Morgunblaðið - 20.12.2007, Síða 38

Morgunblaðið - 20.12.2007, Síða 38
38 FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN DROTTNINGIN í Englandi ku hafa talað um sjálfa sig í fleiritölu og gerir kannski enn. Slíkt er skrýtið en styðst við hefðir. Það er þó enn skrýtnara að bæj- arstjóri Reykjanes- bæjar skuli tala um sjálfan sig í þriðju per- sónu með eiginnafni eða þá fornafninu „hann“ í greinarstúf sem ber heitið: Enn fer hann með rangt mál! Tilefnið er umfjöllun um eignir sem ríkið átti á Keflavíkurflugvelli en hefur nú verið skipt milli valinna sjálfstæð- ismanna í Reykja- nesbæ. Við fyrstu sýn gæti grein þessi því litið út fyrir að vera iðran og sjálfs- gagnrýni en við nánari lestur kemur í ljós að þriðju persónu fornafnið hann er einnig notað um undirritaðan í grein þessari og ekki grunlaust um að það sé ég sem bæjarstjórinn telur fara með rangt mál. Í fyrsta lagi vegna þess að Stein- þór Jónsson, formaður SSS, og einn helsti kaupandi eigna á vellinum hafi ekki skipað Árna sérstaklega í stjórn Kadeco ehf. Það er alveg rétt enda segi ég það aldrei, það er þó auðvitað staðleysa hjá bæjarstjóranum að stjórn SSS hafi skipað hann í stjórn- ina, hún tilnefndi hann en ráðherra skipaði. Ég benti bara á að Steinþór hefði verið oddviti þeirrar stjórnar sem tilnefndi Árna og það staðfestir Árni í grein sinni. Allt annað er útúrsnúningur. Það er líka útúrsnúningur að ein- hverju skipti hvort hlutur Reykja- nesbæjar í Háskólavöllum hafi verið seldur 28. júní, þegar salan er sam- þykkt í bæjarráði, eða um haustið þegar ákvörðun bæjarráðs er end- anlega staðfest í bæjarstjórn, sem er réttur ákvörðunaraðili málsins. Síðan segir bæj- arstjórinn að ég fari rangt með að fjórir bæjarfulltrúar hafi átti persónulega hagsmuni af sölu eigna ríkisins vegna þess að Steinþór Jónsson hafi einn komið að slíkum samningum við Þróunarfélagið. Annar bæjarfulltrú- anna fór reyndar þá leið að kaupa skemmur rík- isins af fyrirtæki Stein- þórs, sá þriðji situr í stjórn Spari- sjóðsins sem er orðinn stór eignaraðili á svæðinu. Máske öll þessi störf séu unnin í ungmenna- félagsanda og persónulegir hags- munir komi hér hvergi nærri. En það er von að bæjarstjóra sem talar um sjálfan sig í þriðju persónu yfirsjáist eitt og annað og gleymi því sömuleiðis hvar hann hefur sjálfur verið, hvenær það var hann sem gerði og hvenær bara einhver annar „hann“ eða einhver þriðju persónu Árni. Ef bara er horft á heimasíðu Þró- unarfélags Keflavíkur koma merki- legir hlutir fram. Þar er mynd af Árna Sigfússyni, sem er bæj- arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ, bæjarstjóri sama sveitarfélags og stjórnarmaður á ýmsum stöðum, þ. á m. í Kadeco og Keili, að undirrita pappíra. Hinn 5. október situr hann sölumannsmegin við undirskriftarborðið við milljarða sölu eigna til Háskólavalla, en er þá vísast búinn að gleyma því að hann sat við sama borð daginn áður eða 4. október, en er þá óvart kaupenda- megin, sem fulltrúi Keilis. Af því er líka mynd á vef Kadeco. Ef Árni myndi þetta hefði hann aldrei þrætt opinberlega fyrir það að hafa verið beggja vegna borðs en bæjarstjóranum og stjórnarmann- inum til afsökunar er rétt að hafa í huga að minnisglöp geta háð okkur öllum. Ruglandi í notkun persónu- fornafna getur ýtt undir slíkt. Að svo mæltu vil ég óska bæj- arstjóranum gleðilegra jóla og ráð- legg kaflann um persónufornöfn í málfræðibók Björns Guðfinnssonar sem jólalesningu. En uppbyggingu á þekkingasetrinu á Keflavík- urflugvelli óska ég velfarnaðar og vona innilega að það skaðist ekki af þeim vinnubrögðum sem illu heilli hafa verið viðhöfð við eignasölu á svæðinu. Jólakveðja til Árna Sigfússonar Bjarni Harðarson karpar við bæjarstjórann í Reykjanesbæ » Að svo mæltu vil égóska bæjarstjór- anum gleðilegra jóla og ráðlegg kaflann um per- sónufornöfn í mál- fræðibók Björns Guð- finnssonar sem jólalesningu. Bjarni Harðarson Höfundur er alþingismaður fyrir Framsóknarflokkinn í Suður- kjördæmi. KIRKJAN hefur verið grunn- þáttur okkar þjóðskipulags nánast frá upphafi Íslandsbyggðar. Með henni höfum við lifað bæði súrt og sætt í meira en 1000 ár. Mik- ilvægt er að hún nái að bregðast við breyttum kröfum á hverjum tíma en traust bönd milli ríkis og kirkju gefa samfélaginu öryggi sem okkur er mik- ilvægt. Trúfrelsi og virðing fyrir öðrum trúarbrögðum eru sjálfsögð og slíkt á að vera kennileiti okkar Íslendinga í hvívetna. Kirkjan og safn- aðarstarfið eru horn- steinar fjölbreytts menningarlífs víða, ekki síst í minni sam- félögum úti á landi. Má þar sérstaklega nefna söng og tónlistarlíf og barna- og unglinga- starf sem fjölskyldan öll er virkur þátttak- andi í, að ógleymdum hlut starfs eldri borg- ara. Fjöldi barna, ung- linga og fullorðinna um land allt syngur í kirkjukórum eða tekur þátt í tónlistarlífi og upp- byggilegu trúarlífi í kringum kirkj- urnar. Fjölþætt ábyrgð um land allt Kirkjustaðirnir eru einstæðar vörður í sögu, atvinnu- og menningar- lífi þjóðarinnar og samofnir örlögum hennar. Kirkjurnar vítt og breitt um landið eru byggingarsögulegir dýr- gripir og búnaður þeirra hluti af lista- sögu landsins. Þessum verðmætum verður að halda til haga og gera sýni- leg í nútímanum. Þarna ber þjóð- kirkjan og við öll víðtækar samfélags- skyldur. Kirkjusagan og kirkjustaðirnir eru sam- ofin þeim verðmætum sem reynt er að miðla og laða fram, t.d. í menn- ingartengdri ferðaþjón- ustu. Kirkjustarfið er mikilvægur hlekkur í byggðamálum og ómet- anlegt í öllu félags- og menningarlífi. Það er mikilvægt að við höfum þessa fjölþættu ábyrgð í huga. Hátíðarkveðjur á jólum Það á að vera ófrá- víkjanleg regla að borin sé virðing fyrir ólíkum trúarbrögðum. En um leið eigum við að fagna þeirri merku menning- ar- og trúararfleifð sem kristin trú hefur gefið okkur. Þjóðkirkjan gegnir dýrmætu hlutverki í okkar samfélagi og mun vonandi gera áfram um langa hríð. Sterk fjöl- skyldubönd og gott nágranna- samfélag eru einkenni fagurs mann- lífs. Vinir og ættingjar, já, allir kallir kallast á með friðarkveðju: „Gleðileg jól!“ Ég óska lesendum Morgunblaðsins gleðilegrar jólahátíðar og farsældar á nýju ári og þakka hvatningu og góðan stuðning á árinu sem er að kveðja. Kirkjan er hornsteinn Jón Bjarnason fjallar um kirkj- una og safnaðarstarfið Jón Bjarnason »Kirkjustarfiðer mik- ilvægur hlekkur í byggðamálum og ómetanlegt í öllu félags- og menningarlífi stórra og minni samfélaga um landið. Höfundur er þingmaður VG. HINN 15. desember sl. fjallar ritstjóri Morgunblaðsins í for- ystugrein um nýákveðna niðurfell- ingu og lækkun Alþingis á auð- lindagjaldi í sjávarútvegi undir fyrirsögninni „Lin- kind“. Þar segir í að- faraorðum að þingið sýni mikinn „ves- aldóm“ í varðstöðu sinni um hagsmuni almennings. Í loka- orðum segir að aum- ingjaskapur rík- isstjórnar, stjórnarflokka og Al- þingis í þessu máli sé svo mikill að þessir aðilar séu greinilega „ófærir um að gæta almannahagsmuna“. Ég hef lengi fylgst með mál- efnalegri baráttu blaðsins fyrir al- mannahagsmunum í þessu máli. Þess vegna eru mér vonbrigði rit- stjórans með þessa ákvörðun Al- þingis fullkomlega skiljanleg. Ég hef þó aldrei talið að auð- lindagjald af því tagi sem veiði- gjaldið er geti tryggt framtíð þjóð- arauðlindar og eðlilegt endurgjald fyrir afnot af henni. En Morg- unblaðið hefur haft aðra skoðun og haldið því fram að eignarhaldi þjóðarinnar á sjávarauðlindum hafi verið bjargað með lögunum um veiðigjald. Þetta gjald muni hækka í framtíðinni og að lokum færa þjóðinni eðlilegt endurgjald fyrir nýtingu auðlindarinnar. Það er því miður ekki nið- urstaðan, slíkt er af og frá. Þessi gjörð Alþingis nú er skýr sönnun þess. Misheppnað veiðigjald Sú vegferð sem lagt var í með lögunum um veiðigjald kennir okk- ur það eitt að aðferðirnar til að gæta eignarhalds slíkra auðlinda fyrir hönd þjóðarinnar þarf að velja af kostgæfni. Það hefur því miður sannast sem útgerðarmenn og margir aðr- ir héldu fram að gjaldið hefur eðli skattlagningar gagn- vart þeim sem keypt hafa veiðirétt af öðr- um. Gjaldið rís heldur ekki undir nafni sem afgjald til eiganda auð- lindar. Um það vitnar best sú staðreynd að útgerðarmenn hafa að undanförnu verið að greiða 2 kr. til eigand- ans (þjóðarinnar) af veiðirétti í þorski sem leigður er út af hand- höfum veiðiréttar fyrir 230 kr. Sú staðreynd að nú afléttir Alþingi þessu auma endurgjaldi til eigandans af þorsk- veiðiheimildum og lækkar það verulega af öðrum tegundum boð- ar í raun gjaldþrot slíkrar leiðar ekki bara í sjávarútvegi heldur líka gagnvart öðrum auðlindum. Tillögur um aðrar leiðir liggja fyrir En þó að sú auðlindagjaldsleið sem var farin gagnvart sjávar- útvegi sé ekki nothæf til að gæta eignarhalds fyrir hönd þjóðarinnar er það engin sönnun fyrir því að þjóðin geti ekki átt auðlindir og falið einkaaðilum nýtinguna. Það haggar ekkert rétti okkar sem þjóðar til að ákveða að skil- greindar auðlindir skuli vera þjóð- arauðlindir í sameign þjóðarinnar til framtíðar. Íslensk stjórnvöld verða hins vegar að gæta eign- arhaldsins fyrir hönd þjóðarinnar með fullnægjandi hætti. Þar getur enginn undansláttur verið frá fullu verði eða í formi forgangs eða hefðar eins og raunin er í veiði- gjaldsleiðinni. Þá innheimtir bara handhafinn fulla verðið. Stjórnvöld verða að gæta að fullu jafnræðis milli þeirra sem fá í hendur nýt- inguna. Þar verða menn að horfast í augu við að erlendir aðilar hafa líka rétt til jafnræðis. Þjóðareign og jafnræði til nýtingar getur þó algerlega farið saman. En leikregl- urnar verða að vera skýrar. Það er nú eitthvert mest aðkallandi pólitískt verkefni stjórnvalda á Ís- landi að skapa samstöðu um slíkar leikreglur. Í svokallaðri auðlinda- nefnd sem skilaði áliti til iðn- aðarráðherra fyrir ári náðist víð- tæk samstaða um slíkar leikreglur. Um þær tillögur getur enginn haft orðin vesaldómur, linkind eða aumingjaskapur. Á Alþingi náðist þó ekki að ljúka málinu í aðdraganda kosn- inga. Nú er kallað eftir slíkum leik- reglum sem aldrei fyrr. Enda hljóta þær að verða hluti af þeirri sátt sem iðnaðarráðherra vinnur að um orkuauðlindir í almanna- eigu. Þegar leikreglurnar sem skapa sátt um þær mikilvægu auð- lindir liggja fyrir munu óhjá- kvæmilega einnig skapast fordæmi fyrir því hvernig fara skuli með auðlindir þjóðarinnar í lífríki hafs- ins. Um auðlindir til sjós og lands Jóhann Ársælsson skrifar um auðlindagjald í sjávarútvegi » Þar getur enginnundansláttur verið frá fullu verði eða í formi forgangs eða hefðar eins og raunin er í veiðigjaldsleiðinni. Jóhann Ársælsson Höfundur er fyrrverandi þingmaður. „EKKERT í okkar löggjöf stendur í vegi fyrir eignarhaldi er- lendra aðila á fyr- irtækjum í ferðaþjón- ustu á Íslandi.“ Þetta sagði Anna Karls- dóttir lektor í ferða- málafræðum við Há- skóla Íslands á ráðstefnu um fé- lagsvísindi á nýju há- skólatorgi 7. desem- ber. Fjölbreytt eigna- tengsl í heims- viðskiptum eru líkleg til að smitast inn í ferðaþjónustugreinina hér á landi sem annars staðar. „Það er ein- ungis tímaspursmál hvenær erlendir fjár- festar fara að líta ís- lensk ferðaþjónustu- fyrirtæki hýru auga sem fjárfestingarkost,“ segir Anna sem hefur rannsakað áhrif skemmti- ferðaskipa í hnattrænu samhengi. Og margt ber að varast. „Með auknum láréttum og lóð- réttum tengslum í ferðaþjónustu getur skapast sú staða að hagsmunir fyrirtækjanna verði allsráðandi í þróun ákveðinna ferðamannastaða eins og farið er að gæta víða.“ Anna nefnir sem dæmi ítök alþjóða- samsteypa í Alaska þar sem hagn- aður af starfseminni rennur að litlu leyti til samfélagsins á meðan álag á samgönguæðar er borið af samfélag- inu. „Með auknum ítökum al- þjóðlegra samsteypa eru staðbundin sjónarmið ekki endilega efst á baugi í þróun og mótun greinarinnar. Valdahlutföll riðlast og svæð- isbundin ávinningur getur orðið óveruleg- ur.“ Anna vitnaði til rann- sóknar sem kom út árið 2003. Í rannsókninni kom fram að á eins árs tímabili frá árinu 2000- 2001 hafi 7 skipafélög á um 10 leiðum hætt starfsemi í kjölfar yf- irtaka. Þrjú skipafélög eru orðin langsamlega stærst og þess vegna allsráðandi í greininni enda hafa þau ítök á öll- um stigum söluferl- isins, frá ferðaskrif- stofum til hótela og hópbifreiðafyrirtækja. Aðeins um tugur minni og óháðra skipafélaga starfar enn í skemmti- ferðasiglingum. Yfirtaka á hóp- bifreiðafyrirtækjum er dæmigert fyrsta skref skipafyrirtækjanna þegar þau byrja að hasla sér völl í landi, segir Anna. „Ef skipafélögunum finnst þjón- ustan sem þau fá ekki nógu góð eða þeim finnst hún of dýr hugsa þau sér til hreyfings.“ Lítil ítök erlendra eignaraðila hafi einkennt íslenska ferðaþjónustu hingað til. Anna segir það koma til með að breytast eins og annars stað- ar. „Það er aðeins tímaspursmál hvenær erlendir aðilar hasla sér völl hér á landi og hvernig það muni þróast.“ Innrás á íslenskan ferðaþjónustumarkað Stefán Helgi Valsson skrifar um innrás erlendra aðila á ís- lenskan ferðamarkað Stefán Helgi Valsson » Fjölbreytteignatengsl í heimsvið- skiptum eru lík- leg til að smitast inn í ferðaþjón- ustugreinina... Höfundur er leiðsögumaður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.