Morgunblaðið - 19.04.2008, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. APRÍL 2008 17
ÞRÁTT fyrir
að mikið tap
hafi orðið af
rekstri Citigro-
up á fyrsta árs-
fjórðungi varð
það ekki til
þess að draga
kjarkinn úr
fjárfestum
vestanhafs enda var afkoma bankans
yfir spám greinenda. Citi var þó ekki
eina fyrirtækið sem skilaði betra
uppgjöri en búist hafði verið við. Hið
sama gerðu Google, Caterpillar og
Xerox.
Dow Jones-iðnaðarvísitalan
hækkaði um 1,8% í gær og samsetta
Nasdaq-vísitalan um 2,6%. S&P 500-
vísitalan hækkaði um 1,8% og var
dagurinn í gær sá fjórði í röð sem
S&P hækkar en vísitalan, sem oftast
er notuð sem viðmið um þróun hluta-
bréfamarkaðarins vestanhafs, hefur
ekki hækkað jafnmikið á einni viku
síðan í febrúar. Að sögn Bloomberg
hefur hún ekki verið jafnhá síðan 1.
febrúar sl. en almennt virðist ríkja
meiri bjartsýni á meðal fjárfesta en
um langa hríð og á það ekki síst við
um trú þeirra á afkomu fyrirtækja.
Austan Atlantshafsins hækkuðu
hlutabréf einnig. FTSE-vísitalan í
London hækkaði um 1,3% en DAX-
vísitalan í Frankfurt gerði enn betur
og hækkaði um 2,4%. Í Tókýó hækk-
aði Nikkei-vísitalan um 0,6%.
Töluverð
hækkun
hlutabréfa
ALÞJÓÐLEGA matsfyrirtækið
Standard & Poor’s lækkaði í fyrra-
dag lánshæfismat Íbúðalánasjóðs
vegna langtímaskuldbindinga í ís-
lenskum krónum úr AA- í A+ með
neikvæðum horfum.
Jafnframt var lánshæfiseinkunn
vegna langtímaskuldbindinga í er-
lendri mynt lækkuð úr A+ í A með
neikvæðum horfum. Þá var lánshæf-
iseinkunn fyrir skammtímaskuld-
bindingar í íslenskum krónum lækk-
uð úr A-1+ í A-1 en einkunn fyrir
skammtímaskuldbindingar í er-
lendri mynt A-1 var staðfest.
Lækkun á lánshæfismati Íbúða-
lánasjóðs var gerð í kjölfar lækkunar
á lánshæfismati ríkissjóðs Íslands,
sem Standard & Poor’s tilkynnti
einnig um í fyrradag en vegna rík-
isábyrgðar Íbúðalánasjóðs er láns-
hæfismat sjóðsins jafnan það sama
og ríkisins.
Lánshæfismat
Íbúðalána-
sjóðs lækkað
Morgunblaðið/Sverrir
ÍSLENSKA flugleitarvélin dohop
hefur nú verið sett upp á japönsku á
netinu. Nær sú útgáfa, www.do-
hop.jp, til 73 flugfélaga sem þjón-
usta japanska markaðinn, þar af eru
16 þeirra staðsett í Japan.
Japanir fá nú aðgang að áætlun
um ferðir ca. 600 flugfélaga um allan
heim sem fljúga til um 3.000 áfanga-
staða, þar af um 100 lággjaldafélaga.
Í frétt frá dohop, sem birt var í
mörgum erlendum fjölmiðlum, er
haft eftir Frosta Sigurjónssyni, for-
stjóra dohop, að japanska leitarvélin
sé mikilvægt skref fyrirtækisins inn
á nýja markaði þar sem staðbundn-
ar útgáfur verði settar upp og þýdd-
ar.
Dohop á
japönsku
KOSTNAÐUR við að tryggja
skuldir íslensku bankanna hefur
lækkað um 30-40% frá því hann
náði hámarki sínu fyrir um það bil
þremur vikum. Álag á bréf Kaup-
þings var þá 985 punktar, en er nú
675, Glitnir var í 1040 punktum en
er nú í 680 og Landsbankinn hefur
lækkað úr 850 niður í 485 punkta.
Í heild er þessi þróun í takt við
aðra banka í Evrópu, þó sveifl-
urnar séu ýktari hérlendis. Mark-
aður með skuldatryggingar ís-
lensku bankanna er ekki mjög
virkur, svo einstök viðskipti geta
haft mikil áhrif.
Í frétt Financial Times kemur
að fram að lækkunin gefi til kynna
að vogunarsjóðirnir, sem sakaðir
hafa verið um árásir á íslenska
markaðinn og krónuna, hafi hopað.
Þar er einnig greint frá rannsókn
Fjármálaeftirlitsins á árásunum,
skyndilegri vaxtahækkun Seðla-
bankans og orðum forsætisráð-
herra, um að verja fjármálakerfið
ef til kæmi. Lægri lánshæfisein-
kunn ríkisins frá Standard & Po-
or’s gæti þó unnið á móti jákvæð-
um áhrifum þessara þátta.
( )* +
,
-
!* 6I
./ 0
7
4
)
7
&1 ! )/""
J K ; G
6 &
Tryggingarálag
þriðjungi lægra
Tökum við umsóknum núna
Kynntu þér námið á www.hr.is
VILTU STUNDA NÁM VIÐ HR OG MIT SAMTÍMIS?
Háskólinn í Reykjavík hefur gert samstarfssamning við einn besta og virtasta tækni-
háskóla í heimi, MIT í Boston í Bandaríkjunum. Með þessum samningi gengur HR inn í
samstarf MIT og háskóla í Singapúr sem gerir meistaranemum í verkfræði við HR kleift
að taka hluta námskeiða sinna við MIT.
MIT er einn framsæknasti háskóli í heimi og hefur starf skólans getið af sér tæknilegar
framfarir á ótal mörgum sviðum. Þessi samningur er lýsandi dæmi um þá framsækni
og þann stórhug sem einkennir allt starf Háskólans í Reykjavík.
Hefurðu áhuga á verkfræðinámi? Komdu þá í HR og MIT samtímis.
Framtíðin er HR.
Rekstrarverkfræði BSc Ákvarðanaverkfræði MSc Fjármálaverkfræði BSc & MSc
Heilbrigðisverkfræði BSc & MSc Hugbúnaðarverkfræði BSc & MSc Véla- og rafmagnsverkfræði MSc
Hátækniverkfræði BSc
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
8
-0
6
0
8
♦♦♦