Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.04.1949, Page 3

Skinfaxi - 01.04.1949, Page 3
SKINFAXI 3 myndir af liðsmönnum og slarfseminni, hvatt lil auk- inna átaka, eflt samtakaviljann. Hins vegar hefur hann flutt þjóðinni þau mál, sem til heilla horfðu, sér- staklega fyrir æskulýð landsins. Hann hefur getað flutt málið frá fleiri en einni hlið ef umræður lia'fa miðað að auknum skilningi og viljinn var einlægur. Hami hefur ekki verið reyrður i nein bönd. Málgagn æskulýðsins hefur liann viljað vera, opinn öllum þeim, sem fluttu mál silt af djörfung og með hag æskulýðs- ins 'fyrir augum, hvar í flokki sem þeir stóðu. Ekki er þar með sagt, að hann væri jafnan lilutlaus. Hags- munamálum æskulýðsins hefur hann unnið, hiklaus og ódeigur, án þess að láta nokkurn bilbug á sér finna. Skinfaxi mun enn halda áfram að gegna þessu tví- þætla hlutverki. Iíann vill vera sem beztur tengiliður milli félaganna, og liann vill einnig flytja þjóðinni mál æskulýðsins, og í þeim efnum er honum sama, hvaðan golt kemur. Hér að framan er sagt, að engin ellimörk séu sjáanleg á Skinfaxa. I þetta hefti rita fimm pennar, sem ekki hafa áður skrifað í ritið. I heftinu hirtast upphöf tveggja greinaflokka, sem koma munu ungmennafélögum að góðu gagni í starfi þeirra. Verða þannig i næstu heftum hirtir þættir um iþróttir, þjóðdansa og leikstarfsemi. — Af þessu verður ljóst, að Skinfaxi hefur enn fullan hug á að vera hlutverki sínu trúr. En á þessum tímamótum ritsins, þegar fjörutíu ár eru að baki, æltu ungmennafélagar að taka höndum saman um að efla það svo, að það megi enu stækka og vaxa í framtíðinni. J.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.