Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1965, Síða 72

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1965, Síða 72
f Haraldur Ólafsson, skipstjóri, In memoriam yfir á togarana. Á þeim var hann fram til 1938, en fór þá í land eftir 47 ára veru á sjónum, og eftir það vann hann alla algenga vinnu í landi, meðan heilsa og kraftar ent- ust, lengst af hjá Bæjarútgerð Reykjavíkur. „Nú opnar fangið fóstran góða Og faðmar þreytta bamið sitt“. * * Svo sagði Þorsteinn Erlingsson skáld. Þeir hafa margir farið þreyttir að hátta að enduðum ævidegi, dreng- irnir, sem fóru að róa á árabátun- um á síðasta tug nítjándu aldarinn- ar og hafa komist til hárrar elli, því þeir eiga margir hálfrar aldar sjómennskuferil að baki sér. Lík- lega eitthvert erfiðasta tímabil hjá íslenzkum sjómönnum. Einn af þessum mönnum var til grafar borinn 28. sept. 1965, Eirík- ur Eiríksson, skipstjóri frá Breið- inni. Hann var fæddur á Akranesi að bænum Breið 30. apríl 1879, sonur hjónanna Ingveldar Einarsdóttur og Eiríks Tómassonar, sjómanns, en föður sinn sá Eiríkur aldrei, því hann drukknaði tveimur mánuðum áður en hann fæddist. Hann ólst upp með móður sinni og stjúpa, Jóni Guðnasyni, þar til hann fór til Reykjavíkur 1902 og ætlaði sér að læra trésmíði, því hann var hagur vel, en sjómennskan varð þar yfir- sterkari. Ég býst við að lát hans færi fram hjá mörgum eldri sjómönnum, ef hann væri ekki kallaður Eiríkur á Breiðunni, en undir því nafni gekk hann frá æsku til æviloka. Hann lézt að Hrafnistu 20. sept. 1965, þá farinn af kröftum. Mín fyrstu kynni af þessu nafni voru bundin þrennskonar eigin- leikum, í fyrsta lagi að hann var frábær dráttarmaður á færi, í öðru lagi að hann væri sterkari, en al- mennt gerðist og í þriðja lagi að hann væri orðvar, stillinga- og geð- spektarmaður. Þessu öllu átti ég eftir að kynnast áþreifanlega, nema færafiskiríinu, því okkar samvera byrjaði á togara og hélst hún nær óslitið um 20 ára skeið, og naut ég í ríkum mæli þessara kosta hans. Hann byrjaði um fermingaraldur að róa á árabátum, fór síðan á skúturnar, þegar þær komu til sög- unnar. Eins og margir ungir menn fór hann á Stýrimannaskólann og lauk þaðan fiskimannaprófi árið 1905 og var síðan stýrimaður og skipstjóri á skútunum nær óslitið fram undir 1920, en þá fór þeirri útgerð að hnigna, og fór þá Eiríkur Akranes hefur miðlað íslenzkri sjcmannastétt mörgum góðum drengjum, og var Eiríkur á Breið- inni einn af þeim, og til gamans vil ég geta þess, að hann var síðastur lifandi af þeim Kátu Körlmn á Kútter Haraldi, sem hin þjóðkunna vísa getur um, og að líkindum við burtför Eiríks mun nú vera hægt að finna aðeins tvo skútuskipstjóra á lífi. Hann giftist 23. nóvember 1910 eftirlifandi konu sinni, Guðrúnu Ei- ríksdóttur frá Eiríksbæ hér í borg, og hér hafa þau búið allan sinn bú- skap. Þeim varð þriggja barna auð- ið, sem öll eru á lífi: Soffíu, sem er búsett í Borgarnesi, Sigurbjörgu, búsetta á Seltjarnarnesi og Gunnar, húsasmíðameistara, búsettan hér í borg. Guðrúnu ekkju Eiríks, sem nú er þrotin að heilsu og er á sjúkradeild Hrafnistu, og börnum þeirra votta ég mína fyllstu samúð, og svo að endingu, þegar Eiríkur er lagður upp í hinztu ferðina, þakka ég hon- um af alhug alla samveruna og hans traustu handtök, og að Guð leiði hann til öruggrar friðarhafnar. Nikulás Kr. Jónsson. Um þilskipin Þau eru fyrstu framaspor, til frelsis, sem hér voru stigin, þau geyma vonir, vit og þor, þess vilja, sem er til grafar hniginn. H. Bjarnason. Þessa vísu gerði Hálfdán Bjarnason frá fsafirði í haust, þegar tvö líkön, kútter og skonnorta, er hann smíðaði fóru suður. 352 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.