Morgunblaðið - 19.04.2008, Blaðsíða 24
lifun
24 LAUGARDAGUR 19. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
jón. Þær eru nú seldar í hönn-
unarverslunum víða í Evrópu og
Bandaríkjunum. Undanfarið hafa
svo hönnunarnemar og bændur
unnið saman að verkefninu Stefnu-
mót hönnuða og bænda við að þróa
nýjar vörur úr íslensku hráefni. Ég
bind miklar vonir við það verkefni.“
Í hönnunarnáminu er lögð mikil
áhersla á alþjóðleg tengsl, m.a. með
því að fá erlenda gestakennara til
landsins. Ritstjóri hönnunarblaðsins
Frame, Robert Thiemann, er próf-
dómari nú í ár og undanfarin þrjú
ár hafa einir virtustu hönnuðir
Bandaríkjanna, hjónin Laurene og
Constantine Boym, kennt við
Listaháskólann ásamt Jurgen Bey,
sem er þekktur hönnuður frá Hol-
landi. „Þetta eru fyrst og fremst
góðir kennarar og hönnuðir sem
Vöruhönnun er ung að árumhér á landi. Byrjað var aðkenna fagið við Listahá-skóla Íslands árið 2000 og
nú er fimmta útskriftarár deild-
arinnar. Sigríður Sigurjónsdóttir,
prófessor í vöruhönnun, segir að í
náminu öðlist nemendur færni til að
starfa sem vöruhönnuðir, bæði
sjálfstætt og í samstarfi við iðn-
aðinn, þar sem fyrirtæki og stofn-
anir spila mikilvægt hlutverk.
„Við þurfum að kynna fagið fyrir
atvinnulífinu og kosti þess að nýta
sér hönnuði til að auka virði vör-
unnar og opna ný tækifæri fyrir
fyrirtæki,“ segir hún. „Vík Prjóns-
dóttir er verkefni sem sýnir þetta
glöggt en þar tóku fimm hönnuðir
sig saman og hönnuðu nýjar vörur
fyrir prjónaverksmiðjuna Víkurpr-
setja okkur í alþjóðlegt samhengi
sem er mjög mikilvægt,“ segir Sig-
ríður.
En hver eru atvinnutækifæri
vöruhönnuða á Íslandi?
„Það er ekki auðsótt að fá vinnu
sem vöruhönnuður á Íslandi en á
hverju ári sé ég samt sem áður opn-
ast fleiri og fleiri tækifæri fyrir ný-
útskrifaða nemendur. Þrátt fyrir að
skilningur á mikilvægi hönnunar
hafi aukist undanfarin ár er þetta
enn vannýtt auðlind. Íslensk fyr-
irtæki ættu að nýta sér vöruhönn-
uði í mun meira mæli,“ segir Sigríð-
ur að lokum.
Vöruhönnunarnámið Laurene og Constantin Boym, gestakennarar frá New York, skoða verkefni nemenda.
Æ fleiri tækifæri að
finna í vöruhönnun
Um þessar mundir útskrifast níu vöruhönnuðir með BA-gráðu frá Listaháskóla
Íslands. Í náminu er lögð áhersla á nána samvinnu við íslenskt atvinnulíf og í ár
eru þrjú lokaverkefni unnin í samstarfi við íslensk fyrirtæki. Hildur Inga Björns-
dóttir kíkti í heimsókn í Listaháskólann.
Útskriftarsýning Listaháskóla Ís-
lands er haldin á Kjarvalsstöðum
dagana 19. apríl – 1. maí.
HOLLENSKIR vísindamenn hafa
komist að því að frumburðir séu
gáfaðastir systkina sinna. En það
hafa stóra systir og stóri bróðir
náttúrlega alltaf vitað sjálf!
Berlingske tidende greinir á vef-
síðu sinni frá rannsóknum vísinda-
mannanna sem eru frá Vrije-há-
skólanum í Amsterdam. Í áraraðir
hafa þeir rannsakað gáfur meira en
1.000 barna, allt frá frumæsku og
fram til 18 ára aldurs.
Niðurstöðurnar eru skýrar. Elsta
barnið í fjölskyldunni hefur oftast
hæstu greindarvísitöluna og það
yngsta þá lægstu. Algengur munur
á elsta og yngsta barni eru þrjú
greindarvísitölustig.
Minni tími á barn þegar systk-
inahópurinn er stór
Og hvers vegna skyldi þessi mun-
ur vera?
Vísindamennirnir eru ekki vissir í
sinni sök en hafa uppi nokkrar
kenningar sem aðallega gera ráð
fyrir að muninn megi skýra með
umhverfisáhrifum. Einn möguleik-
inn er sá að foreldrarnir veiti börn-
um sínum minni athygli eftir því
sem þeim fjölgar. Því fleiri ungar
sem koma í hreiðrið, því minni tími
verður fyrir hvert og eitt barn.
Auk mismunandi gáfnafars virð-
ist systkinaröðin hafa áhrif á hætt-
una á því að þróa með sér sjúkdóma
á borð við astma og exem, sam-
kvæmt rannsókninni. En á því hafa
vísindin enga skýringu fundið
ennþá.
Elsta systkinið gáfaðast
AP
Bræður og systur Skyldi fremsti unginn í þessum föngulega systkinahóp
vera elstur...og þá gáfaðastur? Í öllu falli hegðar hann sér vel í umferðinni.
- kemur þér við
Magnús Kristins-
son hefur aldrei setið
auðum höndum
Álfrúnu Guðrúnar-
dóttur finnst leiðin-
legast að skúra
Á Laufskálum geta
geimverur haft
fimm rassa
Taflfélag Bolugar-
víkur vill verða
stórveldi
Danskir aðdáendur
bíða spenntir eftir Bo
Hvað ætlar þú
að lesa í dag?