Morgunblaðið - 19.04.2008, Blaðsíða 64
LAUGARDAGUR 19. APRÍL 110. DAGUR ÁRSINS 2008
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Unnið að lausn vanda
Að undanförnu hefur verið unnið
baki brotnu að því á vegum ríkis-
stjórnarinnar og Seðlabankans að
greiða úr þeim vanda sem alþjóð-
legar aðstæður hafa skapað fyrir ís-
lenskt efnahagslíf. Þetta var meðal
þess sem fram kom í ræðu Geirs H.
Haarde forsætisráðherra á aðal-
fundi Samtaka atvinnulífsins í gær.
» Forsíða
Tillaga um úttekt á REI
Stjórnarformaður Orkuveitu
Reykjavíkur lagði á stjórnarfundi í
gær fram tillögu um úttekt á verð-
mæti REI og verðmat á verkefnum
þess með það fyrir augum að fyrir-
tækið geti einbeitt sér að ráðgjöf og
þróunarverkefnum. » 4
Netþjónabú 2010
Áætlað er að fyrsti áfangi net-
þjónabús í Þorlákshöfn verði tekinn
í notkun árið 2010 og að þar muni í
fyrstu vinna 25-30 manns. » 16
SKOÐANIR»
Staksteinar: Ísland og mannréttindi
í Kína
Forystugreinar: Óviðunandi að-
stæður | Athyglisverð tilraun
UMRÆÐAN»
Heiðmörk eða Hólmsheiði
Fyrirmunað að gera mistök?
Vegur þvert yfir Kársnesið?
Úrslitakeppni, takk
Þið munuð öll deyja!
Brjálaðir vísindamenn eða hálfguðir
í hvítum sloppum
Þangað!
LESBÓK»
3
3%
3 3 3 %3
4 +5#& .!
#* !+
6!
!! ##$#1 3
3 3 3 3%%
3 %3
- 7 1 & 3
3 3 3 3 3 3%
89::;<=
&>?<:=@6&AB@8
7;@;8;89::;<=
8C@&7#7<D@;
@9<&7#7<D@;
&E@&7#7<D@;
&2=&&@$#F<;@7=
G;A;@&7>#G?@
&8<
?2<;
6?@6=&2*&=>;:;
Heitast 12° C | Kaldast 5° C
Hæg breytileg átt og
léttskýjað en skýjað
með köflum suðvestan-
og vestanlands. Víða
næturfrost í innsveitum. » 10
Beirút er stríðshrjáð
en þó enn falleg
borg og þar eiga
menn sér drauma og
vonir líkt og annars
staðar. » 57
AF LISTUM»
Fagrar kon-
ur í Beirút
TÓNLIST»
Eyþór er söngvarinn í
Bandi Bubba. » 58
Ort er um mótmæli
að þessu sinni á göt-
um Reykjavíkur, að
ringulreiðin raunir
manna bæti og nú
halli undan fæti. » 55
ORÐ SKULU STANDA»
Ringulreið
og læti
FÓLK»
12,5 milljónir punda fyrir
tvenna tónleika. » 60
TÓNLIST»
Damien Rice á Íslandi í
fjórða sinn. » 54
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. „Afi, löggan gaf mér kók“
2. Tapaði 3,1 milljarði á 3 mánuðum
3. NYT fjallar um ísl. efnahagslíf
4. Aniston „fallegri með aldrinum“
Íslenska krónan stóð í stað.
STUNDUM koma verslanir neyt-
endum ánægjulega á óvart. Þótt há-
tískufatnaður geti verið óheyrilega
dýr, enda yfirleitt um einstaka hönn-
un að ræða, er iðulega hægt að gera
frábær kaup á slíkum fatnaði á útsöl-
um. Í einni helstu tískugötu Berlín-
arborgar eru seld föt hönnuða sem
kallast MARIOS en þau hafa einnig
fengist á Íslandi í versluninni Libor-
ius á Laugavegi.
Á útsölu í versluninni í Berlín var
hægt að fá kjól frá Marios fyrir
14.000 krónur en sams konar kjóll
kostaði umtalsvert minna á útsölu-
verði í Liborius fyrir skömmu á síð-
ustu dögum útsölu. | fbi@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Auratal
UNGUR bók-
mennta-
fræðingur, Davíð
Stefánsson, hefur
komið á fót þjón-
ustu þar sem
hann hjálpar fólki
að koma hugs-
unum sínum í fal-
legan búning.
Meðal þess sem
hann býður upp á er aðstoð við að
skrifa ljóð og ástarbréf. Morg-
unblaðið fékk Davíð til þess að end-
urskrifa frekar vont ástarbréf. | 61
Kemur fyrir
þig orði
Davíð Stefánsson
Í HUGUM margra er vorið tíminn þegar menn fara að
dusta rykið af hjólum sínum og njóta þess að þjóta um á
reiðfáknum undir hækkandi sól. Það er hins vegar
betra að hjólin séu í lagi og rétt stillt.
Íslenski fjallahjólaklúbburinn bauð öllum, sem áhuga
höfðu, á frítt hjólaviðgerðanámskeið og þáði nokkur
fjöldi hjólreiðagarpa það góða boð. Þetta var annað af
þremur námskeiðum klúbbsins í aprílmánuði, en síð-
asta námskeiðið, sem er framhaldsnámskeið, verður
haldið sumardaginn fyrsta.
Fákurinn gerður klár
Íslenski fjallahjólaklúbburinn undirbýr hjólreiðamenn
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
MAREL ehf. hefur boðið starfs-
mönnum sínum hér á landi, sem eru
með meira en sex mánaða starfsald-
ur, að fá hluta launa greiddan í evr-
um. Fyrsta útborgun með þeim
hætti var 15. mars síðastliðinn. Ná-
lægt 20 af um 370 starfsmönnum
Marels ehf. á Íslandi hafa samið um
að fá hluta launa í evrum. Snorri H.
Þorkelsson, fjármálastjóri Marels
ehf., taldi að sviptingar í gengi gjald-
miðla undanfarið hafi valdið því að-
starfsmenn fari sér hægt í að semja
um laun í evrum.
Fyrirkomulagið er þannig að vilji
starfsmaður fá t.d. 20% launa sinna
tengd við evru er miðað við gengi
evrunnar tiltekinn dag um það leyti
sem samningur um launafyrirkomu-
lag er gerður. Út úr því kemur
ákveðin upphæð í evrum. Starfsmað-
urinn mun síðan fá þá upphæð í evr-
um greidda meðan samningurinn
gildir. Ef gengi krónunnar styrkist
gagnvart evru ber launamaðurinn þá
í raun minna úr býtum en ef hann
hefði þegið öll launin í íslenskum
krónum.
„Hugmyndin er sú að fólk sem er
með erlend lán geti fest hluta launa
sinna við mánaðarlega afborgun í er-
lendri mynt. Við höfum bent öllum á
að ræða við þjónustufulltrúa í sinni
lánastofnun. Í dag eru ekki mikil
tækifæri fyrir fólk að breyta skuld-
um í erlend lán, en það ríktu aðrar
aðstæður þegar farið var af stað með
þessa hugmynd,“ sagði Snorri.
Stéttarfélög hafa að undanförnu
verið að setja í samninga ákvæði um
að fólk geti fengið laun í evrum. | 6
Fá hluta launa í evrum
Sviptingar á gjaldeyrismörkuðum valda því að fólk fer sér
hægt í að nýta sér þann möguleika að fá greidd laun í evrum
Í HNOTSKURN
»Lækkun á gengi krónunnargagnvart öðrum gjaldmiðlum
gerir það að verkum að ekki er
eins hagkvæmt og áður að fá
laun greidd í evrum. Það getur
þó verið hagkvæmt að fá greitt í
evrum ef fólk er með lán í er-
lendri mynt.
»Kjarasamningar sem gerðirhafa verið á þessu ári inni-
halda ákvæði sem gerir launþeg-
um kleift að fá laun sín greidd í
evrum ef þeir óska eftir því.
Morgunblaðið/Sverrir
Marel Um 20 starfsmenn Marels fá
hluta launa sinna greiddan í evrum.
♦♦♦
ÍSLENSKA landsliðið í handknatt-
leik karla mætir landsliði Eistlands
í fyrsta leik undanriðils Evr-
ópukeppninnar. Leikurinn verður
háður á Íslandi í lok október.
Í riðli Íslendinga eru að auki
Noregur, Makedónía, Belgía og
Moldóva. | Íþróttir
Mæta Eistum
í fyrsta leik
♦♦♦