Morgunblaðið - 19.04.2008, Síða 6
6 LAUGARDAGUR 19. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Enginn gærdagur og enginnmorgundagur, engin fortíðog engin framtíð. Ég er föst ímartröð nútíðarinnar og ég
kemst ekki út. Staðirnir sem ég þekkti
einu sinni eru horfnir, rétt eins og þeir
hafi aldrei verið til. Fólkið sem mér þótti
vænt um er horfið, rétt eins og þau hafi
aldrei verið til. Ekki ein einasta sönnun
fyrir tilveru þeirra, aðeins óglöggar
minningar í gegnum blóði drifna móðu,
og hrörnandi angistaróp og vein mann-
legrar þjáningar. Þetta er Írak í dag.“
Svo skrifar ung írösk kona um landið
og þjóðina, lífið og framtíðina sem hún
hefur verið rænd í nafni frelsis og lýð-
ræðis. Og hún spyr: „Bush og félagar
hans þykjast ætla að breyta heiminum.
En hvenær ætla þeir að breyta sjálfum
sér?“
Hver dagur í pólitík færir mér heim
sanninn um það hve orð geta verið lítils
virði. Stefna heilla stjórnmálaflokka
lendir ofan í skúffu við minnsta áhlaup –
innantóm orð á blaði sem lítið mark er á
takandi þegar á reynir.
Verkin ein tala – já, það eru verkin ein
sem tala, alltaf, alls staðar.
Nú velti ég fyrir mér svarinu við
spurningu ungu írösku konunnar:
Hvernig ætlum við að breyta okkur
sjálfum? Hvernig getum við sýnt í verki
að við iðrumst innrásarinnar í Írak og
stríðshörmunganna í Afganistan?
Hvernig getum við sýnt í verki að við töl-
um máli friðar en ekki hernaðar í heim-
inum, að við tölum máli hinna kúguðu en
ekki þeirra sem kúga?
Ísland er lítið land og við erum fá-
menn þjóð sem langflestir í heiminum
taka lítið eftir og vita nær ekkert um.
Slíkt hefur stórkostlega kosti í för með
sér, rétt eins og það hefur tækifæri í för
með sér að bandaríski herinn sé nú far-
inn af landi brott.
Við þurfum ekki að vera upptekin af
sömu hlutum og stórveldi sem alls staðar
eiga sér hatursmenn og óvini.
Hin stríðshrjáða heimsbyggð þráir að
vita af herlausu landi sem stendur með
friði og hafnar blóðsúthellingum. Það er
hægt að hafna múgæsingunni, áróðr-
inum, stórveldaklíkunum, hernaðar-
bandalögunum, eiginhagsmunapólitík-
inni og öllu því pukri sem einkennir
„varnarmálastofnanir“ heimsins.
Sum smáríki Mið-Ameríku leitast
núna við að vera slíkar herlausar raddir
friðar þrátt fyrir að vera umkringd
hringiðu átaka. Hvers vegna ekki við?
Stuðningurinn við innrásina í Írak var
byggður á blindri hlýðni við hernaðar-
stefnu og ítrekaði siðleysi Íslands í al-
þjóðasamfélaginu. Því siðleysi er áfram
haldið uppi af NATO, hernaðarbanda-
lagi sem er ábyrgt fyrir um 70% af öllum
útgjöldum til hernaðar í heiminum og
krefst þess nú af aðildarríkjum sínum að
þau auki enn útgjöld til hermála.
Í því kalli NATO til hervæðingar ligg-
ur ný ríkisstjórn Íslands ekki á liði sínu.
Í fyrsta skipti í sögunni er Íslending-
um ætlað að taka fullan þátt í hern-
aðarstarfi NATO, þar á meðal í her-
stjórnarmiðstöðvum bandalagsins.
Ísland skal nú veita aðstoð sem er hern-
aðarlegs eðlis og herir NATO eiga að
koma hingað reglulega til heræfinga. Ís-
land sendir enn fleiri menn undir vopn-
um til hins stríðshrjáða Afganistans og
samþykkir möglunarlaust þá ögrandi til-
lögu innan NATO að Bandaríkjastjórn
setji upp eldflaugavarnarkerfi sitt í Mið-
og Austur-Evrópu. Og ýmislegt fleira.
Nú skal meira en einn og hálfur millj-
arður fara í glænýjan fjárlagalið, „varn-
armál“, og glænýtt íslenskt ríkisbákn,
„Varnarmálastofnun“ – lítið hermála-
útibú NATO í norðri.
Mahatma Gandhi og fólki hans í ör-
birgð tókst með friðsamlegum hætti að
knésetja heilt heimsveldi hernaðar og
kúgunar. Gandhi sagði m.a.:
„Ég get ekki kennt ykkur ofbeldi af
því að ég trúi ekki á ofbeldi. Ég get að-
eins kennt ykkur að krjúpa ekki í duftið
fyrir neinum, ekki einu sinni þótt lífi
ykkar sé ógnað.“
Hver ógnar okkur? Enginn. Enn hef-
PISTILL »Hvernig getum við sýnt
í verki að við tölum máli
friðar en ekki hernaðar í
heiminum, að við tölum
máli hinna kúguðu en ekki
þeirra sem kúga?
Guðfríður Lilja
Grétarsdóttir
Enginn gærdagur
ur engin ógn verið skilgreind sem kallar
á að við hegðum okkur svo kjánalega.
Fyrst skal vígbúast og bruðla, svo skal
skilgreina ógnina, búa hana til.
Getur verið að almenn löggæsla í land-
inu, björgunarsveitir, Landhelgis-
gæslan, almannavarnir, mengunar-
varnir, tollgæsla, landamæraeftirlit –
svo fátt eitt sé nefnt – þurfi á milljörð-
unum að halda, milljörðunum sem nú
flæða til NATO – og hervæðingar Ís-
lands?
Herlaus þjóð norður í höfum sem allt-
af og án undantekningar talar fyrir friði
og stendur utan hernaðar – í verki. Slíkt
er eftirsóknarvert.
Hljóðpistlar Morgunblaðsins,
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir
les pistilinn
HLJÓÐVARP mbl.is
KJARASAMNINGUR milli sam-
taka verslunarmanna, VR og LÍV,
og Félags íslenskra stórkaupmanna
(FÍS) hefur verið undirritaður með
fyrirvara um samþykki beggja
samningsaðila. Verði samningurinn
samþykktur mun hann gilda frá 1.
febrúar síðastliðnum.
Samningurinn er í meginatriðum
sambærilegur við nýgerðan kjara-
samning VR/LÍV og Samtaka at-
vinnulífsins (SA) og með sama samn-
ingstíma. Í samningnum við FÍS er
kveðið á um sérstaka launaþróunar-
tryggingu fyrir starfsfólk sem var í
starfi hjá sama atvinnurekanda 1.
október 2006. Í samningum VR er
m.a. sú nýjung að heimilt verður að
greiða hluta fastra mánaðarlauna í
erlendum gjaldmiðli eða tengja hluta
fastra launa við gengi erlends gjald-
miðils.
Gunnar Páll Pálsson, formaður
VR, sagði að samningurinn við FÍS
næði til tæplega 10% félagsmanna
VR eða um 2.500
manns. Í ljósi að-
stæðna á mark-
aði nú hafi verið
ákveðið að gera
sambærilegan
samning við FÍS
nú og gerður var
við SA. Tölur eru
þó lítið eitt frá-
brugðnar vegna
þess að FÍS-
samningurinn var hreinræktaður
markaðslaunasamningur og var
hann færður til samræmis við það
sem gert var í samningnum við SA.
Sömu endurskoðunarákvæði og gild-
istími er í samningunum. „Við ætlum
að hafa þetta eins næsta árið og tök-
um stöðuna þá,“ sagði Gunnar Páll.
Samningsaðilar skipa tvo fulltrúa
hvor í nefnd sem á að ákveða í febr-
úar 2009 hvort samningurinn verður
látinn gilda út samningstímann, til
30. nóvember 2010.
VR samdi við Félag
stórkaupmanna
Gunnar Páll
Pálsson
LÖGREGLAN á Suðurnesjum lagði
hald á um 130 grömm af amfeta-
míni á fimmtudagskvöldið og hand-
tók í kjölfarið þrjá karlmenn á þrí-
tugsaldri.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu var bifreið stöðvuð við reglu-
bundið eftirlit í Grindavík. Öku-
maður var grunaður um akstur
undir áhrifum fíkniefna og var því
leitað í bíl hans. Fundust 120 g af
amfetamíni og 10 g til viðbótar í
heimahúsi í bænum. Þar voru hinir
mennirnir tveir. Allir gistu þeir
fangageymslur en voru látnir lausir
í gær. Málið telst upplýst.
Með amfeta-
mín í bílnum
UNDIRBÚN-
INGS-
HÓPUR
væntanlegra
hollvina-
samtaka Frí-
kirkjuvegar
11 í Reykja-
vík segist ekki fá aðgang að húsinu
til að halda stofnfund félagsins þar
á sunnudag.
Í tilkynningu frá undirbúnings-
hópnum, sem Þorleifur Gunn-
laugsson, borgarfulltrúi VG, fer
fyrir, segir að til hafi staðið að opna
húsið að Fríkirkjuvegi 11, fá borg-
arminjavörð til að veita þar leið-
sögn og hönnuð garðsins til að veita
leiðsögn um hann. Leyfi hafi verið
veitt til opnunar hússins og eft-
irvænting orðin talsverð. Nú síð-
degis hafi svo borist þær fregnir
frá Framkvæmdasviði Reykjavík-
urborgar að leyfið hefði verið aft-
urkallað og húsið yrði lokað.
Ætla að stofna
hollvinasamtök
TVEIR árekstrar urðu með
skömmu millibili á vegamótum
Grænáss og Reykjanesbrautar í
gær. Úr hvorum árekstri voru þrír
slasaðir fluttir til aðhlynningar á
sjúkrahúsi. Tildrög slysanna voru
með svipuðum hætti. Bílarnir sem
komu að stöðvunarskyldu við
Grænás munu ekki hafa séð aðvíf-
andi umferð á Reykjanesbrautinni
og ekið í veg fyrir bílana.
Sex fluttir
á sjúkrahús
IÐNAÐARMENN framtíðarinnar
etja kappi á Íslandsmóti iðngreina
sem hófst í Laugardalshöll í gær-
morgun – og lýkur með verðlauna-
afhendingu klukkan 16.30 í dag.
Þegar ljósmyndara Morgunblaðsins
bar að garði, var Birkir Sigur-
sveinsson, nemi í bifvélavirkjun,
önnum kafinn við að tengja saman
alls kyns snúrur og víra.
Markmiðið með mótinu er að
vekja athygli á iðn- og starfs-
menntun, kynna hana fyrir almenn-
ingi og eins þau tækifæri sem fel-
ast í námi og starfi í iðngreinum.
Auk bíliðngreina er keppt í málm-
suðu, trésmíði, hársnyrtingu, upp-
lýsinga- og fjölmiðlagreinum og
rafvirkjun.
Einnig er hægt að fylgjast með
mótinu í gegnum vefinn, á vefsvæði
islandsmot.skillsiceland.is
Íslandsmót iðngreina hófst í Laugardalshöll í gærmorgun
Iðnaðar-
menn fram-
tíðarinnar
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Opið í dag til 13
Kópavogur, Smiðjuvegi 68 - 70, sími 544 5000 | Njarðvík , Fitjabraut 12, sími 421 1399
Selfoss, Gagnheiði 2, sími 482 2722
Þann áttu nagladekkin
að vera farin af.
býður eitt mesta úrval landsins af sumardekkjum
og álfelgum.
Komdu í
í dag og skiptu yfi r í sumarið.