Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1965, Síða 51

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1965, Síða 51
NámskeiS fyrir matsveina á fiskiskipum, liiS fyrsta, sem haldiS var eftir aS lögin um bryta- og matreiSsluskólann öSluSust gildi. Marbjörn Björnsson, kennari, er fyrir miSju. en að vel hafi tekizt við þær að- stæður er skólanum hefur verið ætlað að búa við. Því ber ekki að neita, að heyrst hafa raddir, sem segja annað, og það þveröfugt. Það var upphaf þessa skólamáls, að byggingar- nefnd Sjómannaskólans skammt aði skólanum liúsnæði, byggingar- nefndin hafði ekki samráð við stéttarfélög þeirra manna, sem hér höfðu hagsmuna að gæta. Og það sem merkilegast var, að þessi sama byggingarnefnd ætlaðist ekki til, að í þessum skóla ættu verðandi iðnsveinar í matreiðslu eða framreiðslu að mennta sig, en stéttarfélagið vann einmitt að því að svo yrði. Það hefur frá fyrstu tíð verið skoðun þeirra manna, sem með stjórn skólans hafa farið, að Mat- sveina- og veitingaþjónaskólinn eigi hið allra fyrsta að fara úr VÍKINGUR Sjómannaskólahúsinu. Það mál hefur mikið verið rætt við yfir- völdin, og á annan hátt, og er nú- í athugun, hvað hægt sé að gera, til þess að skólinn fái viðunandi húsnæði. Á sínum fyrsta áratug hefur Matsveina- og veitingaþjónaskól- inn útskrifað 58 framreiðslumenn og 33 matreiðslumenn. Þetta er lofsverður árangur, og sýnir okk- ur sem mikið höfum á okkur lagt til eflingar þessari stofnun, að við höfum ekki til einskis lagt okkur fram. Áður en ég lýk þessum línum mínum, vil ég færa skólastjóra og yfirkennara, þeim Tryggva Þorfinnssyni og Sigurði Gröndal beztu þakkir fyrir þeirra mikla starf til eflingar skólanum, fyrst sem áhugamenn í fyrstu skóla- nefnd, og síðar sem stjórnendur skólans yfir erfiðustu uppvaxtar- ár hans. Án krafta þessara manna er ekki að vita, hvernig skólanum hefði vegnað fyrsta áratug sinn. Einnig vil ég á þess- um tímamótum skólans færa beztu þakkir til meðnefndar- manna minna í skólanefnd, fyrir gott og ánægjulegt samstarf og vonandi munum við, flestir. eiga eftir að starfa að þessu sameig- ■ inlega áhugamáli okkar. * Lofcaorð mín eru innilegar ósk- ir um, að á ókomnum árum megi Matsveina- og veitingaþjóna- skólinn eflast og vaxa í starfi sinu, matreiðslu- og framreiðslu- mannastéttinni og þjóðinni til gagns og blessunar. * 331

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.