Morgunblaðið - 20.12.2007, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2007 61
www.forlagid.is
Skoðið ávallt leiðbeiningar um rétta
og örugga notkun er fylgja kertum
Munið að slökkva
á kertunum
i l
Slökkvilið Höfuðborgar-
svæðisins
Salurinn
LAUGARDAG 12. JANÚAR 2008 KL. 17
TÍBRÁ: NÝÁRSTÓNLEIKAR
HULDA BJÖRK OG SALONSVEIT
SIGURÐAR INGVA SNORRASONAR.
ÖRFÁ SÆTI LAUS
Miðaverð 2000/1600 kr.
MIÐASALAN ER OPIN VIRKA DAGA
FRÁ KL. 10 – 16 FRAM AÐ JÓLUM
SMELLTU Á NÝJU HEIMASÍÐUNA
WWW.SALURINN.IS OG SKOÐAÐU
FALLEGU GJAFAKORTIN
FRÁBÆR JÓLAGJÖF!
GLEÐILEG JÓL
ÞÖKKUM ÁNÆGJULEGAR
SAMVERUSTUNDIR Á ÁRINU
■ Vínartónleikar
Hinn árlegi og ómissandi gleðigjafi Sinfóníuhljómsveitarinnar í
ársbyrjun. Vinsælustu valsarnir, óperettuaríur, fjör og frábær
skemmtun.
Hljómsveitarstjóri: Ernst Kovacic.
Einsöngvari: Auður Gunnarsdóttir.
Fim. 3. janúar kl. 19.30 nokkur sæti laus,
fös. 4. janúar 19.30 örfá sæti laus og
lau. 5. janúar kl. 17 örfá sæti laus og kl. 21, laus sæti.
■ Fim. 10. janúar kl. 19.30
Ungir einleikarar
Sigurvegarar í einleikarakeppni Listaháskóla Íslands og
Sinfóníuhljómsveitarinnar þreyta frumraun sína með
hljómsveitinni.
Sinfóníuhljómsveit Íslands óskar tónlistarunnendum og
landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is
BANDARÍSKA kvikmyndaeftirlitið
hefur bannað veggspjald við heim-
ildarmynd Alex Gibney, Taxi to the
Dark Side, en hún verður frumsýnd
ytra þann 11. janúar – en myndin
var sýnd á Alþjóðlegu kvik-
myndahátíðinni í Reykjavík í haust.
Myndin fjallar um pyntingar
Bandaríkjamanna, jafnt í Abu
Ghraib, Afganistan og Guant-
anamo.
Myndin á veggspjaldinu hlýtur
hins vegar að teljast afskaplega
saklaus þegar viðfangsefnið er haft
í huga, þar sjást tveir hermenn
leiða hettuklæddan fanga á milli sín
– og mennirnir þrír nánast hverfa
inn í gulan bakgrunn veggspjalds-
ins. Því miður fannst veggspjaldið
ekki í prenthæfri upplausn en það
má sjá á vefsíðu variety.com.
„Það að leyfa ekki mynd af hettu-
klæddum manni af heimildar-
ljósmynd er ritskoðun, svo einfalt
er það,“ sagði leikstjórinn og fram-
leiðandinn Alex Gibney í viðtali við
Variety og fullyrti að aðgerð kvik-
myndaeftirlitsins væri pólitísk að-
gerð sem græfi undan réttmætri
gagnrýni á valdatíð Bush forseta.
„Ég er sammála því að myndin sé
móðgandi – en hún er líka sönn.“
Fangi Þessi ágæti maður yrði vafalítið ritskoðaður af veggspjaldi líka.
Veggspjald bannað
Innihaldið skiptir máli
ÞAÐ hlakkaði í vatíkönskum fjöl-
miðlum í kjölfar slælegrar frammi-
stöðu kvikmyndarinnar Gyllta áttavit-
ans í miðasölunni og margir þeirra
hvöttu framleiðandann, New Line Ci-
nema, til að hætta við að gera fram-
haldsmyndir eftir hinum bókunum
tveimur í þríleik Philips Pullmans um
ævintýri Lýru.
„Það yrði ekki mikill missir ef svo
færi,“ fullyrti l’Osservatore Romano,
opinbert dagblað páfagarðs, í löngum
leiðara þar sem þess var vænst að
myndin næði ekki nógu í kassann til
þess að það réttlætti framhald.
Leiðarahöfundur segir myndina
andkristnustu mynd sem hægt sé að
hugsa sér – sem er óneitanlega nokk-
uð kynleg niðurstaða þegar haft er í
huga að öll ádeila bókarinnar á kirkj-
una var verulega dempuð í bíómynd-
inni, auk þess sem sú ádeila er í raun
ekki í virkilegum forgrunni fyrr en í
annarri og þriðju bókinni.
Aftur á móti virðist allt benda til
þess að mistök kvikmyndagerð-
armannanna liggi fyrst og fremst í því
að þeir reyndu að friða kirkjuna, sem
greinilega hefur ekki tekist, en hins
vegar virðast þeir hafa snúið aðdáend-
um bókanna, sem eru fjölmargir, gegn
sér með því að taka broddinn úr henni.
Glott í
Páfagarði
Ókristileg Það er spurning hvort
þessi ísbjörn viti hversu miklum titr-
ingi hann hefur valdið í Páfagarði?