Morgunblaðið - 20.12.2007, Page 32
neytendur
32 FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Mikill verðmunur var á jólamatn-
um milli verslana þegar verðlags-
eftirlit ASÍ kannaði verð í versl-
unum á höfuðborgarsvæðinu í
hádeginu í gær, miðvikudag.
Reyndist verðmunur mikill á
vörutegundum sem og milli ein-
stakra verslana. Lægsta verðið var
oftast í Bónus, eða í 28 tilfellum af
37 en hæsta verðið var oftast í
Samkaup Úrval eða í 27 tilfellum.
Innan við fjögurra
króna verðmunur
Mestur verðmunur í prósentum
talið reyndist vera á ýmsum al-
gengum smávörum. Þannig mun-
aði 136,9% á hæsta og lægsta
verði á Fitty samlokubrauði frá
Myllunni, 108,8% á Ora grænum
baunum í 450 gr dós og 100,8% á
mandarínum/klementínum. Mesti
verðmunurinn í krónum talið
reyndist hins vegar á dýrari
vörum, svo sem kjöti. Þannig mun-
aði 709 krónum á kílóverði á SS
birkireyktu hangilæri, 269 krónum
á kílóverði á KEA hamborg-
arhrygg með beini og 251 krónum
á kílóverði á frosnum heilum kal-
kún.
Það vakti athygli verðlagseftir-
litsins að innan við fjögurra króna
verðmunur var milli Krónunnar og
Bónus í 23 tilfellum af þeim 28
vörutegundum sem til voru í báð-
um verslunum.
Hagkaup og Nóatún
hafna þátttöku
Könnunin var gerð með þeim
hætti að starfsmenn á vegum ASÍ
fóru í verslanir og tíndu vörur í
körfu án þess að gera grein fyrir
því að um verðtöku væri að ræða.
Það var ekki fyrr en búið var að
skanna inn allar vörur við kassa
og gefa upp verð, að gerð var
grein fyrir því að um verðkönnun
væri að ræða og þess þá óskað að
fá verðstrimla til að vinna úr. Var
orðið við þeirri beiðni í sex versl-
unum af þeim átta sem heimsóttar
voru. Í verslunum Hagkaupa í
Skeifunni og í verslun Nóatúns við
Hringbraut var neitað að afhenda
verðstrimla og þar af leiðandi
þátttöku í verðkönnuninni.
Könnunin var gerð í eftirtöldum
verslunum: Fjarðarkaupum í
Hafnarfirði, Bónus í Kringlunni,
Krónunni á Granda, Samkaupum–
Úrvali í Miðvangi, Kaskó í Vest-
urbergi, Nettó í Mjódd, Hag-
kaupum Skeifunni og Nóatúni við
Hringbraut.
Aðeins er um beinan
verðsamanburð að ræða, en ekki
er lagt mat á gæði eða þjónustu
söluaðila.
Um 109% verðmunur á grænum baunum
%
%/
01
)% $1 )% 3 ) % , %2 % 2
%'
,%
)%245+, 3 6,+)%2 %
%52 ..
)%2&,
789
'
(
) '
)
*+, %'- ( ) % '
)
* )
) -
)
" "9 :9
./%0)
0%
) 1
&
0%
) 1
20 '
)
%3
)
4 -)
) 5
(
)
8
*
6 7 ' )
)
83 9 ) ) :
*;%
0 %6 %< <'
%)
$'-
)
90 3
)
&( 0 %< - %
) =0>
&( 9
( %-' )
#;<9
.0 - ) 5 )
& ?
-@ A
( ) B =5
>
7
# *-
)
55 *-%
) = % >
$=:7#
C
# 7-
) =0'6
>
: >09
+
5)
+
% ) #0) 1
D-? ?- )
) ;
+
0 ) #0) 1
!#><9" ?<@9"
& # 51%5) 5 )
+
) )
E(3 ' (# ) -- )
F
3
)
)
F
0% ) G3 #
) 5 )
F )
-:>9
H '
)
4 3
6) B
=:
+%% I
% 0 5
*5 0 5)
;;"
C -
) 0
)
&
# )
!
"
#
$
%
"
&
Verðlagseftirlit
ASÍ kannar verð
á jólamatnum
Nærri níu af hverjum tíu Svíum
finnst jólatíminn streitufyllri en aðr-
ir tímar árs. Þetta sýnir könnun sem
gerð var meðal 35 þúsund Svía og
Göteborgs-posten segir frá. Fjórum
af hverjum tíu finnst jólagjafainn-
kaupin valda mesta stressinu
Könnunin ber tíðarandanum vitni
að mati sálfræðingsins Kerstin Jed-
ing, sem vinnur á Streitustofnuninni
í Stokkhólmi. „Margir upplifa aukið
álag í vinnu á þessum tíma samhliða
miklu félagslífi þegar jólahlaðborðin
og jólaglöggsboðin standa sem
hæst,“ segir hún. Því er ekki skrýtið
að mörgum finnist verkefnalistinn
óyfirstíganlegur en Jeding bendir á
að í mörgum tilfellum sé um sjálf-
skaparvíti að ræða.
Erfiðara er að eiga við stress sem
tengist þröngum fjárhag. „Allt í einu
þarf að töfra fram jólagjafir fyrir alla
og margir finna fyrir því í pyngj-
unni,“ segir Anette Lydén hjá sam-
tökunum Verdandi sem berjast fyrir
verðugu lífi öllum til handa. „Margir
eru undir álagi allt árið um kring
vegna knappra kjara og finna enn
meira fyrir því um jólin.“
Einstæðir foreldrar eru oft í þeim
hópi. Við bætast áhyggjur af því
hvort frídagar þeirra nægi til heima-
veru þá daga sem börnin eru í fríi frá
skóla. Eins er stressandi að púsla
saman skutli vegna ýmissa jólauppá-
komna í skóla og frístundum við
vinnu og erfitt að komast að niður-
stöðu um skipulagið yfir jólin þegar
margar fjölskyldur bítast um barnið.
Stressið aldrei eins
mikið og vikurnar fyrir jól
Morgunblaðið/Sverrir
Erill Það þarf að baka og versla og föndra og pakka og skrifa jólakortin og
þrífa og mæta í jólahlaðborð og skutla börnunum og passa upp á aurana…