Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1965, Qupperneq 65
Það er ekki nýtt að froða, sem
framleidd er úr kemiskum efn-
um sé notuð til eldvarna, einkum
olíubruna. Talið er að um 40 ár
séu síðan sú aðferð kom til fram-
kvæmda. En ný tegund slíkrar
FROÐU er nú að komast í gagn-
ið og talin gefa góða raun. —
Letskum er hún nefnd á Norður-
landamálunum, á ensku — High
Expansion Foam, Hiex.
Það sem að mestu varðar þeg-
ar slökkva skal eld, er að stöðva
aðstreymi súrefnis til þess hlut-
ar, sem er að brenna. Takist það,
gildir einu, hve eldfimur hann er,
hann hættir að brenna, eldurinn
slökknar. Á meðfylgjandi mynd
sjáum við froðuna streyma inn í
rúmið. Sé það lokað, er það fljót
fyllt, svo fyrirferðarmikil er
froðan. Þó eldur sé þar laus, ein-
angrast hann fljótlega og missir
næringu.
Tækin sem gera þessa froðu
eru mjög einföld. Aðaltækið er
aflmikill blásari, sem dælir lofti
í gegnum nælonnet eða dúk. Yfir
netinu er vatnsúðari. Vatnið er
blandað, eða látið blandast jafn-
óðum hraðverkandi freyðiefni,
þegar það blandast loftinu, mynd-
ast froða, sem þrýst er eftir víð-
um pípum til þess staðar, sem
eldur er laus. Þessa léttu froðu
má framleiða í nálega ótakmörk-
uðu magni, sé nægilegt vatn og
froðuefni fyrir hendi, svo og
orka fyrir blásarann. Það er því
engum erfiðleikum bundið að
fylla vélarúm, jafnvel í stóru
skipi, og kæfa eld þar á skömm-
um tíma. Sjó má nota í stað
vatns, en það útheimtir nokkuð
meira af froðuefninu.
Þessi létta froða er mjög
áhrifamikil gegn eldsvoða, og
ekki sakar þó menn lendi í henni
stutta stund, og er það öfugt við
kolsýruna C02, sem er bráð-
hættuleg. Þó menn lokist inni í
rúmi, sem fyllt er létt froðu, geta
menn andað um stund, með því
að breiða t.d. rýju fyrir vitin.
Venjulegar gasgrímur má ekki
nota, því vatnsdropar setjast í
fíltið, sem í þeim er og stífla það.
VÍKINGUR
Froðan orsakar ekki andarteppu
og er að mestu lyktarlaus. Lendi
maður í slíkri froðu, er ráðlegt að
vera á stöðugri hreyfingu og
„synda“ með höndunum til þess
að vera stöðug í nýrri froðu. Að
öðrum kosti eiga menn á hættu
að lenda í alveg súrefnislausu
lofti, því að það sem froðan ger-
ir, er að hindra aðstreymi súr-
efnis.
Þetta atriði, að geta andað um
stund í froðunni, er næsta mikil-
vægt, það gefur möguleika til
þess að bjarga fólki, sem lokast
hefir inni í herbergjum. Því er
haldið fram, að hugsanlegt sé að
halda mótorvélum í gangiífroðu-
fylltu vélarúmi, sennilega yrði þá
að koma fyrir síum á loftinn-
takið og ef til vill leiðingu utan-
frá. Froðan leiðir ekki rafmagn,
en varað er við, að fara inn í
froðufyllt rúm með rafmagnleið-
ara með yfir 500 V spennu eða
meira. Froðubólurnar sem falla
saman, orsaka vætu á þiljum og
öðrum hlutum, og getur sú væta
orsakað útleiðslu og jafnvel
skammhlaup. I öryggisskyni er
því krafist, að straumur sé rof-
inn áður en farið er inn í froðu-
fyllt rúm. Vatnsskaðar verða eng-
ir af áminstri froðu í vélarúm-
um, og vélahluti og tæki sakar
ekki. Froðan fellur hægt saman
og verkar nánast eins og strokið
væri yfir hlutina með rökum klút.
Af tilraunum þeim, sem gerðar
hafa verið hér á landi, (Svíþjóð)
og þó einkum í U.S.A., þar sem
ýtarlegar tilraunir hafa verið
gerðar, má sjá, að þessi létta
froða hefir mikla kosti og góða
til þess að kæfa eld bæði í véla-
og ketilrúmum og að því er virð-
ist í öðrum vistarverum á skips-
fjöl. Froðan verkar fljótt, er auð-
veld í meðförum. Tækin, sem
framleiða froðuna eru fyrirferða-
lítil, örugg og ódýrari en þau,
sem nú eru í notkun og lögboðin.
Þess má einnig geta að Norske
Veritas mun á næstunni gefa út
reglur um notkun þessara nýju
tækja til brunavarna.
----o-----
Að efni til eftir sænska tíma-
ritinu Sjömannen.
H.J.
Hér fá ungir menn fræSslu um hœttulega bruna og varnir gegn þeim. Kennarinn sýnir
nemum sinum sakleysislegar tunnur, sem þó geta verið hcettulegar eftir innihaldi.
345