Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1965, Qupperneq 49
Matsveina- og veitingafijónaskélinn
-------------------------------10 ÁRA
Matsveina- og veitingaþjóna-
skólinn var vígður 1. nóvember
1955 og er því um þessar mundir
10 ára. Vegna þessara tímamóta
hefur verið farið á leit við mig,
að ég ritaði í Víkinginn um stofn-
unina og er mér ljúft og skylt
að verða við því.
Þegar ég var fyrst kosinn í
stjórn Matsveina- og veitinga-
þjónafélags Islands árið 1945,
var því hreyft innan félagsins,
að vinna þyrfti að því, að koma
upp sérskóla fyrir matreiðslu-
manna og framreiðslumanna-
stéttina, enda höfðu þessar starfs-
greinir verið fjórum árum áður
viðurkenndar sem iðngreinar. Og
um haustið það ár fór fram fyrsta
sveinspróf í þessum greinum.
Var því ekki undarlegt, þó stétta-
félagið teldi rétt, að unnið skyldi
að því að koma upp þessum sér-
greinaskóla. Eftir að færustu
menn stéttarfélagsins höfðu rætt
þetta mál allmikið, varð þeim
Ijóst, að þegar tekin var ákvörð-
un um að byggja Sjómannaskóla-
húsið á sínum tíma, og það vígt
umrætt haust, réttum mánuði
eftir að fyrsta sveinspróf fór
fram, eins og áður er getið, hafi
byggingarnefnd þess gert ráð
fyrir að pláss yrði í þeim húsa-
kynnum fyrir menntasetur mat-
reiðslumanna á fiskiskipum. En
af annarlegum ástæðum, eftir
því sem séð varð, mun bygging-
arnefnd hafa talið rétt að hafa
stéttarfélag þessara manna utan
borðstokks, þegar þessi mál voru
yfirveguð innan nefndarinnar.
Frv. að lögum fyrir skólann
var lagt fram í upphafi Alþingis
1946 af þáverandi ráðherra þess-
ara mála, Emil Jónssyni, og varð
þetta lagafrumvarp mikið hita-
mál milli deilda Alþingis. Fékk
frv. þá ströngustu meðferð, sem
eitt lagafrumvarp getur samkv.
VlKINGUE
Tryggvi Þorfinnsson,
skólastjóri.
þingsköpum fengið. Var það rætt
við f jórar umræður í hvorri þing-
doild, og hafnaði að lokum hjá
Sameinuðu þingi, og er það því
nær einsdæmi að slíkt komi fyrir.
Ráðherra bar frv. fram í neðri
deild og bar það þá fyrirsögn-
ina „Frv. til laga um Matsveina-
og veitingaþjónaskóla", og var
þar lagt til að stofnaður skyldi
og haldinn í Reykjavík skóli fyr-
ir matreiðslumenn og fram-
reiðslinnenn, og skyldi aðsetur
hans vera í Sjómannaskólahús-
inu. Skyldi skólinn veita hag-
nýta fræðslu þeim, sem gerast
vildu matsveinar eða veitinga-
þjónar á skipum eða á gisti- og
veitingahúsum. Þannig afgreiddi
neðri deild frv. til efri deildar.
Efri deild breytti frv. mikið,
taldi að hér ætti að stofna skóla
fyrir matsveina á skipum, með
heimild til að kenna þar starfs-
fólki í veitingahúsum, og breytti
eíri deild fyrirsögn frv. í „Frv.
til laga um Matsveinaskóla Is-
lands“.
Frá efri deild fór frv. þannig
breytt til einnar umr. í neðri
deild. Neðri deild vildi ekki una
breytingum efri deildar, og end-
ursendi til efri deildar frv. eins
og það fór þangað áður, og fékk
því frv. sitt upprunalega heiti
o. s. frv. En efri deild vildi ekki
una þessu, og sendi frá sér frv.
með fyrirsögninni „Frv. til laga
um Matsveinaskóla Islands".
Fékk þá Sameinað þing þetta frv.
tii endanlegrar meðferðar, eins
og þingsköp mæla fyrir. Samein-
að þing gerði frv. að lögum á síð-
ustu dögum sínum, og varð það
að lögum, á þann hátt er neðri
deild lagði til. Lög um Matsveina-
og veitingaþjónaskólann voru
staðfest af Forsetaíslandssemlög
nr. 82, 5. júní 1947.1 lögum þess-
um er svo fyrir mælt, að stofna
skuli og halda í Reykjavík skóla,
er nefnist Matsveina- og veit-
ingaþjónaskóli, aðsetur skólans
skuli vera í Sjómannaskólahús-
inu. Ennfremur segir í þessum
lögum að kennsla skuli vera bæði
bókleg og verkleg. og námsgrein-
ir ákveðnar í reglugerð.
1 5. gr. laganna segir að ríkis-
stjórninni sé heimilt að láta starf-
rækja mötuneyti og matsölu í
sambandi við skólann og í 8. gr.
að allur kostnaður við skólahald,
mötuneyti og matsölu skuli greið-
ast úr ríkissjóði.
Fyrstu árin eftir að lögin
Eftir Böðvar Steinþórsson, bryta
829