Skinfaxi - 01.04.1949, Blaðsíða 19
SKINFAXI
19
Boðunardagur Maríu ár livert er sérstakur ung-
mennafélagsdagur og fyrsta vikan í október er ung-
mennafélagsvika. Alls staðar eru þá haldnar sam-
komur og erindi flutt þar sem bent er á þýðingu
ungmennalfélagastarfsins i'yrir uppeldi æskulýðsins
og almenningi gerð grein fyrir stefnumálum lireyf-
ingarinnar.
Fjárhagsmál.
Hin margþætta æslculýðsstarfsemi krefst fjármagns,
þótt mestur hluti starfsins sé framkvæmdur án end-
Urgjalds. Félagagjöldin eru svo lág að þau hrökkva
ein skammt. Einstök félög liafa tekjur af samkom-
um og skemmtikvöldum. Einnig fá héraðssambönd-
in þannig tekjur. Tekjur héraðssambandanna voru
árið 1945 5.942.633,75 mörk og af þessari uppli. var þeg-
ar notað til fræðslustarfseminnar 3.169.168,85 m. Þar
eð Ungmennasamband Finnlands veitir til þessarar
starfsemi 488.167,80 m. er upphæðin þannig samtals
3.657.336,65 sem veitt er til fræðslustarfs og leiðbein-
inga. Ríkisstyrkur var árið 1945 360.000 m. og var
þannig ekki 10% af fé því er varið var til fræðslu. Að
vísu hefur ríkið veitt 51.860 m. til bókakaupa fyrir
námsflokkana, en það hefur runnið beint til þeirra.
Framtíð ungmennafélagsstarfsins.
í liálfan sjöunda áratug hefur ungmennafélags-
hreyfingin unnið að því að ala unglinga upp, svo að
þeir yrðu góðir menn og nýlir þjóðfélagsþegnar. Til
þcssa slarfs er alltaf þörf liðsmanna. Alltaf eru ungl-
ingarnir þurfandi fyrir hjálp og leiðbeiningar við
viðfangsefni sin og viðleitni til sjálfsuppeldis. Frjáls
fræðslustarfsemi meðal almennings er alltaf nauð-
synjamál — svo lengi lærir sem lifir — og ung-
niennafélagshreyfingin þar sem liún er aðal menn-
ingarhreyfing byggðanna hefur l)ezt skilyrði til þess
2*