Skinfaxi - 01.04.1949, Blaðsíða 60
GO
SKINFAXl
sem starfsemi þeirra er mjög öflug og á miklu gengi að fagria
með finnsku þjóðinni.
Æskilegt vœri að þeir forustumenn ungmennafélaganna, hér-
aðssambanda e'ða einstakra félaga, sem hefðu hug á að sækja
mót þetta hefðu sambánd við stjórn U.M.F.Í. a. m. k. fyrir
1. maí í vor.
Kjartan Jóhannesson, kennari frá Ásum, kenndi hjá nokkr-
um Umf. í Héraðssambandinu Skarphéðinn og Kára Söhnund-
arsyni i Mýrdalnum í nóv. og des. i vetur, að tilhlutan U.M.F.T.
Æfði hann samkóra og kvennakóra og kenndi mörgu fólki a
orgel. Kórarnir sungu yfirleitt fyrir almenning að loknu hverju
námskeiði. Ríkir mikil ánægja með þetta starf Ivjartans, lijá-
þeim er notið hafa kennslu hans. Væri áreiðanlega mjög gagn-
legt að fleiri Umf. gætu notið slíkrar kennslu.
Skinfaxa er mikil nauðsyn á skilvísri greiðslu kaupenda
sinna. Árgangurinn kostar kr. 10.00. Gjalddagi er 1. október.
Þeir sem cnn hafa ekki greitt árgang 1948 éða eldri árganga eru
vinsamlega beðnir að snúa sér strax til stjórnar ungmennafé-
lagsins i byggðalagi sínu, sem sér um innheimtuna.
Þeir sem ekki eru áskrifendur innan ungmennafélaganna
sendi áskriftargjaldið vinsamlegast til innheimtunnar í pósthólf
400, Reýkjavík. Þangað ber og að senda öll erindi varðandi
afgreiðslu og innhcimtu Skinfaxa.
Ungmennafélög. Vinni’ð ötullega að aukinni útbreiðslu Skin-
faxa. Fáið unga fólkið, sem er að ganga í félögin til þess að
gerast áskrifendur hans. Sendið afgreiðslunni jafnóðum nöfn
þeirra. Takmarkið er: Fleiri áskrifendur. Stærra og fjölbreytt-
ara tímarit. Ef helmingur allra Ungmennafélaga i landinu gerð-
ust áskrifendur, gæti Skinfaxi stækkað um helming, án þess að
hækka í verði.
Nýir héraðsstjórar. Á héraðsþingum ungmennasambandanna
síðastli’ðinn vetur hafa nokkrar breytingar orðið á formönnum
héraðssambandanna. Hjörtur Hjálmarsson Flateyri er nú for-
maður U.M.S. Vcstfjarða í stað Halldórs Kristjánssonar, Kirkju-
bóli. Arngrímur Gíslason, Hólmavík, formaður Iléraðssambands
Strandasýslu í stað Ingimundar Ingimundarsonar, Svanshóli.
Hjalti Ilaraldsson frá Ytra-Garðshorni í Svarfaðardal for-
maður U.M.S. Eyjafjarðar í stað Björns Daníelssonar, Dalvík.
Giiðni Árnason, Raufarhöfn, formaður U.M.S. Norður-Þingey-
inga í stað Björns Þórarinssonar, Kílakoti.
Fráfarandi formenn hafa allir starfáð ágætlega að málefn-
um ungmennafélaganna á sambandssvæðum sinum og flestir
um langan tíma. Þeir liafa sýnt ágæta skilvisi á skýrslum