Morgunblaðið - 20.12.2007, Side 33
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2007 33
Bjúgnakrækir er hár og grannur. Hann er sann-kallaður loftfimleikamaður, klifrar eftir pylsunum
alveg upp á háaloft, ef þess þarf. Bjúgnakrækir er
ansi liðugur og næstum því eins sveigjanlegur og
pylsa. Ó, honum finnst vínarpylsurnar svo góðar og
ekki síður kindabjúgun. Sama hvar bjúgun eru
geymd, í ísskápnum, reykhúsinu eða búrinu – þann
20. desember eru engin bjúgu örugg fyrir honum.
Kertasníkir leysir frá skjóðunni - Anja og Markus Kislich
Bjúgnakrækir – 20. desember
Það vekur óneitanlega athygli að fé-
lag í eigu bræðranna Eiðs og Hreins
Gunnlaugssona í Kjarnafæði skuli
hafa keypt húseignirnar þar sem
Norðlenska er til húsa á Oddeyrinni.
Fyrirtækin eru tvö þau stærstu í
kjötvinnslu á landinu og orðrómur
fór auðvitað strax af stað í gær um
að þau yrðu e.t.v. sameinuð. Svoleið-
is nokkuð, eða einhvers konar sam-
starf, er allsendis óvíst en líklegast
er talið að bræðurnir líti á kaupin
sem góða fjárfestingu; að þeir hafi
rýnt dálítið inn í framtíðina og gert
sér í hugarlund að þá verði ekki
lengur atvinnustarfsemi neðst á
Eyrinni heldur glæsileg íbúðabyggð
eins og oft hefur verið talað um.
Björgólfur Jóhannsson formaður
LÍÚ skrifaði undir samning við Há-
skólann á Akureyri í vikunni, en
LÍÚ leggur skólanum til alls 45
milljónir króna næstu þrjú ár til
þess að efla menntun og rannsóknir í
sjávarútvegsfræðum. Þetta var eitt
síðasta embættisverk Björgólfs sem
formanns LÍÚ og hann sagði það
ánægjulegt fyrir sig, norðanmann-
inn, að undirrita samning sem þenn-
an við Háskólann á Akureyri.
Björgólfur var álíka reffilegur í
ræðustóli og þegar hann stóð í marki
knattspyrnuliðs Magna á Grenivík í
gamla daga. Og hann sló á létta
strengi í ræðunni: „Ég vona að fram-
kvæmdastjórinn sé búinn að leggja
inn á reikning Háskólans. Það
stendur í samningnum að greiða eigi
við undirritun og ég er ekki með
ávísun. Hún væri líka örugglega inn-
stæðulaus…“
Hjörleifur Hallgríms kom færandi
hendi til Mæðrastyrksnefndar Ak-
ureyrar. Afhenti þar 100 buxur í
barnastærðum, buxur sem hann
fékk fyrirtækið 66° Norður til þess
að gefa. Konurnar í Mæðrastyrks-
nefnd lýstu yfir mikilli ánægju með
gjöfina.
Sérstök barnastund hefur verið
daglega í verslun Eymundsson í
Hafnarstræti undanfarið og svo
verður fram að jólum. Þar hafa nem-
endur í leikskólakennarafræðum við
Háskólann á Akureyri tekið að sér
að lesa úr nýjum barnabókum og
verða t.d. á ferðinni í dag kl. 16.
Skemmtilegt framtak og það mun
ákveðið að slík barnastund verði í
versluninni á hverjum sunnudegi á
nýju ári.
Haukur á Græna hattinum, helsta
tónleikastaðnum á Akureyri síðustu
misseri, ætlar að ljúka árinu með
stæl og m.a. verða árlegir Þorláks-
messutónleikar Rásar 2 sendir beint
út frá staðnum að þessu sinni. Þar
koma þá fram Mannakorn ásamt
Hrund Ósk Árnadóttur og fleiri
gestum. Þetta er í fyrsta skipti sem
Rás 2 heldur sína Þorláksmessu-
tónleika utan Reykjavíkur.
Ólíkindatólin í hljómsveitinni
Hvanndalsbræðrum troða upp á
Græna hattinum annað kvöld undir
yfirskriftinni: Flóttinn frá jóla-
stressinu. Mér finnst líklegt að þeir
hafi hlýtt á íslensku dívurnar í Gler-
árkirkju um daginn; alltjent kalla
þeir sig norðlensku dívanana um
þessar mundir…
KEA hefur fært Hjálparstarfi kirkj-
unnar 70 matarpoka, sem verða af-
hentir skjólstæðingum Hjálpar-
starfsins nú í aðdraganda jólanna.
Þetta er fjórða árið í röð sem KEA
réttir Hjálparstarfi kirkjunnar
hjálparhönd með þessum hætti, en í
hverjum matarpoka er KEA-
hamborgarhryggur frá Norðlenska
og meðlæti.
Úthlutun Hjálparstarfs kirkjunnar
er í Glerárkirkju og stendur til 22.
desember. Beiðnir um aðstoð berast
prestum á Eyjafjarðarsvæðinu og í
Þingeyjarsýslum og þeir vísa þeim
síðan til Hjálparstarfs kirkjunnar.
Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar
kynnti í vikunni drög að samningi
iðnaðarráðuneytisins og AFE um
nýjan Vaxtarsamning Eyjafjarðar
sem tekur gildi í ársbyrjun 2008 og
gildir til ársloka 2010. Til samnings-
ins er varið um 90 milljónum króna á
samningstímanum úr ríkissjóði og er
markmið hans að efla nýsköpun at-
vinnulífsins á starfssvæði AFE og
auka hagvöxt með virku samstarfi
fyrirtækja, háskóla, sveitarfélaga og
ríkisins. Það vekur athygli að form
Vaxtarsamningsins breytist nokkuð
frá því sem var í þeim samningi sem
nú er að renna út, m.a. verða ekki
skilgreindir klasar í einstökum at-
vinnugreinum, líkt og í núverandi
samningi, heldur hafa allar greinar
og öll verkefni jafna möguleika til að
sækja um fjármuni úr samningnum.
AKUREYRI
Skapti Hallgrímsson
Takk Jóna Berta Jónsdóttir formaður Mæðrastyrksnefndar þakkar Hjör-
leifi Hallgríms fyrir gjafir sem hann útvegaði frá fyrirtækinu 66° Norður.
Til vinstri eru Fjóla Guðjónsdóttir og Siggerður Tryggvadóttir.