Skinfaxi - 01.04.1949, Blaðsíða 63
SKINFAXl
BÆBCUR.
Sund, kennslubók í sundi.
Bókaútgáfa Jens Gúðbjörnssonar hefir nýlega gefið út
kennslubók í sundi og er Jón Pálsson sundkennari aðalhöf-
undur hennar. Þorsteinn Einarsson íþróttafulltrúi skrifar for-
mála að bókinni og ítarlegan leiðbeiningakafla lianda kenn-
uruni. Er hann um kennslutilhögun, dagbækur og skýrslui-,
einkunnir, hreinlæti og heilbrigði, og ioks 13 baðreglur. Vignir
Andrésson íþróttakennari skrifar um björgun og marvaðasund
Og Jón Oddgeir Jónsson um lífgun úr dauðadái.
Jón Pálsson nefnir kafla sína þessum nöfnum: Bringusund,
baksund, kafsund, lærðu að snúa þér við laugarbarminn, lærðu
að dýfa þér til sunds. Þetta er fyrri hluti bókarinnar, sem er
jafnt fyrir nemendur og kennara. Siðari hlutinn er einkum
ætlaður sundkennurum og öðrum sem sundkennslu annast. Þar
eru þessir kaflar: TJm fyrirskipanir, kennsla í bringusundi,
fagurt eða ljótt bringusund, kennsla i almennu baksundi. Efn-
inu til skýringar er 21 myndasíða, sem gefur bókinni miki'ð
gildi, einkum þar sem hún er notuð án kennara.
Sundbók þessi er gefin út að tilhlutan fræðslumálastjórnar-
innar og helguð minningu Jónasar Hallgrímssonar skálds, cn
hann þýddi fyrstu sundreglurnar, sem gefnar voru út á ís-
lenzku fyrir rúmum 100 árum. Þetta er fjórða útgáfan af
kennslubók í sundi. Hún er þcirra langfullkomnust og veiga-
mest og verður áreiðanlega mikill fengur fyrir sundkennara og
þann fjölmenna hóp æskumanna, sem nú orðið stundar sund-
nám á hverju ári.
Bókin er í sterku bandi og er kápan skreytt smekklegum
myndum eftir Halldór Pétursson. Verð er kr. 30.00.
D. Á.
Kristmann Guðmundsson: Kvöld í Reykjavík.
Engum blandast hugur um það að toknum lestri þessarar
bókar, að hér liefur æfður og þroskaður rithöfundur liatdið á
pennanum. Bókin er listasmíð. Þetta er stutt skáldsaga, að-
eins rúmar hundrað bls., en efnið er eigi að siður mikið, og
svo vel á ]ivi haldið, að til fádæma má telja. Er engum blöð-
um um það að fletta, að sagan er með þvi bezta, sem frá Krist-
manni hefur komið.
Sagan gerist á einu kvöldi í Reykjavik. Hún segir frá tvenn-
um hjónum, er alltaf hafa verið mjög samrýnd. Örlaga-