Skinfaxi - 01.04.1949, Blaðsíða 20
20
SKINFAXI
Lárus Sigurbjörnsson:
Gleðin í bæ og byggð.
Þættir um leiklist og leiksvið á íslandi.
I.
Til skaninis tínia hefur öll lciklist hér á landi verið
horin uppi af áhugamönnum, konum og körlum, sem
gegndu margvíslegum borgaralegum störfum, en léðu
leiklistinni frístundir sínar. Enn mun svo verða um
langan tíma, að íslenzk leiklist eigi helzt liðs von úr
þeirri átt. Yaxtarbroddur íslenzkrar leiklistar verður
hjá áhugamönnunum, enda þótt þeim fjölgi æ frá ári
til árs, sem gera leiklistina að ævistarfi sínu. Framtið
leildistarinnar hér á landi veltur mjög á samstarfi á-
hugamannanna og atvinnumannanna i þessari list-
grein. Þjóðleikhúsið nvja verður prófsteinn á ]ætta
samstarf.
Föst leikliús, sem þvi nafni má nefna, liafa ekki
risið upp á fslandi utan Þjóðleikhúsið, sem þó er ekki
tekið til starfa. En föst leikhús hljóta að rísa upp í
stærri bæjum landsins og ef til vill fleiri en eitt eða
tvö í Iiöfuðstaðnum, áður en langt um líður. Þessi leik-
hús munu sækja leikendur sina í hóp áhugamanna i
hæ og byggð, en til þess að þeim nýtist starfskraftar
hins sundurleita liðs, verður forystan ætíð að vera i
höndum kunnáttumanna. Stefnubreyting hefur þegar
gert vart við sig í leiklistarmálunum hér og hún verð-
ur ekki umflúin, lieldur nær hún hámarki, þegar föstu
að sjá byggðafólkinu fyrir menningarlífi. En þetta
starf verður því aðeins rækt, að rikið og aðrir opin-
herir aðilar leggi fram fjármagn þeim til stuðnings.
Ungmennafélögin eru hjartsýn gagnvart framtið-
inni, einnig að þessu leyti.
(Eiríkur .T. Eiriksson hýddi og tók saman cftir bæklingi um
finnsku ungmennafélögin. — Myndirnar eru úr þessum bækl-
ingi).