Skinfaxi - 01.04.1949, Blaðsíða 5
SKINFAXl
5
sjálfsögð slaðreynd, að önnur eins hrifningaralda og
þá varð vakin, risi ekki nú.
Einnig er það víst, að sá æskulýður, sem nú er og
ólst upp eftir að Finnland fékk sjálfstæði sitt, hef-
ur sitt ákveðna og eigið viðhorf til þessara hluta.
Hið frjálsa, sjálfstæða Finnland er þeim svo runnið
í merg og bein, að þeir
geta ekki hugsað sér það
öðruvísi. Þeim er það
grundvallaratriði, að allir
geri það sem í þeirra valdi
stendur til þess að bægja
á hurt þeim hættum, sem
ægja sjálfstæði landsins
ogfrelsi borgaranna. Und-
antekning er aðeins hinir
allra æstustu kommúnist-
ar, sem hugarórar um
þúsundáraríki kommún-
ismans gera dómgreindar-
lausa. Og æskulýður Finn-
lands hefur vissulega sýnt
það, að hann er fús til
þess að færa fórnir. t
styrjöld þeirri, sem við
báðum nauðugir, stofnuðu
piltarnir sér ekki aðeins
í liættu, lieldur einnig
stúlkurnar. Allir skildu kall skyldunnar og hlýddu því
skilyrðislaust. Andinn frá 1848 gagntók hugina, þótt
hann hirlist með öðru móti en fyrir öld síðan. Á
þenna anda skyldi og miklu meir reynt en þá. Og
hann þoldi raunina. Karlar í Finnlandi og að miklu
leyti einnig konur urðu að vera á vigstöðvunum í
•U/2 ár. Þenna tíma skiptust á tímabil ákafrar viður-
eignar og kyrrstöðuskeið, er ekkert var aðhafst.
Arvo Inkila.