Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1965, Blaðsíða 26
Á myndinni sjást helztu hvalategundir, sem veiddar eru. Aj j>eim er bláhveliS stœrst.
BLÚÐÆÐAR
gildari en ofnrör
Margir menn eru þannig gerð-
ir, að þeir loka augunum fyrir
sönnum undrum og kjósa heldur
að láta ímyndunarafl sitt rása. Á
þennan hátt hafa sögurnar um
sjóorminn orðið til bæði í skozku
vötnunum og úti á höfunum.
Án þess að nokkuð sé fullyrt
um tilveru sjóormsins, þá er sjó-
ormurinn hvergi nærri jafn
merkileg skepna og bláhvalurinn
er. En bláhvalurinn er tvímæla-
laust stórkostlegasta skepnajarð-
arinnar.
Hugsið ykkur fisk, sem er 30
til 35 metra langur og vegur 120
tonn, þarna er komin dálagleg
mynd af stærstu skepnu jarðar,
bæði nú og í fortíð.
En bláhvalurinn er þó ekki
fiskur. Hann er spendýr, þrátt
fyrir fisklögun sína. — Margir
skynsamir menn með góða skóla-
menntun og upplýsingu vísinda-
manna neita að viðurkenna þetta.
T.d. telja katólsktrúarmenn dýr-
ið vera fisk og mega því borða
hvalkjöt á föstunni, þegar annað
kjöt er bannað til áts.
Vegna langrar veru bláhvals-
ins í sjónum, hefur hann orðið
fisklaga, sem gerir hann jafn-
hæfan fiskum til að ferðast um
höfin, en hann verður að koma
upp á yfirborðið á 10 mínútna
fresti til að anda. Hann fæðir
lifandi unga og gefur afkvæmum
sínum að sjúga fitumikla mjólk.
Mjólkin inniheldur 30 prósent
fitu, en er því miður mjög bragð-
slæm. Lítið væri varið í að hirða
hana, þótt möguleiki væri á að
mjólka hvalinn.
Þetta kjötbjarg, þrátt fyrir
ferðalag sitt upp og niður, held-
ur sig á 100—200 metra dýpi og
inniheldur 8000 lítra af blóði,
sem dælt er um skrokkinn af
hjarta, sem vegur sex tonn.
Slagæðarnar eru gildari en
ofnrör. Við hlið bláhvalsins er
fíllinn smádýr, rétt eins og mús
í hlutfalli við okkur. Og jafnvel
risaeðlur fortíðarinnar eru bara
dvergar í samanburði við blá-
hvalinn.
Mjög snemma hófu menn að
veiða bláhvalinn vegna fitu-
magns hans, sem kom að góðu
haldi bæði sem mannafæða og
ljósmeti.
1 dag stunda stóru fljótandi
hvalveiðiverksmiðjurnar rán-
yrkju bæði á bláhvalnum og öðr-
um hvaltegundum. Þetta er mjög
slæmt, því að enn er margt óleyst
í sambandi við þekkingu okkar á
þessu stóra dýri.
Langt er síðan mönnum var
VlKINGUR
306