Morgunblaðið - 20.12.2007, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2007 17
EINTAK af Magna Carta, skil-
málaskrá sem Jóhanni konungi
landlausa var gert að undirrita 15.
júní 1215 eftir uppreisn lénsaðals-
ins gegn óstjórn og skattheimtu
Englandskonungs, var selt á upp-
boði hjá Sotheby’s í New York í
fyrrakvöld á 21,3 milljónir Banda-
ríkjadala, 1.346 milljónir króna.
Var eintakið, sem er eitt af 17 ein-
tökum sem eru til af skjalinu, keypt
af bandarískum lögfræðingi, David
Rubenstein. Mjög sjaldgæft er að
skjal sem þetta sé selt á uppboði og
er líklegt að þetta sé eina eintakið
sem muni nokkurn tíma koma í sölu
á uppboði. Tvö eintök af Magna
Carta eru til utan Bretlands og er
hitt í Ástralíu. Hagnaður af sölunni
mun renna til góðgerðarmála á
vegum milljarðamæringsins og
fyrrverandi forsetafram-
bjóðandans Ross Perots. Eintakið
sem selt var á uppboðinu var í eigu
Perots en stofnun á hans vegum
keypti það árið 1984.
Magna Carta er latína og þýðir á
íslensku hin mikla skrá. Þó að skjal-
ið hafi verið undirritað árið 1215 þá
öðlaðist það ekki lagagildi í Eng-
landi fyrr en 1297. Stjórnarfarslegt
gildi Magna Carta fólst fyrst og
fremst í skírskotun þingsins til
hennar í valdabaráttu konungs og
þings á 17. öld og í raun tryggði
hún aðeins réttindi aðals og kirkju.
Metverð fyrir eintak af Magna Carta
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
FULLTRÚADEILD Bandaríkja-
þings samþykkti í gær mjög um-
fangsmikil lög um orkumál en meg-
intilgangur þeirra er að draga úr
olíunotkun og auka framleiðslu líf-
ræns eldsneytis, etanóls, úr öðru
hráefni en korni. Þá er stefnt að því
að hætta alveg notkun glóðarpera.
Þetta er í fyrsta sinn í 32 ár, að
Bandaríkjaþing bindur í lög
ákveðnar kröfur um eldsneytisnotk-
un bifreiða en frá 2020 verður bann-
að að aka bifreið, sem ekki kemst að
minnsta kosti 15 km á bensínlítran-
um. Hefur George W. Bush forseti
verið andvígur lagasetningu um
þetta hingað til en hefur nú skipt um
skoðun og ætlar að undirrita lögin.
Þau þýða hins vegar það, að nú hillir
undir endalokin fyrir dollaragrín og
aðra bensínháka í Bandaríkjunum.
Nýju lögin voru samþykkt í öld-
ungadeildinni í síðustu viku og hafa
því verið samþykkt í báðum deildum.
Var jafnvel búist við því í gær, að
Bush myndi undirrita þau þá um
daginn.
Etanólframleiðsla
verður sexfölduð
Stefnt er að því að minnka elds-
neytisnotkun um 40% og draga sem
því nemur úr olíuinnflutningi. Þá á
að sexfalda framleiðslu á etanóli
fram til ársins 2022. Fram að þessu
hefur það aðallega verið framleitt úr
maís en nú verður lögð áhersla á að
nýta fyrst og fremst annað lífrænt
efni, sem til fellur í landbúnaði, til
dæmis timburafganga, gras og þess
háttar.
Auk þessa kveða lögin á um, að
glóðarperan gamla verði lögð á hill-
una á árunum 2012 til 2014 og í stað-
inn notaðar sparperur, sem eru að
vísu dýrari í framleiðslu en marg-
borga það með miklu meiri endingu
og miklu minni rafmagnsnotkun.
Áætlað er, að um 2020 muni nýju
perurnar spara Bandaríkjamönnum
um 800 milljarða ísl. kr. á ári. Sparn-
aðurinn svarar til framleiðslu 60
meðalstórra raforkuvera og mun
minnka koltvísýringsmengun um
100 milljónir tonna árlega.
„Í þessu máli hefur kristallast bar-
áttan milli gærdagsins og morgun-
dagsins. Nýju lögin marka tímamót,
hvernig sem á er litið,“ sagði demó-
kratinn Nancy Pelosi, forseti full-
trúadeildarinnar, en hún tók mikinn
þátt í lagasmíðinni.
Stóðu demókratar sem einn mað-
ur að baki henni en meðal repúblik-
ana voru skoðanir nokkuð skiptar.
Þrátt fyrir það greiddu 95 fulltrúa-
deildarþingmenn þeirra lögunum at-
kvæði sitt.
Minni andstaða
í bílaiðnaðinum
Eitt meginatriði laganna er sú
krafa, að bílaiðnaðurinn auki elds-
neytisnýtni bifreiðanna um 40% en
demókratar segja, að það muni
spara venjulegum bíleiganda um
60.000 kr. á ári. Þá gera þeir ráð fyr-
ir, að eldsneytisþörfin muni hafa
minnkað um fjórar milljónir fata á
dag um 2030 en nú flytja Banda-
ríkjamenn inn frá Mið-Austurlönd-
um um tvær milljónir olíufata á dag.
Bílaframleiðendur hafa alltaf bar-
ist hart gegn auknum kröfum um
sparneytni og ekki síst með þeim
rökum, að þær mundu draga úr fjöl-
breytni framleiðslunnar og fækka
störfum við hana. Þeir eru þó farnir
að átta sig á því hverjum klukkan
glymur og hafa ekki haldið uppi
miklu andófi að þessu sinni.
AP
Tímamót Þingmenn fagna samþykkt nýju orkulaganna. Fyrir miðri mynd
eru þau Harry Reid og Nancy Pelosi, forsetar í öldunga- og fulltrúadeild.
Lög um aukna
sparneytni
Hillir undir endalok bensínhákanna
JAPANIR gerðu í vikunni vel
heppnaða tilraun með bandarísk-
hannaða eldflaug sem nota á til að
skjóta niður árásarflaugar. Er um
að ræða þátt í sameiginlegu átaki
ríkjanna tveggja til að koma upp
gagnflaugakerfi gegn hugsanlegum
árásum frá Norður-Kóreu.
Umrætt kerfi getur einnig
gagnast Taívönum sem búa við stöð-
uga ógn frá Kína. Kínverjar hafa
sett upp hundruð árásarflauga á
meginlandinu andspænis Taívan og
hafa hótað að beita valdi lýsi eyj-
arskeggjar yfir fullu sjálfstæði. Kín-
verjar tjáðu sig um tilraun Japana
með varfærnislegum hætti. „Við
vonum að aðgerðir Japana muni
stuðla að friði og stöðugleika á
svæðinu og verði til að ýta undir
gagnkvæmt traust milli þjóðanna,“
sagði talsmaður utanríkisráðuneyt-
isins í Peking, Qin Gang.
Gagnflaug
virkaði
!
"#
$
% &
"#
$ '
&
$
&
( &
(
)
(
(
&
$
*
&
$
'
!
( +
$
+,-
+
$