Skinfaxi - 01.04.1933, Qupperneq 27
SKINFAXI
27
lieitl og fölskvalaust. Hún er háð helgidómum alþýð-
unnar.
Þeir, sem eiga hugsjónir, setja sér hátt takmark. Ef
þeir hafa svo manndóm til að lifa fyrir ást sína og
reynast henni trúir, er það vísl, að þeir „brjóast upp á
fjallið og upp á hæsta tindinn". Þeir menn eru hetjur,
sem ekki svíkja köllun sína. Þeirra er brúður lífsins.
Þetta fólk á heimtingu á þvf, að þess sé getið, þegar
verið er að lýsa æsku landsins, þvi að livað sem höfða-
töln liður, er það þella fólk, sem geymir Iðunnarepli
þjóðmenningar okkar. Það geymir allar vonir þjóðar-
innar um gæfusama framtíð. Þess eru hugsjónirnar,
mátturinn og dýrðin.
Ungmennafélagar! Látið stefnu ykkar móta komandi
fiina og komandi þjóð.
Halldór Kristjánsson.
Tvær myndir.
í einu frægasta höggmyndasafni Norðurlanda stend-
ur lmn, myndin, sem hér verður lítillega gerð að um-
ræðuefní.
Hún er ekki af neinni sérstakri persónu og stendur
hvergi nærri á áberandi stað. Myndin er konulíkan, og
iiöggvin í drifhvítan marmara. Likneskið allt er heill-
andi fagurt, en þó ber frá um höfuðlag og andlitsdrætti.
Höfuðið er eilitið álútt, augun opin og starandi. En úr
öllum svipniun stafar einhverjum þeim yndisleik, sem
með orðum verður ekki lýst. Það er eins og skin djúpr-
ar og þreyjand mannssálar hliki um hvarma og enni
og ljómi i sterkri löngun út i ómælisvíðáttur þeirra
veralda, sem skapandi imyndunum liggja alla jafna
auðfarnastar.