Skinfaxi - 01.04.1949, Blaðsíða 10
10
SKTNFAXl
lands eru 1500 félög með yfir 100.000 félögum. 73%
af félögunum eru innan þrítugs. Af þeim æskulýð
sem er milli 15—30 ára og er á þeim svæðum þar
sem ungmennafélög starfa er 40% i félögunum. Og
af félögunum eru að meðaltali yfir 50% virkir félag-
ar. Félagar á aldrinum 21—34 ára eru einkum áhuga-
samir i fræðslustarfseminni. Ilinir yngri eru áliuga-
samir um leikfimi, íþróttir og þjóðdansa. Þeir taka og
mikinn þátt í námsflokkunum. Sú starfsemi er sem
fyrr segir mikil. Kórsöngur og upplestur er mjög
iðkað. Einkum er leiklistaráhuginn mikill. Að til-
hlutan félaganna eru árlega leikin um 6000 leilcrit.
Er gætt er að framan sögðu, lield ég því hiklaust fram,
að mikill hluti æskulýðs Finnlands hefur brennandi
áhuga að menntasf og þroskast þrátt í'yrir það sálar-
tjón sem lilotizt hefur af styrjöldinni, og að hann
mun leggja fram öflugan skerf til þess viðreisnar-
starfs sem liafið er og er framundan.
Eitthvert mesta vandamál endurreisnarinnar eru
liúsnæðisvandræðin. Með því að byggingarfram-
kvæmdir stöðvuðust stríðsárin og eftir stríðið verið
erfitt að afla ýmis konar hyggingarefnis, liefur mönn-
um ekki tekizt að fullnægja þörfum um nýhygging-
ar eða viðgcrðir á því tjóni er stríðið olli. Vegna þessa
er mörgu ungu fólki erfitt að stofna lieimili og það
verður að hyrja hjúskapinn við fátækleg skilyrði
hvað húsrými og alla aðhúð snertir. Það er óhjá-
kvæmilegt að ráða hót á þessu, meðal annars vegna
þeirrar kynferðislegu lausungar er styrjaldaráslandið
jók á og nauðsyn er að stemma stigu við.
En húsnæðisvandinn lætur lil sin taka í menning-
arstarfseminni. Reynt er að ráða hót á þessu með því
að lána barnaskólana á kvöldin og á sunnudögum
til félagsstarfseminnar. Þar eð harnakennararnir
stjórna oft námsflokkunum fer starfsemi þeirra fram
í skólunum. Þar starfa og þeir flokkar, sem engir