Morgunblaðið - 19.04.2008, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 19.04.2008, Qupperneq 52
52 LAUGARDAGUR 19. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand SNÚÐU SVEIFINNI, ÍGOR! VEKTU SKRÍMSLIÐ MITT TIL LÍFSINS! GÓÐAN DAGINN! HEFUR ÞÚ ÍHUGAÐ AÐ FÁ ÞÉR VIÐBÓTAR LÍFEYRISSPARNAÐ? EF ÞÚ GEFUR MÉR NOKKRAR MÍNÚT... SLÖKKTU Á HONUM! SLÖKKTU Á HONUM! SLÖKKTU Á HONUM! GET EKKI HORFT... NÚ ER NÓG KOMIÐ! ÉG LOSAÐI ÞIG VIÐ TEPPIÐ... ÉG ER BÚIN AÐ GRAFA ÞAÐ! RÉTTU MÉR BÍLINN! ÉG Á HANN! ÉG TÓK HANN MEÐ MÉR Í SKÓLANN RÉTTU MÉR BÍLINN! ÞÚ GETUR EKKI BARA TEKIÐ HLUTI AF FÓLKI VEGNA ÞESS AÐ ÞÚ ERT STÓR! ÉG ER EKKI AÐ TAKA HANN AF ÞÉR... ÞÚ ERT AÐ GEFA MÉR HANN SVO OKKUR BÁÐUM LÍÐI BETUR HANN ER SVO HUGULSAMUR HVERNIG FINNST ÞÉR AÐ BÚA HÉRNA? ÞAÐ ER ÁGÆTT... EN MAÐUR VERÐUR AÐ FÓRNA ÝMSU ÉG GÆTI TIL DÆMIS ALDREI VERIÐ MEÐ VÍNKJALLARA ÉG ER NÝKOMINN ÚT Í NÁTTÚRUNA... OG ÞAÐ HÆTTIR EKKI AÐ RIGNA FARÐU UNDAN RÖRINU, KJÁNINN ÞINN Ó... LALLI, ÞÚ VERÐUR AÐ EYÐA MEIRI TÍMA MEÐ FJÖLSKYLDUNNI MIG LANGAR TIL ÞESS! EN ÉG HEF VARLA NÓGAN TÍMA TIL AÐ VINNA SJÁÐU BARA DAGBÓKINA MÍNA! HÚN ER STÚTFULL! KANNSKI VERÐUR ÞÚ BARA AÐ SKIPULEGGJA ÞIG BETUR HVAÐ ERTU AÐ GERA MILLI NÍU OG HÁLF ELLEFU? HMM... ÞÁ SPILA ÉG TÖLVULEIKI Á NETINU KÓNGULÓARMAÐURINN HEFUR EKKI SÉST MEÐ M.J. PARKER NÝLEGA... GÆTI ÞAÐ VERIÐ VEGNA ÞESS AÐ MAÐURINN HENNAR ER Í BÆNUM? KÓNGULÓARMANNINUM HEFUR SAMT TEKIST AÐ BJARGA HENNI ÚR LÍFSHÁSKA TVISVAR HÉR Í L.A. NÚ VEIT ÉG! EF ÉG FINN ÞESSA PARKER STELPU ÞÁ FINN ÉG KÓNGULÓARMANNINN dagbók|velvakandi Vestfirðingar ÆTLIÐ þið að eyðileggja fiskimiðin við Ísland? Ef þið byggið olíu- hreinistöð fyrir vestan og eitt skip með olíu ferst við landið eyðileggjast fiskimið norðurhjara. Við höfum nú þegar smáreynslu þegar olíuskip strandaði við suðurstönd Íslands og sáum myndir í sjónvarpi af slysstað. Dauðir fiskar, dauðir fuglar um allar fjörur. Samt var þetta bara strand, skipið fórst ekki. Hættið þessari ol- íudýrkun á landi vetnisins. Margrét Ásgeirsdóttir Aukefni í matvælum MIG langar til að vekja sérstaka at- hygli á aukefnum í matvælum (sem eru merkt með E og þremur tölu- stöfum á eftir t.d. E 102) sem sam- kvæmt breskri rannsókn annars vegar og hins vegar íslenskri rann- sókn eru algeng í vörum eins og sæl- gæti, drykkjarvörum og reyndar ýmsum matvælum og eru afar óholl á mismunandi vegu. Svokölluð azo- litarefni og rotvarnarefnið natríum- bensóat virðast auka ofvirkni í börn- um. Þegar farið er á þessa slóð er hægt að sjá lista yfir aukefni í mat- vælum: http://www.ust.is/media/ ljosmyndir/matvaeli/enumer.html. Þar koma fram E-númer og nöfn efnanna. Þau azo-litarefni sem um ræðir eru: E 102 tartrasín; E 104 kí- nólíngult; E 110 Sunset Yellow FCF; E 122 asórúbín; E 124 pon- ceau 4R; E 129 allúra-rautt AC og svo rotvarnarefnið E 211 natríum- bensóat. Hægt er líka að sjá um þetta á slóðinni http://www.heilsu- bankinn.is/vefur/index.php. Íslenska rannsóknin snerist hins vegar um að finna hvaða efni væri að eyða glerungi tanna sérstaklega í börnum. Niðurstaðan var sú að það væri sítrónusýra fyrst og fremst og síðan fosfórsýra sem einkum eru notaðar í ýmsar drykkjarvörur sem eyða glerungi tanna og er það óbæt- anlegt tjón sem hefur aðallega orðið hjá börnum og unglingum. E 330 sí- trónusýra og E 338 fosfórsýra eru á fyrrnefndum aukefnalista og í inn- gangi þar um þessi efni er sagt um sítrónusýru: „Þannig má koma í veg fyrir brúnan lit í hrásalati eða af- hýddu epli með því að setja sí- trónusýru (E 330) í vöruna.“ Sí- trónusýran er notuð í alls konar mat og sælgæti, þar á meðal frostpinna. Og af því að ég minnist á frostpinna, sem mér þykja góðir, þá vil ég í lokin koma með þá fyrirspurn til framleið- enda eins og Kjöríss hvernig standi á því að hægðalosandi efni sé notað í frostpinna sem jú fyrst og fremst börn borða en sjaldnast svona gaml- ingjar eins og ég? Þó svo varað sé við þessu á umbúðum þá er spurn- ingin sú: Hvernig dettur ykkur í hug að nota hægðalosandi efni í ykkar frostpinna? Sigurður Stefán Baldvinsson Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is HÉR er maður sem rakar laufi saman fyrir utan Osta- og smjörsöluna í Ár- bænum. Vorverkin eru af ýmsum toga og mörgum finnst vorið vera tíminn sem hentar best til að taka duglega til hendinni jafnt inni sem úti. Morgunblaðið/Valdís Thor Vetrarruslið hreinsað VERSLUNARMIÐSTÖÐIN Holta- garðar í Reykjavík verður form- lega opnuð í dag, laugardaginn 19. apríl, kl. 13 eftir mikla stækkun og gagngerar endurbætur. Búið er að tvöfalda stærð verslunarhúsnæð- isins, úr um 10.000 í 20.000 fer- metra og verslunaraðstaðan er orð- in ein sú stærsta og glæsilegasta á höfuðborgarsvæðinu, segir í til- kynningu. Bætt var heilli hæð við húsið og næg bílastæði eru nú á tveimur hæðum. Eigandi húsnæðisins er stærsta fasteignafélag á Íslandi, Landic Property. Fjölmargar verslanir eru í Holta- görðum. Nokkrar hafa þegar verið opnaðar; Hagkaup, Bónus, Ey- mundsson, Max og fleiri og um helgina bætist Habitat við með stóra og glæsilega verslun. Aðrar verslanir- og veitingastaðir í Holta- görðum eru Stubbasmiðjan og Úti- líf, kaffihúsið Te og kaffi, verslun Jóa Fel, Quisnos og Bæjarins bestu auk þess sem Landsbankinn er með aðstöðu í húsinu. Júlíus Vífill Ingvarsson borg- arfulltrúi verður viðstaddur opn- unina kl. 13. Margt verður til gam- ans gert um helgina til að fagna þessum tímamótum; tískusýningar, barnabókahöfundar lesa upp úr bókum sínum, Skoppa og Skrítla verða með gamanþætti og fleira og fleira auk þess sem allar versl- anirnar verða með opnunartilboð. Formleg opnun Holtagarða BORGARSTJÓRNARFLOKKAR Samfylkingar, Vinstri grænna og Framsóknarflokks ásamt Margréti Sverrisdóttur og Guðrúnu Ásmunds- dóttur bjóða borgarbúum að koma og spjalla um borgarmálin í dag, laugardaginn 19. apríl, kl. 10-12. Í fréttatilkynningu segir að það verði harmónikkuleikur og létt stemning á Ráðhúskaffinu. Engar framsögur, bara spjall og spurn- ingar, þótt sannarlega sé ekki loku fyrir það skotið að hópurinn bresti í söng fyrir nýju vori í Reykjavík. Meðal þeirra sem verða til skrafs og ráðagerða eru: Björk Vilhelms- dóttir, Bryndís Ísfold Hlöðvers- dóttir, Dagur B. Eggertsson, Guð- rún Ásmundsdóttir, Guðrún Erla Geirsdóttir (Gerla), Margrét Sverr- isdóttir, Marsibil Sæmundardóttir, Oddný Sturludóttir, Óskar Bergs- son, Sigrún Elsa Smáradóttir, Sóley Tómasdóttir, Stefán Jóhann Stef- ánsson, Svandís Svavarsdóttir og Þorleifur Gunnlaugsson. Vorkaffi með borgar- fulltrúum í Ráðhúsinu FRÉTTIR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.