sem gefur út ansi óhefðbundin jólakort fyrir þessi jól. Eins og sjá má á kort- unum hér til hliðar er um afar svartan húmor að ræða, enda við- urkennir Villi fúslega að kortin séu ekki beint í anda hátíðar ljóss og friðar. „Ég ákvað bara að gera jólakort af því það eru að koma jól. Ég hefði alveg getað gert þetta að einhverjum öðrum kort- um, en það er bara ekkert annað kortatímabil hér á landi.“ Aðspurður segist Villi vissulega orðinn svolítið þreyttur á hinum hefðbundnu jólakortum. „Mér finnst sum kort hálfklén og þreytt. En sumir hafa gam- an af myndum af frosnum stráum á Suðurlands- undirlendinu, ég hef það ekkert sérstkalega. En það má kannski segja að það sé meiri hátíð og friður yfir þeim kortum en þessum.“ Athygli vekur að á tveimur myndum af fjórum virðist að- alpersónan meira en lítið ósátt við tengdafjölskyldu sína. Villi segir það þó alls ekki eiga við um hann sjálfan. „Það má alls ekki taka það þannig, maður gæti aldrei gert svona án þess að eiga fullkomna tengdafjölskyldu. Mín tengda- fjölskylda er eins yndisleg og hægt er. En hver á ekki vin sem þolir ekki tengdapabba sinn, eða vinkonu sem þolir ekki tengda- mömmu sína?“ Táraðist og öskraði Myndirnar minna óneitanlega um margt á teiknimyndasögur Hugleiks Dagssonar, enda segist Villi vissulega vera undir áhrifum frá honum. „Bæði frá honum og öðrum sem eru að gera svona ein- faldar svartar teikningar. Þetta er náttúrlega allt öðruvísi myndir en Hugleikur er með þótt húmorinn sé kannski svipaður. En Hug- leikur er auðvitað algjör snill- ingur, ég man þegar ég las fyrstu bókina hans þegar ég var í klipp- ingu. Ég táraðist og öskraði, mér fannst hann svo fyndinn.“ Aðspurður segir Villi að þetta séu kannski ekki kort til að senda ömmu sinni og afa. „Kærastan mín benti mér á að þeir sem hafa húmor fyrir þessu séu akkúrat þeir sem senda ekki jólakort, þannig að það er svolítið dauða- dæmt að gera þessi kort,“ segir hann og hlær. „En ég held að þetta sé upplagt handa fólki sem maður þekkir vel og mjög flott handa fjarskyldum ættingjum sem maður verður að senda kort því annars fer einhver í fýlu við mann.“ Hægt er að kaupa jólakortin með því að senda tölvupóst á jola- kort@gmail.com og verða þau þá send í pósti. Þá segist Villi einnig ætla að reyna að koma þeim í verslanir í miðborginni á allra næstu dögum. Eitt kort kostar 500 krónur, en öll fjögur eru á 1.500. Svartur jólahúmor Jólakort Villa naglbíts eru allt annað en hefðbundin Vilhelm Anton Jónsson »Myndirnar minna óneit- anlega um margt á teiknimyndasögur Hugleiks Dags- sonar, enda segist Villi vissulega vera undir áhrifum frá honum. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 2007 81 Salurinn LAUGARDAG 12. JANÚAR 2008 KL. 17 TÍBRÁ: NÝÁRSTÓNLEIKAR HULDA BJÖRK OG SALONSVEIT SIGURÐAR INGVA SNORRASONAR. ÖRFÁ SÆTI LAUS Miðaverð 2000/1600 kr. MIÐASALAN ER OPIN VIRKA DAGA FRÁ KL. 10 – 16 FRAM AÐ JÓLUM SMELLTU Á NÝJU HEIMASÍÐUNA WWW.SALURINN.IS OG SKOÐAÐU FALLEGU GJAFAKORTIN FRÁBÆR JÓLAGJÖF! GLEÐILEG JÓL ÞÖKKUM ÁNÆGJULEGAR SAMVERUSTUNDIR Á ÁRINU Ekki er svo bara að þeirgerbyltu poppinu, og þaðoftar en einu sinni, held-ur liggur eftir þá fyrsta tónlistarmyndbandið, ef svo má segja, kvikmyndin A Hard Day’s Night. Kvikmynd númer tvö, Help!, sem kom nýverið út mikið end- urbætt, var ekki eins vel heppnuð, en býsna góð engu að síður. Richard Lester leikstýrði A Hard Days Night og hefur hann lýst því hvernig myndin hafi verið unnin á sex vikum og frumsýnd þremur mánuðum eftir fyrstu tökur. Eins og hann rekur söguna fékk hann ekki nema hálfa fjórðu viku til að klippa myndina, vegna þess að útgefandi sveitarinnar taldi að hún yrði búin að syngja sitt síðasta á næstu mán- uðum. Svo mikil var spennan fyrir myndinni að hún var búin að borga sig fyrir frumsýningu – fyrirfram- pantanir á plötunni með tónlist úr myndinni slógu öll met. Almennilegt handrit með söguþræði A Hard Days Night var frumsýnd árið 1964 og ári síðar var Lester ráð- inn til að gera aðra Bítlamynd. Nú átti að leggja aðeins meira í verkið, vinna með almennilegt handrit með söguþræði og taka myndina í lit. Hann fékk að velja úr níu lögum og tók sjö þeirra í myndina. Söguþráðurinn í myndinni er í meira lagi fjarstæðukenndur, en öðrum þræði átti hún að vera skop- stæling á James Bond-myndunum, sem nutu þá gríðarlegra vinsælda, og eins hylling Andasúpu Marx- bræðra. Sagan er nokkurn veginn á þá leið að Ringo Starr kemst yfir hring sem sem er helgur meðal aust- ræns trúflokks (til að styggja ekki indverska aðdáendur var orðið „austrænn“ notað í stað indverskur). Óþokkagengi er gert út af örkinni til að heimta hringinn, en þegar kemur í ljós að Ringo nær honum ekki af sér leggur hann á flótta og félagar hans sömuleiðis. Eltingarleikurinn nær meðal annars til svissnesku Alpanna og Bahamaseyja. Þó að ákveðið hafi verið að stæla Marx-bræður og James Bond segir Lester raunar (í viðtali sem er á aukadiski í pakkanum) að til hafi staðið að gera rökrétt framhald af A Hard Days Night, sem myndi þá byggjast á því að sýna daglegt líf þeirra félaga en á þeim tíma hafi líf- erni þeirra verið slíkt að það hafi ekki verið sýningarhæft. Ævintýralegur hljómur Lögin í myndinni eru Help!, You’re Gonna Lose That Girl, Ticket to Ride, Another Girl, You’ve Got to Hide Your Love Away, The Night Before og I Need You, sem flest eru sígild Bítlalög. Einnig er A Hard Day’s Night flutt af indverskri hljómsveit og önnur hljómsveit spil- ar I’m Happy Just to Dance with You í einu atriðinu. Vert er að vekja athygli manna á því að hljómurinn á henni er ævintýralega góður, enda voru lögin endurhljóðblönduð fyrir 5,1 víðóm og hafa ekki hljómað bet- ur. Bítlarnir léku eðlilega sjálfir í myndinni, eða voru á staðnum í það minnsta, því sagan segir að þeir hafi reykt svo mikið af kannabisefnum á þeim tíma að oftar en ekki hafi þeir verið eins og flissandi fábjánar og reyndi mjög á þolrifin hjá leikstjóra og meðleikurum. Meðal annarra leikara í myndinni voru Leo McKern, Eleanor Bron, Victor Spi- netti, Roy Kinnear og Patrick Car- gill. Ekki er nóg með að hljóðið var endurunnið svo um munar, heldur er myndin sjálf mjög mikið unnin eftir upprunalegum negatívum til að ná fram réttri litamettun og skerpu. Á aukadiski eru auglýsingar, heimild- armynd um gerð myndarinnar, önn- ur mynd um vinnsluna á endurútgáf- unni, viðtal við stafsmenn og leikara og eins viðtal við leikkonuna Wendu Richard, en atriði með henni komst ekki í endanlega gerð myndarinnar. Það má sjá á aukadiskinum. Sérstök viðhafnarútgáfa Myndin er fáanleg í tveimur út- gáfum; venjulegri tveggja diska út- gáfu og svo er líka sérstök viðhafn- arútgáfa í boxi. Þar fylgir með handrit Richards Lesters með at- hugasemdum hans í spássíum, bí- óplakat og ýmislegt fleira dót. Bítlarnir voru ekki ýkja ánægðir með myndina sjálfir og Lennon sagði það eitt sinn að þeir hefðu í raun verið statistar í myndinni. Nærtæk skýring á því er að þeir voru svo skakkir að það var lítið hægt að vinna með þeim, það var til að mynda aldrei hægt að kvikmynda neitt af viti eftir hádegi, en eins og þeir rekja söguna voru þeir þá þegar líka orðnir þreyttir á Bítlaæðinu og Lennon lét þau orð falla eitt sinn að titillag myndarinnar hefði verið raunverulegt kall á hjálp. Hjálp í við- hafnarútgáfu TÓNLIST Á SUNNUDEGI Árni Matthíasson Stjörnur Útúrreyktir flissandi snillingar. Það er merkilegt að hugsa til þess í dag að ein hljómsveit skuli hafa haft önnur eins áhrif á menningarsöguna og Bítlarnir og það á svo stuttri ævi; sveitin starfaði í raun sem hljómsveit aðeins í fimm ár eða þar um bil, þó hún hafi hang- ið saman aðeins lengur, en hafði þó meiri áhrif en dæmi eru um fyrr og síðar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.