Morgunblaðið - 20.12.2007, Page 58

Morgunblaðið - 20.12.2007, Page 58
Áhersla lögð á fínni og hátíðlegri blæ- brigði þungarokksins … 63 » reykjavíkreykjavík Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is „ÉG hef ekki hugmynd um það af hverju ég var beðinn um að vera spurningahöfundur, þar sem ég hef ekki komið nálægt slíkum keppnum áður. Auðvitað getur verið að þeim finnist ég vera snillingur, en það væri gáleysislegt af mér að halda því fram sjálfur,“ segir Páll Ásgeir Ás- geirsson sem er nýr spurningahöf- undur og dómari í Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskól- anna, sem hefur göngu sína í upphafi nýs árs. „Ég hef mjög gaman af því að grúska og semja spurningarnar. En það má ekki gleyma því að ég er undir mikilli pressu, því unga fólkið tekur þátt í þessu af gríðarlega mik- illi ástríðu auk þess sem þetta er vin- sæll sjónvarpsþáttur,“ segir Páll og bætir við: „Gettu betur er okkar róðrarkeppni, þetta er sú hefð sem íslenskir menntaskólar hafa.“ Spurður hvort einhverjar aðrar áherslur verði í spurningunum en undanfarin ár svarar Páll glettinn að nú verði hann að passa að segja ekki of mikið. „Ég geri ráð fyrir að spurn- ingarnar muni litast eitthvað af mín- um áhugamálum og sérsviðum eins og sjálfsagt alltaf gerist,“ segir Páll sem þarf að semja í heildina um tvö- þúsund spurningar. Að eigin sögn hefur Páll fylgst töluvert með Gettu betur í gegnum tíðina og finnst eins og stórum hluta þjóðarinnar þyki slíkir spurn- ingaþættir skemmtileg afþreying. Dregið verður í fyrstu umferð Gettu betur í Síðdegisútvarpinu á Rás 2 í dag kl. 17. Vikuna 7. til 10. janúar hefja svo þrjátíu skólar leik í beinni útsendingu Rásar 2 og keppt verður mánudags- til fimmtudags- kvöld frá 19.30-22.00. Spyrill verður Sigmar Guðmundsson sem fyrr. Okkar róðrarkeppni Morgunblaðið/ÞÖK Sigur Lið MR hampaði hljóðnemanum í ár. Það var skipað þeim Hilmari Þorsteinssyni, Magnúsi Þorláki Lúðvíkssyni og Birni Reyni Halldórssyni. Í HNOTSKURN » Gettu betur hóf göngu sína1986 og sigraði þá lið Fjöl- brautaskóla Suðurlands. » Páll Ásgeir Ásgeirsson tekurvið af Davíð Þór Jónssyni sem dómari og spurningahöf- undur. » Lið Menntaskólans í Reykja-vík sigraði í keppninni 2007 eftir bráðabana við lið Mennta- skólans í Kópavogi.  Upprennandi FM-hnökkum og krúttkrökkum gefst nú einstakt tækifæri til að setjast við fótskör tveggja ólíkra meistara – þeirra Einars Bárð- arsonar og Arnars Eggerts Thor- oddsen, þegar þeir félagar árita bókina Öll trixin í bókinni. Fyrri árituninn fer fram í Hagkaupum Kringlunnar kl. 17 í dag og sú síð- ari í Hagkaupum Smáralindar kl. 19. Á föstudaginn bregða þeir fé- lagar sér síðan austur fyrir fjall eða til höfuðstöðvanna, eins og Einar kallar Selfoss, en þar munu þeir árita í Bókakaffi Bjarna Harð- arsonar þingmanns kl. 17. Frá höfuðborginni til höfuðstöðvanna  Það er óhætt að segja að árið 2007 sé eitt það besta á löngum ferli Björgvins Halldórssonar. Eins og komið hefur fram var uppselt á þrenna tónleika Bó í byrjun mán- aðarins, en fyrir utan það hefur Bó selt meira en 15.000 plötur á árinu, þegar talin er saman sala á Íslands- lögum 7, Íslandslögum 1-6, Jóla- gestum 4 og fyrstu þrjár Jólagesta- plöturnar, sem komu út í sérstakri hátíðarútgáfu. Bó aldrei vinsælli  Svo virðist sem Klaufamálið, sem RÚV hefur staðið frammi fyrir að undanförnu, hafi haft töluverð áhrif á samstarfsanda þáttagerð- armanna Rásar 2. Það vakti til dæmis athygli að Bubbi kallaði Óla Palla heimaríkan í viðtali við Fréttablaðið, en orðið þýðir í dag- legu tali ráðríkur eða frekur. Klaufar draga dilk á eftir sér Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „ÉG man nú ekki alveg hvernig þessi hefð hófst, en ég held að það hafi bara verið í einhverju brí- aríi,“ segir Stefán Hilmarsson, söngvari Ull- arhattanna, sem myndar kjarna hljómsveit- arinnar ásamt þeim Eyjólfi Kristjánssyni og Jóni Ólafssyni, en auk þeirra eru í sveitinni þeir Jó- hann Hjörleifsson og Friðrik Sturluson. Sveitin hefur haldið tónleika á Þorláksmessu frá árinu 1998, og því er um tíunda skiptið að ræða nú í ár, en að þessu sinni fara tónleikarnir fram á DOMO í Þingholtsstrætinu. „Við byrjuðum reyndar á þeim sama stað, sem þá hét Sportkaffi, en höfum síðan verið með þetta hér og þar um bæinn. Hins vegar leggjum við áherslu á að hafa svolitla nánd í þessu, þannig að við höfum ekki viljað fara með þetta inná einhverja risastóra staði,“ segir Stefán. Fjölmargir gestir hafa spilað og sungið með Ullarhöttunum á undanförnum árum. „Það hefur verið nokkuð gestkvæmt á þessum tónleikum og hinir og þessir rekið inn nefið og sungið með okk- ur, til dæmis Rut Reginalds, Helga Möller og meira að segja kom Einar Bárðarson eitt árið og söng,“ segir Stefán, en heyrst hefur að í tilefni af tíu ára afmælinu muni þau Helga Möller og Ómar Ragnarsson stíga á svið með sveitinni að þessu sinni. Og jafnvel er von á fleiri gestum. Hattar frá annarri heimsálfu Aðspurður segir Stefán að þeir félagar syngi eingöngu lög á íslensku. „Þetta eru dægurlög frá ýmsum tímum, bæði úr okkar söngvasjóðum, en svo höfum við til dæmis gert lögum Upplyftingar hátt undir höfði. En að sjálfsögðu erum við alltaf með töluvert af jólalögum.“ Eins og nafnið bendir til eru Ullarhattarnir alltaf með höfuðföt á tónleikum. „Já, við leggjum mikið upp úr því, og höfum alltaf gert. Ég kann hins vegar ekki skýringu á þessu nafni sveit- arinnar, þetta er bara eitthvað sem einhver lagði til, en fer örugglega í flokk með verstu hljóm- sveitarnöfnum sögunnar, ásamt Sálinni hans Jóns míns og Stuðmönnum,“ segir Stefán og hlær. „En já, við erum alltaf með höfuðföt af ýmsu tagi, og maður hefur heyrt af spennu hjá fastagestum, yf- ir því hvernig höttum við skrýðumst hverju sinni. Það má kannski ljóstra því upp hér og nú að að í tilefni tímamótanna munum við Eyjólfur setja upp hatta úr annarri heimsálfu. Svo verðum við jafnvel í búningum, án þess að ég gefi meira upp um það.“ Jólahattar í tíu ár Ullarhattarnir halda sína árlegu jólatónleika á Þor- láksmessu í tíunda skipti Morgunblaðið/Eggert Ullarhattarnir Frá vinstri: Stefán Hilmarsson, Jóhann Hjörleifsson, Friðrik Sturluson, Eyjólfur Kristjánsson og Jón Ólafsson með trefil á höfðinu. Tónleikarnir hefjast á DOMO fljótlega upp úr kl. 23 á Þorláksmessu. Forsala miða fer fram á DOMO milli 15 og 17 á morgun, og svo verður selt við innganginn. Miðaverð er 2.500 krónur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.