Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.04.1949, Side 63

Skinfaxi - 01.04.1949, Side 63
SKINFAXl BÆBCUR. Sund, kennslubók í sundi. Bókaútgáfa Jens Gúðbjörnssonar hefir nýlega gefið út kennslubók í sundi og er Jón Pálsson sundkennari aðalhöf- undur hennar. Þorsteinn Einarsson íþróttafulltrúi skrifar for- mála að bókinni og ítarlegan leiðbeiningakafla lianda kenn- uruni. Er hann um kennslutilhögun, dagbækur og skýrslui-, einkunnir, hreinlæti og heilbrigði, og ioks 13 baðreglur. Vignir Andrésson íþróttakennari skrifar um björgun og marvaðasund Og Jón Oddgeir Jónsson um lífgun úr dauðadái. Jón Pálsson nefnir kafla sína þessum nöfnum: Bringusund, baksund, kafsund, lærðu að snúa þér við laugarbarminn, lærðu að dýfa þér til sunds. Þetta er fyrri hluti bókarinnar, sem er jafnt fyrir nemendur og kennara. Siðari hlutinn er einkum ætlaður sundkennurum og öðrum sem sundkennslu annast. Þar eru þessir kaflar: TJm fyrirskipanir, kennsla í bringusundi, fagurt eða ljótt bringusund, kennsla i almennu baksundi. Efn- inu til skýringar er 21 myndasíða, sem gefur bókinni miki'ð gildi, einkum þar sem hún er notuð án kennara. Sundbók þessi er gefin út að tilhlutan fræðslumálastjórnar- innar og helguð minningu Jónasar Hallgrímssonar skálds, cn hann þýddi fyrstu sundreglurnar, sem gefnar voru út á ís- lenzku fyrir rúmum 100 árum. Þetta er fjórða útgáfan af kennslubók í sundi. Hún er þcirra langfullkomnust og veiga- mest og verður áreiðanlega mikill fengur fyrir sundkennara og þann fjölmenna hóp æskumanna, sem nú orðið stundar sund- nám á hverju ári. Bókin er í sterku bandi og er kápan skreytt smekklegum myndum eftir Halldór Pétursson. Verð er kr. 30.00. D. Á. Kristmann Guðmundsson: Kvöld í Reykjavík. Engum blandast hugur um það að toknum lestri þessarar bókar, að hér liefur æfður og þroskaður rithöfundur liatdið á pennanum. Bókin er listasmíð. Þetta er stutt skáldsaga, að- eins rúmar hundrað bls., en efnið er eigi að siður mikið, og svo vel á ]ivi haldið, að til fádæma má telja. Er engum blöð- um um það að fletta, að sagan er með þvi bezta, sem frá Krist- manni hefur komið. Sagan gerist á einu kvöldi í Reykjavik. Hún segir frá tvenn- um hjónum, er alltaf hafa verið mjög samrýnd. Örlaga-

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.