Morgunblaðið - 20.12.2007, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2007 39
UM fátt hefur verið meira ritað
þessar síðustu vikur hér á Spáni en
niðurstöður PISA-könnunarinnar og
sýnist sitt hverjum. Allir er þó sam-
mála um að það beri að taka þær al-
varlega þó að menn séu ekki sam-
mála um hvað liggi að baki
niðurstöðunum.
Spánverjar lentu
fyrir neðan meðallag í
öllum þremur grein-
um, – lestri, vísindum
og stærðfræði – og það
sem meira er, þeir
lækkuðu í einkunn frá
síðasta prófi fyrir
þremur árum. Þetta
þykir harður dómur
um skóla landsins þó
að sumir bendi á að
þetta sé samt mikil
framför frá því sem
var, á meðan kirkjan
og Franco réðu
mestu um hverjir
fengu að fara í skóla
og hvað þeim var
kennt í skólanum.
Skólaskylda varð
ekki almenn fyrr en
Franco var allur árið
1975.
Það sem veldur
mestu um lágar ein-
kunnir Spánverja er
hinn mikli munur á
útkomu mismunandi
sjálfstjórnarhéraða.
Norðurhéruðin og höfuðborg-
arsvæðið eru langt fyrir ofan með-
allag, á meðan Andalúsía dregur
landið niður vegna slæmrar útkomu.
Afkoma foreldra, menntun, fjár-
hagsleg og félagsleg staða barna,
hefur þar afgerandi áhrif.
Lyklar að árangri
Pisa-rannsóknin hefur nú farið
fram í þriðja sinn og þykjast töl-
fræðingar nú geta lesið út úr nið-
urstöðum þessara þriggja prófa
hver sé lykillinn að góðri útkomu.
Enn á ný skora Finnar hæst en auk
þeirra vekur athygli frammistaða
Suður-Kóreu sem skorar hæst í
tveimur af þremur greinum og Hong
Kong sem er líka í efstu sætunum.
Og hver er svo lykillinn að góðum
árangri?
Í sumum löndum fara bestu ný-
stúdentarnir beinustu leið í bank-
ana. Í Finnlandi fara bestu nýstúd-
entarnir beinustu leið í
skólastofurnar – til að kenna.
Getur verið að þetta geri gæfu-
muninn? Getur verið að þetta sé
skýringin á því að Finnland skorar
best ár eftir ár í PISA-könnuninni?
Finnar velja kennaranema sína úr
hópi 10% bestu nýstúdenta hvers
árs. Í Suður-Kóreu eru kenn-
aranemendur valdir úr hópi 5%
hinna bestu. Kennaraháskólarnir
eru mjög
kröfuharðir. Verðandi kennarar
gangast undir strangt inntökupróf,
auk þess sem kannaðir eru leiðtoga-
hæfileikar þeirra og köllun til náms-
ins (vocation). Þetta þrennt sker úr
um hvort þeir komast í námið eða
ekki.
Í Finnlandi er kennaranemendum
gert skylt að ljúka meistaraprófi í
uppeldisfræðum,
auk meistaraprófs í faginu, sem
þeir ætla að kenna. Þó að kennsla sé
ekki
hálaunastarf er það eftirsókn-
arvert og nýtur milkillar virðingar í
samfélaginu. Komast færri að en
vilja.
Kennarinn í aðalhlutverki
Því smærri bekkjareiningar því
betri árangur. Við það að fækka
nemendum úr 23 í 15 í bekk skora
þeir 8% hærra í prófinu. Og þeir
bekkir sem hafa kennara með mikla
leiðtogahæfileika ná tökum á náms-
efninu mun fyrr en þeir sem eru
bara með miðlungskennara. Þannig
að kennarinn er í aðalhlutverki og
hefur úrslitaáhrif á niðurtöðuna.
Svo er það athyglin sem hver ein-
staklingur fær innan bekkjarins. Ef
einhver eða einhverjir nemendur
sýna ekki næga framför er sérkenn-
ari kallaður til. Hann tekur að sér
leiðsögn nemenda í smærri hópum
og sér um að þeir missi ekki af lest-
inni og standi jafnfætis
bekkjarfélögum sínum.
Í Finnlandi er einn sér-
kennari fyrir hverja sjö
bekkjarkennara. Oft
eru það þeir sem hafa
mesta kennarahæfi-
leika sem veljast til
þeirra starfa. Árang-
urinn lætur ekki standa
á sér. Brottfall nem-
enda af skyldustigi í
Finnlandi er innan við
eitt prósent. Um 30%
nemenda njóta sér-
kennslu (og er það svip-
að hlutfall og þeirra sem
falla út úr skólakerfinu
hér á Spáni) Með þessu
móti er öllum komið til
nokkurs þroska. Lökustu
nemendur finnskra skóla
eru fyrir ofan meðaltal
annarra OECD-landa.
Að vega upp á móti
ójöfnuði þjóðfélagsins
Loks er rík ástæða til
að staldra við enn eitt
lykilatriðið: Hvernig
tekst skólakerfinu að
bæta þeim nemendum upp menning-
arlega fátækt sem búa við slæma fé-
lagslega stöðu í þjóðfélaginu? Hvað
erum við að tala um? Við erum að
tala um börn frá heimilum þar sem
foreldrarnir mega ekki vera að því
að tala við börnin sín, þar sem eng-
inn er bókakostur eða tölvu-
leikjafíknin kemur í stað mannlegra
samskipta. Stundum erum við ein-
faldlega að tala um fátækt. En ekki
alltaf. Stundum er bara um að ræða
andlega fátækt.
Hvernig á að taka á þessu? Það er
kannski í þessum punkti sem aðrar
þjóðir geta mest lært af Finnum. Ef
nemandi (eða hópur nemenda í
bekk) sýnir þess merki að hann er
að dragast aftur úr vegna fé-
lagslegra aðstæðna er reynt að taka
strax á því. Eins og fyrr sagði veita
sérkennararnir þessum nemendum
sérstaka þjónustu til að gera þeim
kleift að fylgjast með framförum
bekkjarfélaga sinna. Þetta er sér-
grein. Það þarf að kveikja áhuga
þessara nemenda. Það þarf að kenna
þeim að færa sér í nyt bókasöfn.
Kannski þarf að kenna þeim að lesa
bækur sér að gagni. Það þarf að
virkja áhuga þeirra og leiða þeim
sérstaklega fyrir sjónir gildi náms-
ins.
Þarna reynir á forystuhæfileikana
sem ég var að tala um. Það er til
marks um árangur Finna við að
vega upp þann aðstöðumun sem rík-
ir t.d. milli þéttbýlis og dreifbýlis, að
gæði skólastarfsins mælast jafngóð í
afskekktum og afskiptum byggðum
og í þéttbýlinu. Þannig er vísvitandi
reynt í skólastarfinu að bæta nem-
endum upp þann ójöfnuð sem ríkir í
þjóðfélaginu. Og það er afrek.
Þetta er það sem Mercedes Ca-
brera, menntamálaráðherra Spán-
verja í ríkisstjórn Zapateros, hefur
lagt mesta áherslu á í viðbrögðum
sínum við slakri útkomu Spánverja í
nýjustu PISA-könnuninni. Þetta er
það sem hún telur að Spánverjar
geti helst lært af niðurstöðunum og
látið sér að kenningu verða. En hvað
um okkur Íslendinga? Ætlum við að
láta eins og allt sé með felldu? Ætl-
um við áfram að loka augunum fyrir
augljósum veilum í skólastefnu og
starfi? Eða viljum við einlæglega
læra af þeim sem skara fram úr?
Vegvísar að
bættum árangri
Bryndís Schram skrifar um
Pisa-könnun 2006
Bryndís Schram
» Þeir bekkir,sem hafa
kennara með
mikla leiðtoga-
hæfileika, ná
tökum á náms-
efninu mun fyrr
en þeir sem eru
bara með miðl-
ungskennara.
Höfundur er fyrrverandi kennari.
WWW.N1.IS
OPIÐ VIRKA DAGA 8-18
LAUGARDAGA 10-14
N1 VERSLUN BÍLDSHÖFÐA 9 - SÍMI 440 1200
REYKJAVÍK - AKUREYRI - AKRANES - HAFNARFJÖRÐUR - KEFLAVÍK - SELFOSS - HORNAFJÖRÐUR - EGILSSTAÐIR
TALSTÖÐVAR
Skemmtilegar jólagjafir í verslunum N1
YAESU VX-22oo VHF bílastöð
Tíðnisvið 137-174 MHZ, sendiafl 25W, 128
rásir forritanlegar, hópskipting á rásum,
skannar rásir í hóp eða alla hópa, 8 stafa
textaskjár, stillanleg „squelch“ móttaka
(næmleiki), tengi aftan á stöð fyrir auka
hljóðnema o.fl. Hátalari framan á stöð 4W,
útgangur fyrir aukahátalara 12W.
29.880,-
YAESU HX-370E VHF handstöð
VHF talstöð vatnsheld, 40 rása, 5W sendi-
styrkur, stór skjár með ljósi, ljós í tökkum.
Fylgihlutir: hleðslurafhlaða, hleðslutæki,
bílhleðsla, rafhlöðuhylki og beltisklemma.
24.900,-
GÓÐAR