Skinfaxi - 01.10.1934, Blaðsíða 70
150
SKINFAXI
óheppilegar deilur. — Skattar til í. S. í. eru liækkaðir á félög-
um með yfir 100 félagsmenn, og ný skipun ger á fulltrúarétti
á aðalfundi. — Enn er í lögunum þetta kátlega ákvæð: „Orðið
,,samband“ má ekkert félag eiga í heiti sínu“.
Stjórn í. S. 1. hefir opnað skrifstofu í Mjólkurfélagshúsinu
í Reykjavík. Er hún opin þrjú kvöld í viku, mánudaga og
föstudaga kl. 6—TV-i og miðvikudaga kl. 8—9. Stjórnin mæl-
ist til, að íþróttamenn og áhugamenn um íþróttamál utan af
landi líli inn í skrifstofuna, þegar þeir koma til Reykjavikur.
Skrifstofan lætur í té allskonar upplýsingar og leiðbeining-
ar um íþróttamál.
Nýjar íþróttabækur.
í haust kemur út bók, sem allir íþrótlamenn, ekki sízt í
sveitum, hljóta að fagna. Er það þýðing á hinni kunnu bólc
„F r i Idræt“ eftir Moritz Rasmussen og Carl Silverstrand,
sem er frumrituð á dönsku, en hefir auk þess komið út á
mörgum Evrópumálum og hvervetna þótl afbragð. Á islenzku
heitir hún Ú t i i þ r ó 11 i r, og gefur íþróttafélag Reykja-
víkur hana út. Þar er mjög glögg og nákvæm fyrirsögn um
rétta iðkun útiíþrótta, með um 100 skýringarmyndum, svo
að hverjum manni á að vera auðvelt að nema íþróttir af bók-
inni kennaralaust. -— Þarna fáið þið íþróttaskólann heim til
ykkar, drengir.
®A ð a 1 s t e i n n H a 11 s s o n, iþróttakenn-
ari við Austurbæjarskólann og Kennaraskól-
ann í Reykjavík, hefir gefið út fjölritaða
Kennslubók í fimleikum, 110 bls. i
8 bl. broti. Bókin er einkum ælluð til að
vera námsbók í Kennaraskólanum, en hún
er líka nauðsynleg handbók fyrir alla þá,
sem kenna fimleika án þess að hafa sérkunn-
áttu í slíkri kennslu, barnakennara, leiðbein-
endur i æskulýðsfélögum o. s. frv.
Bókin hefst á inngangi lun fimleikakennara, fyrirskipanir,
fimleikafatnað, fimleikahús o. fl. Þá koma stundaseðlar fyrir
börn á ýmsum aldri, flestir miðaðir við fimleikahús, en nokkr-
ir við venjulegar kennslustofur. Fylgja þeim öllum nákvæm-
ar og glöggar skýringar á meðferð, hlutverki og gildi hverr-
ar einstakrar æfingar. Loks eru stundaseðlar með skýring-
um, fyrir unglinga á ýmsum aldri, og fullorðna karlmenn,
og allra síðast f.vrirsögn um morgunfimleika i heimahúsum.
Þeir, sem kenna fimleika eða aðrar íþróttir i ungmenna-