Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1965, Blaðsíða 67

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1965, Blaðsíða 67
Klipperskipin fóru meira en 400 mílur á sóbrhr, Timburmaðurinn, sem smíðaði heimsins hraðskreiðustu seglskip Öll höfum við heyrt um eða séð myndir af hinum línufalleg'u meistaraverkum, sem sigldu um heimshöfin fyrir skínandi fögrum þönd- um seglum. Seglskip, sem náðu topphraða með vindinn einan sem drifkraft. Það var ótrúlegt, en frægust þessara seglskipa „Klipp- erskúturnar“ náðu slíkum hraða, að það tók eimskipin 80 ára þróun að ná sama hraðan- um. í marzmánuði 1853 mældist seglskipið „Sovereigns of the Sea“ fara 421 sjómílu á 24 tímum. Draumurinn að ná þessum töfrahraða var uppfylltur.. Maðurinn að baki „Sovereigns of the Sea“ var Donald McKay. Timburmaðurinn frá Nova Scotia, sem varð mesti skipasmiður Banda- ríkjanna. Hann skóp nýtt framfaratímabil, sem hann sá blómstra, en lifði það einnig að sjá það líða undir lok. Mektartími Klipper- skipanna var stuttur en áhrifaríkur. Mjóhumlar huíttinx. 1 rúm 20 ár sigldu amerísku klipperskúturnar um öll heimsins höf. Vegna hins mikla hraða þeirra fengu þær verðmestu fragtirnar, og þetta veitti Amer- íku um stund verzlunarforrétt- indi á hafinu. Hraði klipperskip- anna voru peningar. Árið 1840 sigldu „te—clippers" milli vesturstrandar Ameríku og Kína og sigldu 300 mílur á 24 tímum. Bandaríkjamenn dreymdi um að koma þessum hraða upp í 400 sjómílur, en gömlu ensku kaupskipaskipstj órunum hraus hugur við og litu á þetta sem hverja aðra ameríska dellu. En draumurinn varð að veru- leika. Og fyrr en nokkur hafði búist við. Donald McKay hét maðurinn, sem veitti Ameríku yfirráðin á hafinu. En hver var þessi timburmaður og þessi skipasmiður? Hann fæddist í Nova Scotia árið 1810 og óx upp við kröpp kjör. Hann lærði snemma að vinna, og 16 ára gamall fór hann til New York til að læra trésmíði. Hann varð að vinna baki brotnu fyrir kaupi sínu. Fyrir 16 tíma vinnu daglega fékk hann tvo og hálfan dollara á viku. En hann tileinkaði sér allt um möguleika timbursins. Síðar komst hann að hjá skipa- smiðnum Isaac Webb og lærði skipasmíði. Hann lærði að höggva VÍKINGUR Teikning af Donald McKay. til bönd, stefni, kjöl o.s.frv. Öll vinna var framkvæmd með hand- verkfærum. — Skipshlutar, sem vógu eitt tonn eða meira, voru hífðir á handafli. McKay var einbeittur náungi. Hann vann endalaust og sparaði hvern aur. Mann hélt sig frá drykkjukrám, spilavítum og stöð- um, sem buðu upp á enn meiri freistingar. Að loknu námi flutt- ist hann til Newburyport í Massachusetts og þar smíðaði hann árið 1842 eftir pöntun fyrsta farartæki sitt. Það var skip, sem hét „Courier,“ 392 tonn að stærð. Fallegt skip, sem átti að vera í Suður-Ameríku kaffiflutningunum. Hinir íhald- sömu í sjávarútvegsmálum voru sem steini lostnir er þeir sáu skipið. „Farmdýr hafsins,“ hin ensku kaupskip, höfðu fram að þessu verið fyrirmynd um hvernig kaupskip áttu að vera. En þessi klunnalegu skip líktust lítið „Courier." McKay hafði smíðað skipið með næstum flötum botni og rennilegum bóg. — Gömlu kaup- förin voru með V myndaðanbotn. 1 fyrstu för „Courier“ kom einnig í ljós að McKay hafði á réttu að standa. Skipið var miklu gangmeira og lauk ferðinni á skemmri tíma, sem munaði mörg- um dögum. Þegar litið er aftur til þess tíma er McKay smíðaði „Cour- ier,“ þá höfðu Ameríkumenn þegar í Napoleonsstyrjöldunum hafið smíði á liðlegum grunn- skreiðum skipum til að losa um hafnbann Breta. Heitið ,,Clipper“ kom þá fyrst fram, clip along þýðir að fara með mikilli ferð. Og klipperskipin báru sannar- lega nafn sitt með rentu. Hraði þeirra stytti mjög ferðatímann til Kína. Einn einasti sólarhring- ur í tímaspörun gat þýtt 2000 dollara í auknu verðmæti á skips- farmi, því að þessi skip fluttu mikið te frá Kína, en teið var viðkvæmt og þoldi illa að geym- 34'i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.