Skinfaxi - 01.04.1949, Blaðsíða 41
SKTNFAXT
41
7. landsmót segir lrvar í röðinni mót þetta er, en síð-
ar í greininni er frá þvi skýrt, hvar hin fvrri fóru fram,
svo samhengi fáist í yfirlit um landsmót U.M.F.I. Leik-
vangurinn er táknrænn fyrir ræktun lýðsins. Þjálfun
æskunnar til átaka fyrir land sitt og þjóð, undir kjör-
orðinu: íslandi allt!
Ramminn, sitt hvoru megin, er teiknaður sem
stundaglas, er skal tákna hið stundlega og minna æsk-
Una á hin æðri verðmæti, sem öllu eru ofar. Inn í
hann eru teiknuð merki Austfirðingafjórðungs frá
Alþingishátiðinni 1930. Norður-Múlasýsla, hreindýrið.
Suður-Múlasýsla, Lagarf 1 jótsormurinn. Seyðisfjörð-
Ur, vitinn og ankerið. Neskaupstaður, langskipið.
Fer vissulega vel á því, að táknmyndir þeirra hér-
aða, sem U.I.A. starfar i, skuli á þennan hátt kom-
ast fyrir í merki Eiðamótsins. U.M.F.Í. þakkar lista-
UTanninum þetta fagra og táknræna merki.
Mátsstaðurinn skipulagður.
I fyrrasumar var lokið við mjög myndavlegan í-
þróttavöll að Eiðum, lagðir vegir, gróðursett tré, val-
inn sundstaður, bifreiðastæði gert, afmarkaður staður
fyrir tjaldborgina og mótsstaðurinn á annan hátt
skipulagður. Ætti þetta að auðvelda mjög framkvæmd
oiótsins. Uppdi'áttur sá, sem fylgir Iiénxxeð, er gerður
af Bóas Emilssyni, starfsmanni U.Í.A. (Sjá bls. 42).