Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1995, Síða 9
VÍKINGUR
Páll Halldórsson, yfirflugstjóri Landhelgisgæslunnar:
I slíku veðri flýgur enginn
f júní á þessu ári er væntanleg til
landsins ný Super Puma-þyrla. Hún
leysir af hólmi hina gömlu þyrlu
Landhelgisgæslunnar og markar viss
tímamót í sjúkraflugi og björgunar-
störfum á íslandi. Þó svo að gamla
þyrlan og áhöfn hennar hafi bjargað
fjölda mannslífa þá hafði hún sína
annmarka varðandi flugdrægni og
burðargetu. Með tilkomu nýju þyrl-
unnar verða öryggismál við björgun-
ar- og sjúkraflug mun traustari en
áður. Af þessu tilefni var rætt við Pál
Halldórsson yfirflugstjóra.
Hvenær kemur nýja þyrlan til
landsins?
„Ég veit það ekki nákvæmar en að
það verði seinnipart júnímánaðar, það
er allt á áætlun og síðustu fréttir eru
þær að þetta standist allt saman mjög
vel.“
Er farið að þjálfa áhöfnina?
„Já, það hófst þegar í desember með
þjálfun flugvirkja og það eru tveir
flugmenn búnir að fara núna á þessu
ári í bóklegt nám og tveir til viðbótar
eru að fara á næstunni.“
Hvað verður um gömlu þyrluna?
„Við fáum að hafa hana um ein-
hvern óákveðinn tíma á meðan við
erum að koma þeirri nýju inn í rekst-
urinn, en hvað sá tími verður langur
veit ég ekki.“
Hverju breytir nýja þyrlan við
björgunarstarf og þau verkefni sem
þið sinnið?
„Þetta breytir alveg gífurlega miklu,
það eykst bæði langdrægi og burðar-
geta, til dæmis þrefaldast burðargeta
og langdrægi tvöfaldast. Þá er hægt að
fljúga x umtalsvert verri veðrurn en
áður var, þannig að þetta breytir miklu
fyrir þá sem við komum til aðstoðar,
og eins þó að við séum enn að sinna
verkefnum, sem við gætum sinnt á
minni vélinni, þá gerum við það með
svo miklu meira öryggi en áður var á
þessari stóru og öflugu vél. Þessar
vélar hafa t.d. verið notaðar mikið í
Norðursjónum með góðum árangri og
halda uppi öllu flugi þar og það er
mikil og góð reynsla af þessum vél-
um.“
Hefur umframgetu
á vissum sviðum
Er þessi vél sambærileg við þyrlur
varnarliðsins í Keflavík?
„Þær vélar voru inni í myndinni á
sínum tíma, en það varð niðurstaða
þyrlukaupanefndar að þetta væri sú
vél sem myndi henta okkur best. Vél-
in er sambærileg við vélarnar í Kefla-
vík, hún hefur
umframgetu á
vissum sviðum
og hinar hafa
kannski vinn-
inginn á öðr-
um, eins og
gengur.“
Þessi vél get-
ur flogið í mun
verri veðrum
en sú garnla?
„Já, og við
það má reikna
með að við get-
um sinnt meiri
verkefnum en
áður. Við vitum
að í flugheim-
inum er þessi
vél kölluð „all
weather“-vél,
en hún hefur
vissulega sín
takmörk. Tök-
um til dærnis
Súðavíkur-
veðrið; þá flýg-
ur enginn, al-
veg sarna
hvaða verkfæri þú ert með. Bæði var
þar mikill vindur og skyggni ekkert,
skipin áttu meira að segja erfitt með
að athafna sig í slíku veðri. En við
komurn til með að geta flogið í mun
verri veðrum en við gátum áður.“
SIUR
ALLAfí GERÐIfí!
OTdftfflMO
co
t?
Vatnagörðum 26- 104 Reykjavík
kt: 691287-1069
S: (354-1)680160
Fax:680161
9