Morgunblaðið - 20.12.2007, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2007 25
SUÐURNES
Reykjanesbær | Í tilefni opnunar á
nýju útibúi Glitnis í Reykjanesbæ
færðu forsvarsmenn bankans Lista-
safni Reykjanesbæjar málverk eftir
Gunnlaug Blöndal. Málverkið sýnir
stúlkur við saltfiskvinnslu og hefur
verið í eigu bankans um áraraðir og
verið í húsnæði bankans í Hafnar-
götu 60 í Reykjanesbæ í liðlega
fjörutíu ár.
Nýja útibúið er til húsa í Hafn-
argötu 91.
Verkið er nú til sýnis á jólasýn-
ingu Listasafnsins í listasalnum í
Duushúsum. Á sýningunni „Myndin
í stofunni“ er sýnishorn verka
Listasafns Reykjanesbæjar og einn-
ig verk úr eigu Byggðasafns
Reykjanesbæjar. Sýningin stendur
til 13. janúar næstkomandi.
Unnur Steinsdóttir, fyrrverandi
útibússtjóri Glitnis, afhenti mál-
verkið en útibúið hefur stutt Lista-
safn Reykjanesbæjar frá upphafi.
Nú er í gildi samningur við bank-
ann sem gerir safninu kleift að hafa
endurgjaldslausan aðgang að safn-
inu.
Gáfu málverk eftir
Gunnlaug Blöndal
Saltfiskstúlkur Forsvarsmenn útibús Glitnis afhentu Listasafni Reykja-
nesbæjar málverkið „Saltfiskstúlkur“ eftir Gunnlaug Blöndal.
Sandgerði | Knattspyrnuhús rís á
íþróttasvæði Knattspyrnufélagsins
Reynis í Sandgerði á næstu tveimur
árum. Gert er ráð fyrir því að Eign-
arhaldsfélagið Fasteign hf., sem
Sandgerðisbær er aðili að, byggi
húsið og Sandgerðisbær leigi það og
reki.
Bæjarstjórn Sandgerðisbæjar
samþykkti fjárhagsáætlun fyrir
komandi ár á fundi sínum í gær. Þar
er gert ráð fyrir fjölnota íþróttahús-
inu. Um er að ræða yfirbyggðan
gervigrasvöll ásamt hlaupabrautum
og búningsaðstöðu og áhorfendaað-
stöðu fyrir íþróttavöll Reynis. Sam-
kvæmt upplýsingum Sigurðar Vals
Ásbjarnarsonar bæjarstjóra verður
nýja höllin byggð með sama fyrir-
komulagi og Akraneshöllin nema
hvað hún verður mun minni í upp-
hafi. Húsið verður 72 metrar á
breidd og 70 á lengd en gert verður
ráð fyrir möguleika á lengingu húss-
ins þegar þörf verður á vegna fjölg-
unar íbúa. Húsið verður óupphitað.
Áætlað er að höllin kosti 300 til
350 milljónir kr. Spurður að því
hvernig staðið verði undir leigu og
rekstri nýju hallarinnar segir Sig-
urður Valur að vegna sölu Sand-
gerðisbæjar á hlut í Hitaveitu Suð-
urnesja hafi sveitarfélagið góðar
tekjur. Það hjálpi til við að standa
undir þessum kostnaði. Byggingar-
nefnd sem skipuð er fulltrúum bæj-
arins og Reynis vinnur að undirbún-
ingi. Sigurður Valur segir að hafist
verði handa á næsta ári og stefnt að
því að taka húsið í notkun á árinu
2009.
Tvær flugur í einu höggi
Ástæðan fyrir því að ráðist er í
byggingu nýs íþróttahúss er sú að
íþróttastarfsemin hefur sprengt nú-
verandi íþróttahús utan af sér. Sig-
urður Valur segir að aðeins sé hægt
að sinna íþróttakennslu ásamt því
sem yngri flokkar Reynis í knatt-
spyrnu fái þar tíma. Aðrar íþrótta-
greinar komist ekki að og ekki held-
ur almennir íbúar með sína
íþróttaiðkun. Öll knattspyrnuiðkun
verður færð í Sandgerðishöllina og
þannig rýmt til fyrir öðrum greinum
í eldra húsinu. Þá er horft til frjáls-
íþróttastarfs í nýju höllinni og fleiri
greina.
Nú er unnið að stækkun íþrótta-
hússins með byggingu nýrrar sund-
laugar, þreksalar og eróbikksalar og
er gert ráð fyrir því að laugin verði
opnuð til kennslu í upphafi nýs árs
en síðar fyrir almenna notkun.
Nýtt íbúðarhverfi
Íbúum Sandgerðis hefur fjölgað
ört og það kallar á miklar fram-
kvæmdir við ný hverfi og tilheyrandi
þjónustu. Byggð er ein deild við leik-
skólann Sólborg og grunnskólinn
stækkaður. Þá verður á næsta ári
unnið að undirbúningi byggingar
nýs leikskóla og nýju íbúðarhverfi
sem rísa mun sunnan við íþrótta-
svæði Reynis. Þar verða hátt í 200
íbúðir. Vonast bæjarstjórinn til þess
að unnt verði að úthluta fyrstu lóð-
unum á vordögum. Segir hann að
mikil þörf sé á þessu hverfi því allar
lóðir sem í boði hafa verið í bænum
hafi verið seldar.
Íþrótta-
höll rís í
Sandgerði
Sandgerði | Fiskmarkaður Suður-
nesja hefur veitt fimm björgunar-
sveitum á starfssvæði sínu styrki.
Hver björgunarsveit fékk 200 þús-
und kr. Ellert Eiríksson stjórnarfor-
maður afhenti styrkina.
Þeir komu í hlut Björgunarsveit-
arinnar Suðurnesja í Reykjanesbæ,
Ægis í Garði, Sigurvonar í Sand-
gerði, Þorbjörns í Grindavík, Björg-
unarfélags Hornafjarðar og Björg-
unarfélags Ísafjarðar.
Styrkir björg-
unarsveitir
♦♦♦
á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri, Selfossi og
í Keflavík um jól og áramót 2007
* Skv. áfengislögum er óheimilt að hafa opið á sunnudögum.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
0
9
3
8
Afgreiðslutíma vínbúða um allt land má sjá á www.vinbud.is