Skinfaxi - 01.10.1934, Blaðsíða 74
154
SKINFAXI
en verið hefir af reglulegum þjóðsögum, en meira af sögn-
um um merkilega og einkennilega menn, sögur um baráttu
manna i illviðrum á sjó og landi, sögur um slysfarir og
aðra sannsögulega atburði, og sagnir um siði og venjur, sem
eru að líða undir lok“. Taka þeir þaklcsamlega við slíkum
fróðleik frá þeim, sem kunna að luma á honum.
Ugluspegill er saga um hrekkjalóm einn og hragðaref, sem
uppi á að hafa verið í Þýzkalandi á 14. öld. Hefir Jónas
Rafnar læknir þýtt hana til gamans islenzkum börnum.
Þá er Þ. M. J. að byrja að gefa út allmerkilegt ritsafn,
en það er ú r v a 1 ú r b a r n a 1) ó k m e n n t u m h e i m s-
i n s. Þeir Jóhannes úr Kötlum og Sigurður Thorlacius ann-
ast þýðinguna, og fara eftir úrvali, er alþjóða-uppeldismála-
skrifstofan i Genf hefir gert. Fyrsta bókin af safni þessu
er í þann veg að koma út, en hún er Kak, eskimóasaga, eftir
Villijálm Stefánsson og Violet Irwin. Er gleði-
legt, að eiga hér von á safni af úrvals barnabókum.
Auk bóka þeirra, sem að framan getur, gefur Þorsteinn
M. Jónsson út timaritið Nýjar kvöldvökur, og er sjálfur rit-
stjóri. 27. árangur ritsins er að koma út, og verður ekki
annað séð, en það beri enn uppi með sæmd hinar fornu
vinsældir sinar.
Til ungmennafélaga.
í síðasta liefti Skinfaxa var ])ví hreyft, að ungmennafé-
lögin, ásamt Landssambandi kvenna og Félagi Vestur-íslend-
inga í Reykjavík, bindist fyrir því, að bjóða heim frú Jako-
bínu Johnson skáldkonu í Vesturheimi. Þessari tillögu hefir
verið svo vel tekið, að öll þessi félög hafa nú bundizt sam-
tökum um að koma henni í framkvæmd, og hafa skipað sam-
eiginlega nefnd, þar sem í eru fulltrúar frá öllum þessum
félögum.
í nefndinni eru: Frá IJ. M. F. í. frú Guðrún Erlings, Jón
Þórðarson kennari og Þórh. Bjarnason. Frá Landssambandi
kvenna: Frú Ragnhildur Pétursdóttir, Háteigi, og frá Félagi