Morgunblaðið - 16.12.2007, Page 87

Morgunblaðið - 16.12.2007, Page 87
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 2007 87 N æ st Þessar skemmtilegu og spennandi sögur hins kunna höfundar Enid Blyton fjalla um nokkur börn og vini þeirra úr dýraríkinu sem lenda í ótrúlegustu ævintýrum. ÆVINTÝRA höllin Hér kemur meira af Fimm-bókunum og Ævintýra-bókunum. Nú koma út tvær nýjar sögur … og sem fyrr dregur til spennandi tíðinda hjá unga fólkinu. En börnin eru snarráð og kjarkmikil og fullfær um að ráða fram úr óvæntum ævintýrum. KLASSÍSKAR BARNABÆKUR Sími 562 2600Endurútgáfa bókaflokkanna hófst 2005. á flótta Fimm Kíkí ... ÞAÐ var fyrir rælni sem Einar Bárðarson hélt fyrstu tónleikana til styrktar krabbameinssjúkum börnum. Háskólabíó stóð autt einn daginn á milli jóla og nýárs vegna einhvers klúðurs og Einari var boðið að gera eitthvað við daginn. Þá hafði hann stuttu áður upplifað það að frændi hans ungur var heimtur úr helju krabbameinsins og varð Einar eftir það staðráðinn í að beita sér fyrir velfarnaði ann- arra í hans stöðu með öllum ráð- um. Fyrstu tónleikarnir voru haldnir árið 1998 og síðan þá hafa þeir verið árlegur viðburður. Þeim hefur vaxið fiskur um hrygg allar götur síðan en fjöldi lista- manna sem þátt taka í ár hefur aldrei verið meiri. Þeir sem fram koma eru Luxor, Dísella, Nylon, Bubbi Morthens, Magni og Á móti sól, Sprengjuhöllin, Guðrún Gunn- ars og Friðrik Ómar, Garðar Thór Cortes, Land og synir, Klaufarnir, Stebbi og Eyfi, SSSÓL, Birgitta Haukdal, HARA og Ragnheiður Gröndal. Þess má geta að þetta er í níunda sinn sem Sálin hans Jóns míns kemur fram á tónleikunum og hefur hún ekki hikað við að brjóta upp sínar frægu „pásur“ fyrir málstaðinn. Yfir tólf millj- ónir króna hafa safnast saman undanfarin ár og allir listamenn- irnir gefa vinnu sína, auk tækni- manna og þeirra fyrirtækja sem að skipulagningunni koma. Tón- leikarnir fara fram sunnudaginn 30. desember og hefjast stundvís- lega kl. 16. Þeir aðilar sem koma að skipulagningu viðburðarins eru Stöð 2, Bylgjan, EB hljóðkerfi, Concert, midi.is og Háskólabíó. Miðasala er hafin á Midi.is og á útsölustöðum þeirra en þeir gefa alla sína vinnu í kringum tón- leikana og ekkert miðagjald er lagt ofan á söluna. Miðaverð er 2.500 kr. Til styrktar krabbameinssjúkum börnum Morgunblaðið/Eggert Guðrún Gunnarsdóttir og Friðrik Ómar. Morgunblaðið/Kristinn Stúlknasveitin Nylon. Eggert Jóhannesson Magni í Á móti sól. Morgunblaðið/Eggert Hara-systur. Morgunblaðið/Eggert Bubba Morthens Morgunblaðið/Eggert Birgitta Haukdal Morgunblaðið/Eyþór Ragnheiður Gröndal Stórtónleikar til styrktar Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna verða haldnir í níunda sinn 30. desember í Háskólabíói. Það er Einar Bárðarsonar sem á veg og vanda af tónleikunum Morgunblaðið/Eggert Hljómsveitin Sprengjuhöllin skemmtir. Morgunblaðið/Árni Sæberg Hreimur í Landi og sonum. Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Garðar Thór Cortes óperusöngvari

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.