Skinfaxi - 01.04.1935, Side 21
SKINFAXl
21
Vormenn VIII.
Guðrnn Bjðrnsdóttlr frá Grafarholtt.
I
Þegar litið er yfir einhvern
ákveðinn hóp manna, fer ekki
hjá þvi, að maður veitir einum,
öðrum fremur, sérstaka athygli.
Það eru alltaf einhverjir, sem
skera sig úr fjöldanum, á einn
eða annan hátt. Og einmitt þeir
festast í vitund manns, þótt
heildin gleymist. A þetta ekki
sizt við, þegar litið er til baka
yfir störf og stefnumál liðinnar
samtíðar.
Mismunar manna, þess sem
áskapaður er, gætir alstaðar
nokkuð, eins og í félagsbundinni starfsemi og öðr-
um athöfnum mannlífsins. — Reyndar mismunandi
mikið, eftir eðli og aðstöðu, en þó alstaðar svo, að greina
má glögglega.
Þetta kemur alslaðar fram, jafnt í staðbundinni starf-
sem sérstakra félaga, sem stærri sambanda mannanna,
bæði þjóða og kynslóða.
— Saga flestra félaga er um leið saga forgöngumann-
anna, saga þeirra manna, sem verið hafa leiðtogar lýðs-
ins, eða brautryðjendur háleitra hugsjóna eða mikilla
verka. Eða þeirra, sem að mestum mun hafa mótað
takmark og starf félaganna.
Á þetta ekki sizt við um þann félagsskap, sem nefna
mætti að heildarheiti: hugsjónafélög, — eða þau
önnur, sem hafa á einhvern hátt vaxandi manndóm og
batnandi þjóðlif að aðaltakmarki.