Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.10.1934, Side 73

Skinfaxi - 01.10.1934, Side 73
SKINFAXI 153 fólkið a. m. k. Bezt er lýst gömlu hjónunum á Bjargi, eink- um Valgerði. Haukur og Ásdís eru og vel dregin. Lokakafl- ar sögunnar, eftir að henni víkur til Reykjavikur, eru síztir og ]iar kennir útúrdúra, sem lýta heildarsvipinn. Alþingis- maðurinn er til dæmis alóþarfur. Sér þaS á, að borgarbúar standa lijarta höfundar eigi jafnnærri og sveitafólk, og hann skilur þá ekki eins til botns. Nökkvar og ný skip heitir ljóðabók eftir .) ó li a n n F r i- m a n n, skólastjóra á Akureyri, iátlaus og snotur. Fyrri Ijóða- bók Jóhanns, Mansöngvar til miðalda, vakti athygli á hon- um, og þessi nýja bók svíkur ekkert af þvi, sem þar er lof- aö. Sum kvæðin eru prýðisgóð, t. d. Tileinkun, Brot úr Gróttasöng hinum nýja (þýtt, Viktor Rydberg), Absalon son- ur Davíðs, Moliére o. fl. — Fróði konungur þarf á mönn- um að lialda til að draga kvörnina og mala gull: „Okkur vantar ennþá menn, annars stöðvast Grótti senn. Gott er að fæðast fleiri börn, — fóður handa Grótta kvörn. — — — — — Lát því börnin lika mala, lát þeim smala, jafnvel tiu ára og yngri. — — — — — Sá, sem elskar gull og gróða, gæfu fórnar heilla þjóða!“ Um Absalon segir: Frægur var faðir þinn, og flest var þér laust og falt. Hví lézt þú ei, heimskingi, helminginn nægja, en heimtaðir rikið allt? Hvi léztu þér ekki lynda, unz liðin var æska þín hjá, Ijómann frá öðrum að Ijá? Þessi kvæði yrkir enginn hversdagslegur meðalskussi. Gríma. Þjóðsögur. Safnað hefir Oddu r Björnsson, Jónas Rafnar bjó undir prentun. — 10. hefti af safni þessu er nýkomið, og er þar með „lokið við að gefa út allt hið merkasta úr þjóðsagnaliandritum þeim, er O. B. hefir safnað“. Er safn þetta hið merkasta um inargt, og skemmti- legt, enda hefir það náð miklum vinsældum, og ætla útgef- endur að halda því áfram með einu hefti á ári. Velja þeir vafalaust rétta leið, er þeir ætla að „birta tiltölulega minna

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.