Skinfaxi - 01.04.1949, Blaðsíða 3
SKINFAXI
3
myndir af liðsmönnum og slarfseminni, hvatt lil auk-
inna átaka, eflt samtakaviljann. Hins vegar hefur
hann flutt þjóðinni þau mál, sem til heilla horfðu, sér-
staklega fyrir æskulýð landsins. Hann hefur getað
flutt málið frá fleiri en einni hlið ef umræður lia'fa
miðað að auknum skilningi og viljinn var einlægur.
Hami hefur ekki verið reyrður i nein bönd. Málgagn
æskulýðsins hefur liann viljað vera, opinn öllum þeim,
sem fluttu mál silt af djörfung og með hag æskulýðs-
ins 'fyrir augum, hvar í flokki sem þeir stóðu. Ekki er
þar með sagt, að hann væri jafnan lilutlaus. Hags-
munamálum æskulýðsins hefur hann unnið, hiklaus
og ódeigur, án þess að láta nokkurn bilbug á sér finna.
Skinfaxi mun enn halda áfram að gegna þessu tví-
þætla hlutverki. Iíann vill vera sem beztur tengiliður
milli félaganna, og liann vill einnig flytja þjóðinni
mál æskulýðsins, og í þeim efnum er honum sama,
hvaðan golt kemur. Hér að framan er sagt, að engin
ellimörk séu sjáanleg á Skinfaxa. I þetta hefti rita
fimm pennar, sem ekki hafa áður skrifað í ritið. I
heftinu hirtast upphöf tveggja greinaflokka, sem koma
munu ungmennafélögum að góðu gagni í starfi þeirra.
Verða þannig i næstu heftum hirtir þættir um iþróttir,
þjóðdansa og leikstarfsemi. — Af þessu verður ljóst,
að Skinfaxi hefur enn fullan hug á að vera hlutverki
sínu trúr.
En á þessum tímamótum ritsins, þegar fjörutíu ár
eru að baki, æltu ungmennafélagar að taka höndum
saman um að efla það svo, að það megi enu stækka
og vaxa í framtíðinni.
J.