Morgunblaðið - 19.04.2008, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 19. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
OG
EINN, TVEIR OG REYKJAVÍK!
www.reykjavik.is sími: 411 11 11
SAMRÁÐ UM BETRA
BORGARUMHVERFI
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
STJÓRNARFORMAÐUR Orku-
veitu Reykjavíkur (OR) lagði á stjórn-
arfundi í gær fram tillögu um að gerð
yrði úttekt á verðmæti REI og verð-
mat á verkefnum
þess með það fyrir
augum að fyrir-
tækið gæti ein-
beitt sér að ráð-
gjöf og þróunar-
verkefnum en
hugað verði að
sölu á þeim verk-
efnum sem ekki
féllu undir þá
starfsemi. Af-
greiðslu tillögunn-
ar var frestað að
beiðni fulltrúa
minnihlutans og
ákvað meirihlut-
inn að halda sér-
stakan vinnufund
stjórnarinnar um
málið nk. miðviku-
dag.
Eftir því sem
blaðamaður
kemst næst leggja borgarfulltrúar
mismunandi skilning í þróunarverk-
efni. Þannig bendir Svandís Svavars-
dóttir, borgarfulltrúi Vinstri-grænna
sem sæti á í stjórn OR, á að séu þró-
unarverkefni skilgreind sem verkefni
sem séu til bóta fyrir þau samfélög
sem um sé að ræða þá megi ljóst vera
að öll verkefni REI erlendis séu ekki
aðeins fjárfestingarverkefni, heldur
líka þróunarsamvinnuverkefni. Sig-
rún Elsa Smáradóttir, borgarfulltrúi
Samfylkingarinnar sem sæti á í stjórn
OR, bendir hins vegar á að séu þróun-
arverkefni skilgreind sem verkefni
sem ekki séu rekin í hagnaðarskyni
þá myndu engin núverandi verkefna
REI skilgreinast sem slík.
Borgarstjóra stillt
upp við vegg
„Það er ekki hægt að bjóða borgar-
búum upp á þennan vandræðagang
lengur. Borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins valda hvorki REI, OR né
borginni. Þetta er allt svo krampa-
kennt, tilviljunarkennt og óyfirvegað,
þannig að mér fyndist það kurteisi
gagnvart borgarbúum að þetta fólki
léti þetta bara duga,“ segir Svandís.
„Núverandi meirihluti stefnir OR
og REI í áframhaldandi óvissu, ósátt
og pólitískar deilur. Markmiðið með
stýrihópnum var að frelsa REI út úr
þessum pólitísku deilum. Þessi tillaga
stefnir þeirri sátt hins vegar í upp-
nám,“ segir Svandís og tekur fram að
tillagan stilli borgarstjóranum í
Reykjavík í besta falli upp við vegg og
í versta falli í þá stöðu að ganga á bak
orða sinna. „Því það að að selja verk-
efnin frá REI er náttúrlega að selja
hluta af fyrirtækinu.“
Aðspurð segir Svandís tillögu
stjórnarformannsins ganga þvert á
niðurstöðu hins þverpólitíska stýri-
hóps borgarráðs um málefni REI og
OR sem Svandís stýrði. Bendir hún á
að kjarninn í niðurstöðu hópsins hafi
verið sá að REI yrði í 100% eigu OR
og áfram rekið með það hlutverk að
sinna þróunar- og fjárfestingarverk-
efnum á erlendri grundu. Bendir
Svandís á að þessi afstaða hafi verið
samþykkt á eigendafundi OR 15.
febrúar sl. og því sé ljóst að tillaga
meirihlutans sé eðlisbreyting frá
þeirri samþykkt. Stjórn OR geti ekki
tekið fram fyrir hendurnar á eigend-
um með þessum hætti hvað svo sem
öllum ágreiningi í borgarfulltrúahópi
sjálfstæðismanna liði.
Sá sem fari í mestu fýluna ráði
„Það er greinilegt að sá sem ræður
ferðinni í hópi borgarfulltrúa Sjálf-
stæðismanna er sá sem fer í mestu
fýluna. Í augnablikinu er það Gísli
Marteinn og þá hlaupa allir hinir til og
virðast fá móral yfir þeim samningum
sem búið er að skrifa undir á erlendri
grundu að undanförnu. Það er ekki
hægt að vinna eftir svona duttlunga-
pólitík,“ segir Sigrún Elsa Smára-
dóttir, borgarfulltrúi Samfylkingar-
innar. „Gísli Marteinn sat í stýrihóp
borgarráðs og skrifaði eigin hendi
undir tillögur hópsins fyrir nokkrum
vikum þar sem samþykkt var að REI
ætti að vera í orkuútrás. Ég skil ekki
hvað honum finnst svona hræðilegt
við þetta núna,“ segir Sigrún.
Að sögn Sigrúnar er tillaga meiri-
hlutans sem fram var lögð í gær í
hrópandi ósamræmi við þær skuld-
bindingar sem stjórnarformaður OR
skrifaði nýverið undir á ferðalögum
sínum í Afríku. Segir hún hætt við að
tillagan hafi neikvæð áhrif á verð-
mæti REI og einstaka verkefni fyr-
irtækisins. „Þessi tillaga skaðar REI
og ekki síst samningsstöðu fyrirtæk-
isins gagnvart þeim erlendum bönk-
um sem voru viðstaddir undirskrift-
ina í Djíbútí og eru að gera úttekt á
verkefninu og koma með tillögu að því
hvernig þessum málum verði háttað
og jafnvel að koma inn með víkjandi
lán. Því hver getur treyst á svona fyr-
irtæki sem segir eitt í dag og annað á
morgun?“ spyr Sigrún og tekur fram
að þó svo fari að tillagan verði dregin
til baka þá hafi hún nú þegar valdið
fyrirtækinu skaða.
Hvorki náðist í Kjartan Magnús-
son, stjórnarformann OR, né Júlíus
Vífil Ingvarsson, borgarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokks sem sæti á í stjórn OR,
við vinnslu fréttarinnar.
„Þessi tillaga stefnir sátt-
inni um REI í uppnám“
Hart tekist á um
tillögu meirihluta
stjórnar OR um
framtíð REI
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Svandís
Svavarsdóttir
Sigrún Elsa
Smáradóttir
KRAKKARNIR í 1.-5. bekk Lindaskóla í Kópa-
vogi hafa undanfarnar tvær vikur verið duglegir
að ganga á tveimur jafnfljótum í skólann. Átakið
„Göngum í skólann“ hefur staðið yfir í Lindaskóla
í tvær vikur, en því lauk með formlegum hætti í
gær.
María Guðnadóttir, íþróttakennari í Linda-
skóla, skipulagði átakið, en það náði til barna í
1.-5. bekk. Hún segir það hluta af grænfánaverk-
efninu, sem starfrækt er á grunnskólastigi og
snýst um ýmiss konar umhverfismál.
Í ár er þema verkefnisins umhverfi barnanna
og því fannst Maríu tilvalið að efna til átaks um að
ganga í skólann, í stað þess að foreldrar og for-
ráðamenn aki börnum þangað í bíl.
María segir þátttökuna í átakinu hafa verið afar
góða. Undantekning sé að börnum hafi verið ekið í
skólann þær tvær vikur sem átakið hefur staðið.
„Við höfum verið dugleg við að finna lausnir. Þeim
börnum sem ekki búa í hverfinu hefur verið ekið
til vina sinna og þau gengið þaðan í skólann,“ seg-
ir hún.
María segir umferðaröryggismál í góðu lagi við
Lindaskóla. Skólinn sé miðsvæðis í hverfinu og
undirgöng séu þar sem stórar umferðargötur eru.
Börnin fengu mismunandi verkefni sem tengd-
ust verkefninu, svo sem að teikna myndir, sögur
eða ljóð. Í bígerð sé að veita verðlaun fyrir bestu
myndirnar sem krakkarnir gera, sem og að verð-
launa þann hóp sem best hefur staðið sig í göngu-
átakinu. Einnig er afrakstur átaksins sýnilegur á
veggjum kennslustofa, en börnin hafa klippt út
myndir af ávöxtum af ýmsu tagi eftir gönguna og
límt á veggi.
María segir foreldra hafa tekið átakinu vel.
Nokkuð sé um það að þeir gefi sér ekki tíma til
þess að ganga með börnum sínum í skólann, held-
ur aki þeim þangað í því skyni að spara tíma.
Hún vonast til þess að átakið skili því að börn
og foreldrar gangi í auknum mæli í skólann fram-
vegis.
Dugleg að ganga í skólann
Í Lindaskóla stendur yfir átak sem miðar að því að fá nemendur til að ganga í
skólann Þátttaka í verkefninu er góð og fáum börnum er nú ekið í skólann
Morgunblaðið/Frikki
Ganga Eitt af því sem krakkarnir í 4. bekk
Lindaskóla gera er að telja bæði skref og mín-
útur sem tekur þau að labba í skólann.
„REI hefur síðan
í haust verið
rekið með
gróðasjónarmið
í huga. Menn
hafa farið út í
verkefni erlend-
is í þeirri von að
þau yrðu ábata-
söm og það er að
mínu mati ekki
hlutverk OR að standa í slíkum
rekstri. Þessi tillaga er fyrsta
skrefið í þá átt að við seljum þessa
hluta fyrirtækisins. Þegar búið
verður að selja allan áhætturekst-
ur út úr REI verðum við búin að
selja REI eins og við þekkjum það í
dag. Það hvort þróunardeildin inn-
an OR heitir í framtíðinni REI eða
eitthvað annað er fullkomið auka-
atriði og í raun aðeins skipurits-
mál innan OR,“ segir Gísli Mar-
teinn Baldursson, borgarfulltrúi
sjálfstæðismanna, sem er afar sátt-
ur við fram komna tillögu stjórn-
arformanns OR.
Spurður hvort þessi tillaga
stjórnarformannsins sé í sam-
hljómi við niðurstöðu stýrihóps
borgarráðs um málefni REI og OR
svarar Gísli Marteinn því játandi.
Segir hann stýrihópinn hafa verið
sammála um að REI ætti ekki að
vera í vafasömum og áhættusöm-
um verkefnum á óstöðugum mörk-
uðum. „Stýrihópurinn var hins
vegar sammála um að eðlilegt væri
að það væri þróunardeild til innan
OR og ég sé ekki betur en þessi til-
laga, sem lögð var fram í dag,
gangi nákvæmlega út á þetta.“
Aðspurður segir Gísli Marteinn
ljóst að verkefni REI í Djíbútí séu
meðal þeirra verkefna sem eðlilegt
sé að selja út úr fyrirtækinu.
Spurður hvort ekki hefði verið
eðlilegt að þessi afstaða hefði legið
fyrir áður en fulltrúar REI fóru til
Afríkuríkisins og skrifuðu undir
samninga við þarlend yfirvöld
svarar Gísli Marteinn því neitandi
og bendir á að mikilvægt hafi verið
að gera ekkert í aðdraganda sölu-
ferlis á verkefnum REI sem myndi
rýra verðgildi fyrirtækisins.
Fyrsta skrefið í sölu REI
Gísli Marteinn
Baldursson