Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.10.1934, Page 28

Skinfaxi - 01.10.1934, Page 28
108 SKINFAXI á sama augnabliki i hyldýpið. Því skýtur þegar upp aftur og það kann auðsjáanlega að synda; ekki ber á öðru. Það jarmar nokkrum sintium og tekur svo strik- ið undan straum og stefnir beint til hafs. Ferjumenn flýta sér að skila farminum til lands, og þegar ferjan er laus orðin, er róið allt hvað af tekur eftir lambinu sem syndir bratt undan straumnum. Reyndar dregur skjótt saman, því að knálega er róið. En þegar kemur lil úr ósnum, tekur ferjan dýfur miklar, því að þar er aldrei kyrr sjór. Kappið er svo mikið í ferjumönnum, að þeir liirða ekki um auðsýna liættu. Þeir ná lambinu þegar það er í þann veginn að sökkva og til lands ná þeir heilu og böldnu. En þeir sem í landi eru liorfa á og standa á öndinni svo að segja. Þeir sjá ferjuna velta á öldunum og þykir djarft leflt sem vonlegt er. Nú snúa sumir við og halda beimleiðis. Hinir balda áfram með féð. Næsti áfangi er ekki auðfarinn. Leiðin liggur undir bömrum og hengiflugum og er sjórinn á aðra bönd, og fellur liann upp í klettana með flóði, eða þá þegar brim er. Nú verður að biða stundarkorn eflir fjörunni, því að cnn er leiðin ekki fær. En það er samt leikur einn að fara þessa leið núna. Blíða vorsins hefir bundið í bráð það ægilega afl, sem þarna leikur oft lausum hala. Leiðin sækist seint. Sumstaðar ganga snarbrattir stapar alveg í sjó fram, en á milli eru skriður með lausagrjóti næst sjónum, en hamrar hið efra — hamrar, sem enginn maður fær klifið. Hingað og þangað eru mjóir stallar í berginu og eru þeir flestir jjéttsetnir fýl. Enginn sækir þá heim af þeirri einföldu ásiæðu, að það er ekki hægt. Þeir liorfa á okkur drembilega, því að þeir vita að þeir verða ekki sigraðir. Féð sækir upp eftir skriðunum, hærra og liærra og veitist örðugt að halda því saman. Þá kemur sér vel að bafa dyggan og blýðinn lmnd, sem er viss að sækja á brattann og taka ómak af húsbónda sínum.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.