Skinfaxi - 01.04.1949, Blaðsíða 37
SKINFAXI
37
hernaðarbandalagi. Síðasta styrjöld leiddi ótvírætt í
Ijós mikilvægi þess að hafa hér hernaðarbækistöð,
og í styrjöld milli austurs og vesturs mun eigi siður
þykja mikilvægt að eiga kost þess að hafa hér að-
stöðu til hernaðaraðgerða og verndar siglingum yfir
Atlanlshaf. Er ég þá kominn að Iokaspurn og loka-
svari.
Getur það verið til of mikils mælst, að vér lánum
hólmann undir liernaðarhækistöð í væntanlegri styrj-
öld, sem háð verður fyrir tilveru þeirra lífsskoðana,
er vér aðhyllumst helzt, ef vér svo ofan í kaupið get-
Um tryggt með því, að landið verði ekki gert að styrj-
aldarvettvang, eins og sumir láta sér koma til hugar
og halda óspart á loft. Líkurnar fyrir því, að á land
vort yrði ráðist, ef annar styrjaldaraðilinn hefði hér
hernaðarbækistöð, yrði að minum dómi miklu meiri
en ella. Og hver getur fullyrt nokkuð um það, að
Verndarþjóðin gæti spornað við þvi, að hér yrði ekki
manntjón og eigna í þeim átökum. Slíkar fullyrð-
ingar eru út í hláinn. En eru ekki meiri líkur fyrir
]>ví, að herverndin kæmi að liði, ef verndarþjóðin
fengi að setjast hér að með lið sitt, meðan enn rikir
friður og gæti ])ví gefið sér tóm til að búa hér um sig
eins og hún teldi helzt þurfa við? Vel má það vera,
en ég ætla, að enginn muni heldur geta fullvrt neitt
om )>að. En er það hættulaust svo fámennri þjóð, sem
vér Islendingar erum, að taka þátt í hernaðarbanda-
lagi, er kynni að Ieiða af sér landsetu fjölmenns er-
lends herliðs, ekki kannske aðeins um stundarsakir,
héldur til langframa. Nei, hættulaust er það ekki, sið-
Or en svo, um það ættu allir allsgáðir menn að geta
verið sammála. Og sú vá er það mikil i mínum aug-
»m, að ekki komi til mála að taka þátt i bandalagi,
sem 'fæli i sér kvöð um landsetu herliðs né ráð yfir
landi og landlielgi. Því hvers virði yrði oss stuðn-
ingur vor við vestræna lífsskoðun, ef vér þyrftum