Morgunblaðið - 20.12.2007, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2007 11
FRÉTTIR
Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur
jmv@mbl.is
ÍBÚAR í nágrenni við Keilugranda 1
í Reykjavík eru í grunninn mótfallnir
þeim tillögum sem settar hafa verið
fram um byggingu íbúðarhúsnæðis á
reitnum.
Gunnar Finnsson, talsmaður íbúa
í nágrenni reitsins, segir nýjar til-
lögur ekki breyta afstöðu íbúanna,
en á fimmta hundrað þeirra mót-
mæltu fyrri tillögunni. Húsin séu
enn of há og fyrirferðarmikil.
Tvöfalt miðað við aðalskipulag
Sagt var frá nýju tillögunni í
Morgunblaðinu í gær, en hún barst
skipulagsráði fyrir skömmu. Sam-
kvæmt henni hefur hæsti hluti fyr-
irhugaðrar íbúðabyggingar verið
lækkaður úr 9 hæðum í 8 og annar
hluti hennar lækkaður úr 8 hæðum í
6. Íbúðafjölda fækkar því úr 130 í 103
íbúðir.
„Byggt er á 1,5 m upphækkun svo
hæðin er nær 9 og 7 hæðum, borgin
hafði áður sett fimm hæða hámark á
byggingu húsa á reitnum og hafnað
beiðni um 7 hæða hús sökum kvart-
ana um skuggavarp og sjónmengun.
Fjöldi íbúða er meira en tvöfaldur
miðað við það sem kemur fram í að-
alskipulagi, en þar er reiknað með 50
íbúðum að hámarki,“ segir Gunnar.
Á fundi í skipulagsráði hinn 19.
september var samþykkt tillaga um
að breyta aðalskipulagi reitsins. Þá-
verandi minnihluti í borgarstjórn
greiddi atkvæði gegn tillögunni og
lét bóka eftirfarandi: „Við leggjumst
gegn auglýstri tillögu að breytingu á
aðalskipulagi […] Ekki verður séð að
breytingin þjóni íbúum í nágrenninu
eða hagsmunum grenndarsam-
félagsins. Íbúarnir máttu gera ráð
fyrir uppbyggingu sem nemur 50
íbúðum á lóðinni en ekki 130 íbúðum.
[…] Svo virðist sem hér sé verið að
þjóna hagsmunum eigenda lóðarinn-
ar, verktökum og þeim sem hafa
væntingar um hagnað undir yfirskini
þéttingar byggðar.“
Íbúar vonast til að ekki hafi orðið
hugarfarsbreyting eftir borgar-
stjórnarskiptin að sögn Gunnars og
að tekið verði tillit til óska þeirra við
athugun nýju tillögunnar. „Við ef-
umst ekki um að minnihlutinn hafi
mælt af heilum hug á sínum tíma, við
viljum einfaldlega að aðalskipulagið
verði virt eins og það er,“ segir hann
og bendir á að samþykkt skipulags-
ráðs frá 19. september hafi enn ekki
hlotið staðfestingu borgarráðs og
skipulagsstofnunar og hafi því í raun
ekkert gildi. „Þess vegna kemur
okkur á óvart að verið sé að ræða
deiluskipulag á grundvelli óstað-
festrar tillögu um breytingu á aðal-
skipulagi,“ segir Gunnar.
Vonast eftir fundi
Íbúar hafi þegar sent nýjum borg-
aryfirvöldum bréf og vonast eftir að
fundur verði haldinn með þeim og
skipulagsstjóra Reykjavíkurborgar
á næstunni.
Ekki náðist í Svandísi Svavars-
dóttur, formann skipulagsráðs,
vegna málsins.
Óánægja vegna
byggingartillagna
Íbúar í nágrenni Keilugranda 1 vilja að aðalskipulag verði virt
Ullarjakkar
og kápur
Verð 9.990
Stærðir 34-46
Laugavegi 54
sími 552 5201
Hlý jólagjöf
Bókin SALTKEIMUR er óskabók sjávarplássanna,
enda sú eina um árabil er fjallar um slíkt efni og
óskabók þeirra er hrærast með sjómönnum.
Hún er 280 bls. og hefur að geyma m.a. 11
smásögur sem flestar gerast á sjó og tengjast sjó.
Fjallar um sviplega slys, ástir, áfengi og gleðihverfi
þýskara hafnarborga.
MÁNABERGSÚTGÁFAN:
Fréttir í tölvupósti