Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1965, Qupperneq 47

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1965, Qupperneq 47
ENGIN KEÐJA ER STERKARI EN VEIKASTI HLEKKURINN TRYGGING ER NAUÐSYN ALMENNAR TRYGGINGARg PÓSTHIÍSSTRÆTI 9 SÍMI 17700 Haraldur Ólafsson, skipstjóri sjötugur Þekktur og vinsæll skipstjórn- armaður, Haraldur Ólafsson, varð sjötugur 2. des. sl. Margir eru þeir eflaust orðnir, sem notið hafa fyrirgreiðslu og góðvildar Haraldar þau meira en fjörutíu ár, sem hann sigldi á skipum Eimskipafélagsins, þar af um tvo áratugi sem skipstjóri, og enn síðustu árin oft í afleys- ingum á ýmsum skipum. Aðrir en ég munu betur kunna segja skipstjórnarsögu Haraldar og feril þessa farsæla manns í starfi, en ég vildi hér minnast á smáatburð, sem mér er og verður ætíð minnisstæður. Það mun hafa verið sumarið 1934 er ég, óharnaður unglingur og lítt enskukunnandi, kom frá Lundúnum til Hull og átti að fara þar um borð í skip og til íslands. En þegar til Hull kom var þar ekkert slíkt skip sjáanlegt og ó- vitað um það, eftir því sem næst varð komizt. Eftir að hafa ráfað um borg- inn fram eftir degi og gætt þess að villast ekki fjarri höfninni, glaðnaði mjög yfir mér við að sjá skorsteinsmerki Eimskipafé- lagsins, en þegar að skipshlið kom, tók ekki betra við. Hvatleg- ur stýrimaður var í óða önn að snara landgang, leit tæpast upp, en krafðist farmiða, og þar reis vandamálið! Ekki hafði verið hugsað fyrir þeim möguleika, og var þá ekki annað að gera en stynja upp því, að móðir mín mundi eflaust sjá um, að staðið væri í skilum þegar heim kæmi. Stýrimaður brá þá fyrir sig ensku máli og sagði: „I see said the blind man who could not see at all," en bætti við: ,,um borð með þig strákur." Hann gerðist þannig ábyrgur fyrir fargjaldi ókunnugs unglings, semekkimátti á annan veg firra alvarlegum vandræðum, en skipaferðir frá Bretlandi til Islands voru þá ein eða tvær í mánuði og ekki aðrar Haraldur Ölafsson, skipstjóri, samgöngur utan þá er togarar rákust inn til Grimsby, sem þó var sjaldnast á þeim árum að sumarlagi vegna síldveiða heima fyrir. En því segi ég þessa sögu, að ég tel hana táknræna fyrir ævi- starf Haraldar Ólafssonar, stýri- mannsins unga fyrir rúmum þrjátíu árum, sem síðari kynni hafa sannað mér, að jafnan hefur verið boðinn og búinn að liðsinna lítilmagnanum. Gæti ég margt sagt um góðvild og manngildi Haraldar, hvernig hann hefur rekið erindi manna gagnvart ætt- ingjum þeirra erlendis, sem átt hafa í örðugleikum, og hvernig hann hefur reynzt í garð fóstur- barna sinna, tengdafólks og niðja. Er fágætt að farmaður, sem svo mjög hefur verið fjar- verandi frá heimili sínu, hafi orðið slíkur bústólpi og úrræða- maður þeim, sem heima sátu. Ég veit að stéttarbræður Har- aldar minnast hans mætar en ég og vildi ég hér eingöngu fá að láta fylgja vott þakklætis fyrir æskugreiðann og trausta vináttu síðan, ásamt árnaðaróskum frú Ástu og Haraldi til handa. Hilmar Foss. VÍKINGUH 327
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.