Skinfaxi - 01.10.1934, Síða 54
134
SKINFAXI
ir unnið að Laugum, lil stælingar og menningarauka
öldum og óbornum. Þó gladdist eg af því mest af öllu,
að sjá verkefnin, sem bíða óunnin þar að Laugum, blasa
við og örfa og knýja æskuna, er sækir þangað, lil meiri
dáða. Enn vantar mikið á, að Laugar séu l'ullnægjandi
félagsheimili fyrir æskulýð Dalasýslu, og meðan svo er,
geta ungmennafélagar þar ekki unnað sér hvíldar. Eftir
er að ganga frá lieimavistarherbergjunum, svo að þau
séu vistlegur dvalarstaður. Laga þarf, rækta og prýða
kring um laugarliúsið, og ryðja íþróttavöll á eyrunum
neðan við, svo að þar sé góður staður fyrir héraðsmót.
Þá vakir fyrir ýmsum ungum áhugamönnum veslur
]>ar, að koma upp á Laugum lieimaýista-barnaskóla
fyrir nokkurn hlula Dalasýslu og nota þannig jarðhita
þann, sem nú er aflögu.
Nokkur sundnámskeið liafa verið á Laugum, við góð-
an árangur. Hefir Magnús Sigurðsson i Glerárskógum
verið kennari. Tvö síðastliðin vor liafa verið auglýst
þar sundnámskeið fyrir börn á skólaaldri, en l)æði far-
izt fyrir sakir ónógrar þátttöku. Er illt til slíks að vita
og héraðinu hvergi nærri vansalaust. í héröðum, þar
sem skapast hafa slík skilyrði sem þau, er Dalamenn
liafa eignazt að Laugum, verður að krefjast þess ófrá-
víkjanlega, að hvert einasta heilbrigt barn nái góðri
sundleikni, áður en það er 14 ára. Sundkunnátta er
iiverjum manni ])örf og mörgum lífsnauðsynleg. Og
sundnám er auðvcldast og tími til þess ódýrastur í
bernsku.
Næsta verkefnið, sem fyrir liggur að Laugum, er að
koma ]iar á sundnámsskeiði fyrir 10—14 ára börn, 2—3
vikur i maímánuði næstkomandi. Börnin hljóta að
dvelja í heimavist að Laugum, meðan námskeiðið stend-
ur, og þýrl'ti því að sjá þeim fyrir fjölþættara námi en
sundi einu. Ætli að kenna þeim frjálsar íþróttir, eftir
því sem við verður komið, leiki, hjálp í viðlögum og al-
mcnna iieilsugál. Komið gæti og til mála garðyrkja,