Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1965, Blaðsíða 4

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1965, Blaðsíða 4
— Jú, það er það, sem ákaf- lega vel getur skeð, því ég hefi heyrt að Gísli heitinn Oddsson hafi haft það fyrir sið að keyra upp með djúpinu í norðaustan- byljum og myrkri og taka ísa- fjörð. — En það getur ábyggilega orðið sjóvont á álkantinum. — Nú, jæja. Það fer aldrei ver en það að við missum trollið, og ég sagði Kidda að við skyldum láta það fara. Það hefur eflaust borið austur og dýpkað á meðan. Við köstuðum og létum 225 fðm. aftur. Við náðum því í blökkina eins og það var kallað, heldur ekki meira, því að vörmu spori rykkti heldur hressilega í og að líkindum var ekki búið að lina á bremsunum, því forvírinn söng í sundur í topprúllunni í forgalganum. Það lét ekki standa á sér að lenda í honum. Byrjaði nú einhver sá leiðin- legasti skakstur, sem ég hefi lent í — slaka og hífa, keyra í allar áttir, slaka og hífa og keyra, allt- af í nýjar áttir og eftir 3 tíma gafst ég upp, þar sem aldrei var lát á neinu og búinn að reyna allt sem mér datt í hug. Við hífð- um á niðurstöðu á afturvírnum, og vorum að vona að brakkets- keðjan færi ef trollið ekki losn- aði, en það var nú ekki svo vel, því eftir langa mæðu og ferleg átök söng vírinn í sundur í Topp- rullunni og vorum við nú lausir við trollið að viðbættum 300 föðmum af trollvír, og kostaði það okkur ferðalag til Patreksfjarð- ar. Þar fengum við trollvíra hjá þeim Vatneyrarbræðrum eins og oftar ef einhverjum lá á. — Ég lét lóða í festunni og voru 65 fðm. Hefði ég ekkert hik- að, hefði ég að líkindum sloppið. Það hefur borið austur og dýpk- að meðan við létum reka. Ég tel alveg öruggt að Leifur Heppni liggi utast á öðru sundi á 65 fðm. Spillirinn blindan undir Geltin- um. Var nú draumurinn ræki— lega kominn fram. Ég kastaði ekki aftur í þessum túr á þessum slóðum. En ég hefi varla komið svo vestur að ég hafi ekki kastað þarna og aldrei rek- ið mig á, og oft fiskað vel. En ég hefi forðast 65 fðm. utast í öðru sundi. Þegar sást til annars, forðaðist ég alla 65 faðma á þessum slóðum þegar dimmt var. Það er að líkindum hægt að draga snörrevoð þarna, en ég er ekki klár hvernig þessi bleiða stendur af sér við 12 mílurnar, en þarna er oft mikill fiskur og það ekki síður að vetrinum í nóvember og desember. Þetta er miiVið á norðausturkantinum á Hafnarál út af Kögri. MiSin, sern örvarnar benda á skulu miSast viS Hœlavíkurbjarg. ÞaS verSur aS toga upp og út álkantinn á dýpinu milli 28 og 45 faSma í norSaustur kuntinum. Þarna er ágœtur botn jyrir togbáta, og ég hugsa snörrevoS líka, frá fjórum mílum, og gott klukkutíma tog til NNV og SSA, því á þessum slóSum er afar oft fiskur, en beztur í september og oklóber, jafnvel lengur. ASallega er þarna stór ýsa og koli, annars allar tegundir. En umfram allt má ekki fara neitt upp í SV-hallann, ekki einu sinni á togara meS bobbinga, þótt frjálst vœri. ÞaS er einnig vel af steinbít niSur í álnum á vorin. -<?> Sjómannablaðið VÍKINGUR óÁar ötlum laadc % ómoaaum letilecjsV'a Jóla ®— 284 ----------<*> VÍKINGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.