Morgunblaðið - 19.04.2008, Side 21

Morgunblaðið - 19.04.2008, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. APRÍL 2008 21 AKUREYRI Lóðir í Englandi kynningarfundur í dag kl. 13:00 á Friðriki V. Á kynningarfundi á Friðriki V. kl. 13:00 í dag munu Brynhildur Sverrisdóttir, Páll Pálsson og Helga Ólafsdóttir, kynna lóðir í Englandi sem nýjan fjárfestingarkost. Hingað til hefur það aðeins verið á færi stórra fjárfesta að kaupa land og hagnast á því. Nú munu margir geta nýtt sér þetta. Á óvissu tímum hækkar land og hrávörur mikið. Á sama tíma og fasteignaverð er að lækka í Englandi hefur verð á landi hækkað og fer hækkandi. Mikil ásókn er í byggingarland þar enda er skortur á húsnæði í Englandi. Þau sem hafa áhuga á að kynna sér þetta mál eru velkomin á fundinn í dag.  Tíu sýningar verða opnaðar í Safnasafninu á Svalbarðsströnd í dag kl. 14, m.a. eru til sýnis 639 pappírsmyndir eftir Ingvar Ellert Óskarsson (1944-2002) unnar á 8. og 9. áratug síðustu aldar.  Í dag kl. 14 verður opnuð sýn- ingin Sjónvit á verkum Jorid Ra- demakers í Populus Tremula. Verkin eru unnin á 20 ára tímabili, frá 1988 til dagsins í dag. Sýningin er aðeins þessa einu helgi.  Tvíburasysturnar Gunnhildur og Brynhildur Þórðardætur opna sýn- inguna Prjónaheim Lúka í dag kl. 16 í galleriBOXi.  Sýning á verkum Jóns Laxdal Halldórssonar verður opnuð í dag kl. 14 í Jónas Viðar Gallery. Sýndir verða hlutir gerðir úr bókum, pappa, gleri og þaksaumi, allir nýir af nálinni undir heitinu fáeinir for- titlar og bók eftir Mann.  Í tilefni af útkomu norrænu söngbókarinnar Ska nya röster sjunga koma fram í Deiglunni kl. 15 í dag Bengt Hall frá Svíþjóð, rit- stjóri söngbókarinnar og harm- onikkuleikari, og Per Warming frá Danmörku, rithöfundur, söngva- skáld og söngvari. Aðrir flytjendur eru Gunnar Guttormsson, Þórarinn Hjartarson og Solveig Hrafns- dóttir, Kristján Hjartarson og Kristjana Arngrímsdóttir. Að- gangseyrir er 1.500 krónur.  Nemendur og kennarar Tónlist- arskólans á Akureyri og Sinfón- íuhljómsveit Norðurlands verða með tónleika í íþróttahúsi Gler- árskóla á morgun kl. 16. Einleikari er Vilhjálmur Ingi Sigurðsson.  Í tilefni af 50 ára afmæli körfu- knattleiksdeildar Þórs verða styrktartónleikar á morgun kl. 16 í Glerárkirkju. Álftagerðisbræður ásamt „Konnurunum“ syngja. Und- irleikarar eru Stefán R. Gíslason og Helga Bryndís Magnúsdóttir. Miða- verð er 2.500 krónur. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Listamenn á hverju strái Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is STEFÁN Gunnlaugsson var kjörinn formaður Knattspyrnufélags Akur- eyrar á dögunum – 38 árum eftir að hann tók síðast við sama embætti. Hann hefur lengi sinnt stjórn- unarstörfum fyrir KA og var gerður að heiðursfélaga í vetur. „Þegar ég byrjaði í þessu á sínum tíma var maður í tvöfaldri eða þre- faldri vinnu og að koma upp fjöl- skyldu. Nú finnst mér ég hafa góðan tíma; hættur á Bautanum og er í hálfu starfi sem sölumaður fast- eigna, löngu búinn að koma upp öll- um mínum börnum, hef það gott fjárhagslega og þess vegna finnst mér ég alveg geta eytt tíma í KA. Ég hef örugglega skilað mínu til félags- ins í gegnum árin, en ég vil taka þátt í því að byggja það upp núna, árang- urslega en ekki síður félagslega,“ segir Stefán, spurður hvers vegna hann hafi gefið kost á sér á ný. Hann er á þeirri skoðun að íþróttafélag geti ekki náð virkilega góðum árangri í keppni nema vera sterkt félagslega og leggur því mikla áherslu á þá hlið. Spennandi Stefáni finnst líka mjög spennandi að taka þátt í þeirri uppbyggingu sem er framundan á félagssvæðinu. „Hér byrja miklar framkvæmdir í haust. Aðalkrafturinn er á Þórs- svæðinu [vegna Landsmóts UMFÍ 2009] en bærinn ætlar að leggja fót- boltagras hjá okkur, upphitað. Það verður tilbúið á næsta ári með flóð- ljósum en stúkan kemur seinna. Mig langar að taka þátt í þessu.“ Nýi formaðurinn segist heyra margar óánægjuraddir með það sem bæjaryfirvöld gera fyrir íþrótta- hreyfinguna en telur gagnrýnina ósanngjarna. „Mér finnst bærinn hafa staðið sig mjög vel að mörgu leyti. Við megum ekki gleyma að ekki eru nema rúmlega 30 ár síðan KA hafði enga aðstöðu. Nú er hún mjög góð, bæði hjá okkur og Þór.“ Hann segir að þrátt fyrir frábæra aðstöðu hafi félagslegi þátturinn dofnað. „Það er okkur KA-félögum sjálfum að kenna og engum öðrum. Ég er ekki að kasta rýrð á stjórnar- menn síðustu ára, þeir hafa verið að taka til peningalega og gert það vel þannig að ég kem að mörgu leyti að betra búi en ég hefði gert fyrir 10 eða 15 árum. En mér fannst ég ekki geta verið úti í horni og gagnrýnt, heldur verða að koma og taka þátt í því að efla félagsandann. Ég vil að fólk komi miklu meira í KA-heimilið, ekki bara KA-menn því ég vil gera heimilið að miðstöð fyrir alla á brekkunni, allt frá litlum börnum upp í elstu kynslóðina.“ Stefán var lengi formaður knatt- spyrnudeildar, einnig gjaldkeri að- alstjórnar og í eitt ár var hann for- maður handknattleiksdeildar KA. Þá var hann formaður bygging- arnefndar KA-heimilisins sem tekið var í notkun 1986. Þá stund, ásamt því þegar KA fagnaði Íslandsmeist- aratitli í knattpyrnu 1989 (þegar hann var formaður knattspyrnu- deildar) segir Stefán þá stærstu fyr- ir sig persónulega sem KA-mann. Stórkostlegt „Sumarið 1989 vorum við með ein- stakan leikmannahóp, samhenta stjórn og frábæran þjálfara. Við stefndum auðvitað á efri hluta deild- arinnar en höfðum varla sjálfir trú á því sjálfir að við gætum unnið. Það var stórkostlegt að félagið varð Ís- landsmeistari og ég held að miklu máli hafi skipt hvað KA var félags- lega sterkt á þessum tíma. Ég er á þeirri skoðun og get stutt það góðum rökum, að KA hafi á þessum árum líklega verið sterkasta félag lands- ins. Við vorum á toppnum í meist- araflokki karla í fótbolta og blaki, áttum bestu júdómenn landsins og handboltinn var að verða stórveldi. Og þá voru líka mjög góðir skíða- menn í KA þó þeir hafi reyndar keppt í nafni Skíðaráðs Akureyrar.“ Heiðursfélaginn orð- inn formaður aftur Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Í forystu Stefán Gunnlaugsson, nýkjörinn formaður KA: Íþróttafélag get- ur ekki náð virkilega góðum árangri nema vera mjög sterkt félagslega. Í HNOTSKURN »Stefán Gunnlaugsson varðvaraformaður KA 1969 og formaður árið eftir. Hann var kjörinn formaður félagsins á ný fyrir fáeinum dögum. »Stefán var formaður knatt-spyrnudeildar KA í samtals 15 ár og sat í stjórn KSÍ í 9 ár. STEBBI Gull hefur lengi haft áhuga á fótbolta og spilar enn tvisv- ar í viku. En hann er hreinskilinn um hæfileikana: „Ég var næstléleg- astur og því settur á hægri kantinn, sá lélegasti var alltaf á vinstri kant- inum!“ segir hann þegar árin í yngri flokkunum eru rifjuð upp. Hann var í flokki með þremur mjög góðum leikmönnum; Kára Árnasyni, Skúla Ágústssyni og Friðriki Jónssyni – Kibba. „Þeir voru stjörnur, og bæði Kári og Skúli urðu landsliðsmenn. Mér þótti sérstaklega vænt um Kibba því hann var ennþá minni en ég!“ Stefán rifjar upp með bros á vör fræga ferð suður á land 1957, þegar tæplega 80 KA-krakkar fóru til keppni í ýmsum greinum undir far- arstjórn hjónanna Hermanns Sig- tryggssonar og Rebekku. Þá hafði Ragnar bróðir Hermanns einmitt verið valinn í landsliðið, fyrstur Ak- ureyringa, og KA-strákarnir sáu hann leika gegn Belgum í Laug- ardalnum sem Stefán segir hafa verið stóra stund. Það var í þessari ferð sem Stefán gerði sér grein fyrir því að kraft- arnir myndu nýtast KA betur í fé- lagsstörfum en innan vallar. „Við vorum að spila í Keflavík, ég hafði lítið fengið boltann frá stórstjörn- unum þremur og lét þá vita að ég væri ekki ánægður með það. Ég byrjaði á því að setjast á völlinn úti á kanti og spjalla við áhorfendur. Það breytti engu,“ segir Stebbi. „Þeir gáfu ekkert meira á mig eftir að ég stóð upp. Í seinni hálfleiknum sagði ég þeim þess vegna að þeir gætu bara átt sig; ég væri farinn út í sjoppu til þess að kaupa mér sæl- gæti.“ Hann ítrekar að hann geti ekki stært sig af knattspyrnuhæfileikum en hefur sinnt félagsstörfunum af krafti. „Ég hef reynt að standa mig vel fyrir KA á þeim vettvangi og hef fengið ofboðslega mikið út úr því.“ Og segist enn talinn slakur leikmaður, „sérstaklega í vörn. Það er allt í lagi þegar samherjarnir skamma mann en það gerðist fyrir nokkrum árum að einn mótherjinn hundskammaði mig fyrir hvað ég væri latur að fara aftur í vörnina. Það fannst mér toppurinn!“ Fékk ekki boltann og fór út í sjoppu OFT er talað um nauðsyn þess að flytja opinber störf út á land. Félag for- stöðumanna ríkisstofnana fundaði á Akureyri í gær, Sigrún Björk Jakobs- dóttir bæjarstjóri ávarp- aði samkomuna og færði síðan einum gestanna, Guðmundi Bjarnasyni, forstjóra Íbúðalánasjóðs, gjöf: forláta bol. Mig langar… Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.