Morgunblaðið - 20.12.2007, Side 56
56 FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
LÁTTU
SLEIKJA
Á ÞÉR
ANDLITIÐ
FYRIR
10 kr.
SLEPPTU
VIÐ ÞAÐ
AÐ ÉG
SLEIKI
ÞIG
FYRIR
1.000 kr.
ÞANNIG AÐ
ÞEIR ÆTLA
AÐ LEGGJA
VEG HÉRNA
OG RÍFA
HÚSIÐ ÞITT
JÁ
HÆTTU ÞESSARI
SJÁLFSVORKUNN!
HELDUR ÞÚ AÐ ÞÚ SÉRT SÁ
EINI SEM HEFUR MISST
HEIMILIÐ SITT?!? HELDURÐU
AÐ ÞÚ SÉRT SÁ EINI?! HA?!
AF HVERJU GETUR FÓLK
EKKI BARA FAÐMAÐ MIG
OG VORKENNT MÉR?
ÉG TRÚI EKKI AÐ ÞÚ HAFIR
STOFNAÐ LEYNIFÉLAG SEM
LEYFIR EKKI STELPUR! ÞAÐ ER
EKKERT AÐ STELPUM!
MEIRA BULLIÐ!
ÞÚ ERT LEIÐINLEGASTI
STRÁKUR Í HEIMI! LEIKTU
ÞÉR BARA VIÐ TUSKUDÝRIÐ
ÞITT! MÉR ER SKO ALVEG
SAMA HVAÐ ÞÚ GERIR!
ÉG VIL EKKI LEIKA
VIÐ AULA EINS OG ÞIG
HVORT EÐ ER!
ÞETTA ER
FRÁBÆRT
LEYNIFÉLAG
AFSAKIÐ
HVAÐ ÉG
KEM SEINT,
HELGA?
HVAÐ
ER Í
MATINN?
ER EINHVER
EFTIRRÉTTUR?
ÞAÐ STENDUR...
„EF ÞÚ GETUR LESIÐ
ÞETTA ÞÁ ERTU MEÐ
NEFIÐ OF NÁLÆGT“
NÝ HUNDURINN
ÞINN ER MJÖG SÆTUR
EN ÉG ER EKKI VISS
UM AÐ ÞÚ ÆTTIR AÐ
HAFA TÍNU MEÐ
ÞÉR Í VINNUNA
NÚ?
HÚN ER
SVO
LÍTIL
ÉG VEIT
ÞAÐ, EN ÉG
HELD AÐ HÚN
EIGI SAMT
EFTIR AÐ
TRUFLA
EKKI HAFA
ÁHYGGJUR. ÉG
GET ALVEG
EINBEITT
MÉR AÐ
VINNUNNI
EN HVAÐ MEÐ
ALLA HINA
HÚN ER
SVO SÆT
FJARSTÝRÐ
MYNDAVÉL
INNI Í
LYFTUNNI
KEMUR TIL
MEÐ AÐ
TAKA UPP
BARDAGANN
MILLI YKKAR
EN KÓNGULÓAR-
MAÐURINN VERÐUR
AÐ HALDA SIG
NÆRRI...
ÞÓ AÐ
LÖGREGLAN SÉ
Á HÆLUNUM
Á HONUM
dagbók|velvakandi
Ónýtur jólapappír
Mig langar til að koma ábendingu til
þeirra kaupmanna sem sjá um inn-
kaupin á jólapappír. Pappírinn sem
er í boðier handónýtur og rifnar við
minnsta átak. Það er ósköp svekkj-
andi að vera búinn að pakka fallega
inn jólapökkunum og svo rifnar
pakkinn við minnstu snertingu. Sér-
staklega á þetta við um pakkana til
barnanna, því mesti spenningurinn
er farinn ef sést í pakkann.
Ásta
Börn í stórhættu
Þegar litið er til baka og íhugaður
ferill brennivíns- og eiturlyfjaætna
þá má kannski tengja það að ein-
hverju leyti þeim 104 mannshvörfum
sem átt hafa sér frá 1969 til 2007. Nú
er svo komið að hvorki leigubíl-
stjórar né siðfágað fólk almennt þor-
ir að ganga um götur Reykjavíkur
að kvöldi dags eða um helgar af ótta
við að vera barið niður eða rænt
aleigunni. Það er sorglegt til þess að
vita að fólk skuli leyfa sér að borða
eiturlyf og drekka brennivín í óhófi
þegar vitað er að hvort tveggja
breytir alfarið dómgreind og raun-
veruleikaskyni. Á þessari eyju eru
auðvitað margar stofnanir sem taka
við slíkum aðilum og ástunda áfeng-
is- og fíkniefnameðferðir og falla
trúlega undir Landlæknisembættið,
má þá nefna SÁÁ, Krýsuvík-
ursamtökin og fleira, en þetta er
bara ekki nóg. Norskar rannsóknir
hafa t.d. sýnt að grundvallarmunur
er á dagdrykkju og túradrykkju og
ekkert dularfullt við það, en eitur-
lyfjaætur geta betur falið sína fíkn
því ekki finnst lyktin af þeim. Ef
menn brjótast inn sjö sinnnum á dag
til að afla sér tekna til kaupa á slíku
ógeði þá segir sig sjálft að allt venju-
legt fólk er í stórhættu. Fyrir utan
það að ef okkur vantar dómgreind-
ina þá er stórhætta á, eins og sést í
Grænlandi þar sem áfengisvandi er
víðtækur, að börn séu notuð kyn-
ferðislega fyrir utan það annað of-
beldi sem fylgir slíku böli. Þetta
tvennt, áfengi og eiturlyf, er stór-
hættulegt og ef fólk hefur einhvern
sérstakan áhuga á að skaða í sér
heilann þá er það gulltryggt með því
að nota slík efni. Slík fíkniefnamis-
notkun veldur ömurlegri meðferð á
börnum ekki síður en fullorðnum,
þetta er ófyrirgefanlegt, óafturkræft
og þarf lítið til að heilar slíkir
brenglist þótt fólk hætti neyslu. Það
býr alla ævi að þeirri sorglegu stað-
reynd að hafa skaðað sig með neysl-
unni. Samt sem áður er aldrei of
seint að snúa við blaðinu og óskandi
að sem flestir geri það, sérstaklega
núna þegar jólin, hátíð barnanna,
ganga brátt í garð.
Jóna Rúna Kvaran,
blaðamaður og rithöfundur.
Óheiðarleg auglýsingaherferð
hjá Eimskip/Flytjanda
Nú í desember hafa stanslaust dunið
yfir landann auglýsingar frá Eim-
skip/Flytjanda um að þeir bjóði fólki
pakkann á kr. 600 ef þú getur borið
hann sjálfur inn til þeirra! Maðurinn
minn fór með hillu í flötum pakka til
þeirra og bar hana sjálfur inn – en
nei, þá var pakkinn of langur eða
eitthvað svoleiðis og þurfti hann þá
að greiða 2.119 kr. Hvílík ósvífni og
lygi – ég get ekki orða bundist.
Annað sem ég vildi minnast á er
verð á pylsupökkum frá SS. Nú í
langan tíma hefur verið fast verð á
pökkunum, s.s. ekki eftir kílóaverði
eins og var áður fyrr. Það er hrein-
lega verið að stela af fólki.
Guðrún Þ. Guðmundsdóttir
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
Þessi glæsilega kona arkar hér áfram yfir Lækjargötu og lætur hvorki rok
né rigningu trufla sig á ferð sinni. Í bakgrunni speglast ljósin fallega í rign-
ingunni af bílum og jólaljósum og lýsa upp skammdegið.
Morgunblaðið/Golli
Rigning og rok í Lækjargötu
Um er að ræða einstaka 136 fm glæsilega íbúð í hinu nýja Skuggahverfi,
ásamt stæði í bílgeymslu. Íbúðin er staðsett á 2. hæð. Svalir til vesturs og
austurs. Allar innréttingar eru sérsmíðaðar og öll gólfefni eru sérvalin.
Íbúðin skiptist í stofu, borðstofu, 3 svefnherbergi, eldhús, baðherbergi og
snyrtingu. Verð 55 millj.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali.
Vatnsstígur - 101 Skuggahverfi
M
bl
9
51
81
1